Leikhúsmál - 01.03.1963, Blaðsíða 47
þess a8 bœði gamlir hólendingar og
Beethoven gamli snúi sér við í gröf-
unum. Leiktjöld Bjarna Jónssonar
og Ijós voru eftir beztu föngum. En
leikfélagið getur gert betur. ólm
Hveragerði. Leikfélagið œfir nú „Pét-
ur kemur heim" eftir Sands undir
leikstjórn Hólmfríðar Pólsdóttur.
Keflavík. Leikfélagið Stakkur œfir
leikritið „Sjónvarpstœkið" eftir Rid-
ley. Leikstjóri er Gísli Alfreðsson.
Kópavogur.
Fyrra verkefni Leikfélags Kópavogs
ó þessum vetri, frönsk réttarfars-
satíra eftir Marcel Aymé var frum-
sýnt 13. febr. Áhugamannaleikfélög
íslenzk hafa löngum haft sérstakt
lag ó því að velja sér óheppileg við-
fangsefni, og bróst það heldur ekki
að þessu sinni. Leikrit þetta, sem ó
íslenzku hefur hlotið heitið Höfuð
annarra, er sennilega hin skemmti-
legasta ódeila fró höfundarins hendi,
en sem leikrit fremur ófrumlegt og
illa byggt. En hitt er þó sýnu lakara,
þegar íslenzkir framtaksmenn fó þó
köllun að kynna okkur enskar og
franskar manngerðir, allt fró betlur-
um og þjónustufólki til saksóknara,
morðingja og aðalsmanna. Útkom-
an verður ekki einu sinni skemmti-
leg skrípamynd, hún verður í hœsta
lagi skemmtileg della, sem getur
orðið býsna brosleg vegna þess, hve
fjarri öllu lagi hún er. Þannig er
þessi sýning í Kópavogi.
Ég varð fyrir vonbrigðum með
leikstjórn Jóhanns Pólssonar, t. d.
voru staðsetningar oft og tíðum stlf-
ar, klaufalegar, svo ekki sé minnst
ó limaburð leikaranna. Á framsögn-
ina er bezt að minnast ekki. Ég varð
fyrir vonbrigðum með leiktjöldin; ef
það er satt, að Magnús Pólsson hafi
teiknað þau, þó hlýtur hann að hafa
verið með innflúensu eða liðagigt.
Það vœri engin sanngirni að segja,
að allir hafi leikið jafn illa, þó held
ég, að enginn hafi leikið það vel,
að óstœða sé til að geta þess sér-
staklega.
Þýðing Hrafnhildar Jónsdóttur er
vissulega í réttum stíl við sýning-
una.
Þessi umsögn kann að virðast
ósanngjörn, þegar í hlut ó óhuga-
mannaleikfélag utan Reykjavíkur, í
mínum augum er þó hreinn dóna-
skapur að gera engar listrœnar kröf-
ur til leiksýninga utan höfuðstaðar-
ins, auk þess sem leiksýning sem
þessi getur ekki orðið grundvöllur
að vaxandi leiklist í neinum skiln-
ingi. ob
Haraldur Björnsson œfir „Mann og
konu" í Kópavogi og er frumsýning
ó leiknum í þessum mónuði.
Ólafsfjörður. Leikfélagið hefur sýnt
„Litla kofann" eftir André Roussin í
vetur, leikstjóri er Ingibjörg Steins-
dóttir.
Reykjavík.
Menntaskólinn í Reykjavík hefur nú
undanfarið unnið að sinni „Herra-
nótt". Að þessu sinni verður sýnt
leikritið „Kappar og vopn" eftir Ge-
orge Bernhard Shaw í þýðingu Lór-
usar Sigurbjörnssonar. Frumsýning
verður í þessum mónuði. Leikstjóri er
Helgi Skúlason.
Leikhús œskunnar frumsýndi laugar-
daginn 23. febrúar, kafla úr þremur
frœgustu verkum Shakespeares í þýð-
Höfum óvallt fjölbreytt úrval af snyrtivörum — þar á meðal:
MAX FACTOR
INNOXA
LANCÖME
LENTHÉRIC
Öll fáanleg frönsk
ilmvötn og eue de cologne
n.U.SL
Lcekjargötu 2
43