Fréttablaðið - 16.12.2022, Síða 6
kristinnpall@frettabladid.is
MÚLAÞING Sveitarstjórn Múlaþings
samþykkti fyrirliggjandi drög að
samningi um samræmda móttöku
f lóttafólks á nýjasta fundi sínum
með það að skilyrði að aðeins væri
um að ræða flóttafólk frá Úkraínu.
Einn bæjarfulltrúi lagði fram
bókun þess efnis að samkomulagið
væri eingöngu hugsað fyrir f lótta-
menn frá Úkraínu og þess vegna
veitti hann samþykki sitt.
Þetta kom fram á fundi sveitar-
stjórnarinnar í vikunni þegar talið
barst að samningi um samræmda
móttöku flóttafólks á milli sveitar-
félagsins og félags- og vinnumark-
aðsráðuneytisins. Á fundinum var
sveitarstjóra falið að undirrita samn-
inginn út frá þessum forsendum. n
Taki aðeins við
Úkraínumönnum
kristinnpall@frettabladid.is
KÓPAVOGUR Bæjarráð Kópavogs-
bæjar vakti á nýjasta fundi sínum
athygli á því að fyrirhugaðar áætl-
anir Vinnumálastofnunar um
að koma 50 umsækjendum um
alþjóðlega vernd í húsnæði í Kópa-
vogi væri í bága við rekstrarleyfi
staðarins. Ríkið segist vera langt á
veg komið með viðræður um leigu
á húsnæðinu Hjallabrekku 1 í Kópa-
vogi fyrir 50 einstaklinga.
„Bent er á að sá fjöldi sem VMST
hyggst koma fyrir í húsnæðinu sem
hér um ræðir er töluvert yfir þeim
fjölda sem rekstrarleyfi húsnæðis-
ins heimilar,“ kemur fram í bókun
bæjarráðs.
Vinnumálastofnun lét Kópa-
vogsbæ vita af fyrirhuguðu sam-
komulagi til að kanna áhuga á
þjónustusamningi sem snýr að
félagslegri þjónustu og stuðningi við
umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Í bókun bæjarráðs er því lýst yfir að
viðræður standi yfir um þátttöku að
samræmdri móttöku umsækjenda
um alþjóðlega vernd. n
Leiguhúsnæði
brjóti á reglum
Kostnaður skattborgarans við
utanlandsferðir ráðherra er
mjög mishár. Heilt yfir hefur
ferðakostnaðurinn hækkað
mikið á þessu ári.
kristinnhaukur@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Kostnaður við utan-
ferðir ráðherra hefur rokið upp á
þessu ári og er nú 275.713 krónur
á hverja ferð, sem er hækkun um
næstum 38 þúsund frá fyrra ári. Frá
því að ríkisstjórn Katrínar Jakobs-
dóttur var sett saman, árið 2017,
hafa ráðherrar farið 315 sinnum
utan og heildarkostnaðurinn er
72.472.816 krónur.
Þetta kemur fram í svörum ráðu-
neytanna við fyrirspurnum Björns
Levís Gunnarssonar, þingmanns
Pírata. Að meðaltali hefur hver
utanferð ráðherra kostað 230.072
krónur, í dagpeninga, hótelgistingu,
fargjöld og annan kostnað.
Svörin eru fyrir árin 2018 til 2022,
eða það sem búið er af árinu. En eðli
málsins samkvæmt fækkaði ferðum
mikið árin 2020 og 2021, sökum far-
aldursins. Aðeins fóru ráðherrar 17
og 18 ferðir þau árin og sumir ráð-
herrar fóru ekki utan.
Áberandi dýrustu ferðirnar hefur
Jón Gunnarsson farið í, en hann tók
við sem dómsmálaráðherra fyrir ári
síðan. Að meðaltali hafa þær kostað
ríkissjóð rúmlega 443 þúsund krón-
ur. Meira en 120 þúsund krónum
dýrari en ferðir þess sem er í öðru
sæti, Kristjáns Þórs Júlíussonar sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðherra
á fyrra kjörtímabilinu. Í þriðja sæti
er síðan Willum Þór Þórsson heil-
brigðisráðherra, sem líkt og Jón tók
við embætti fyrir ári síðan, en hann
hefur aðeins farið í þrjár ferðir.
Mesti heildarkostnaðurinn er hjá
Guðlaugi Þór Þórðarsyni, 12.674.945
krónur, sem skýrist af því að hann
gegndi stöðu utanríkisráðherra
á fyrra kjörtímabilinu. Þar á eftir
Jón dýrastur en Sigurður ódýrastur
Ráðherrar í ríkis
stjórn Katrínar
Jakobsdóttur
eru misgjarnir á
utanlandsferðir
og misdýrir
ríkissjóði.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Vinnumálastofnun.
Jón Gunnarsson
Kristján Þór Júlíusson
Willum Þór Þórsson
Lilja D. Alfreðsdóttir
Bjarni Benediktsson
Katrín Jakobsdóttir
Sigríður Á. Andersen n
Ásmundur Einar Daðason
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir n
Guðlaugur Þór Þórðarson
Þórdís Kolbrún Gylfadóttir n
Guðmundur I. Guðbrandsson
Svandís Svavarsdóttir
Sigurður Ingi Jóh.
443.007 krónur
321.746
320.430
319.796
312.278
261.748
249.378
247.861
212.474
173.629
170.609
170.496
165.421
114.826
Meðalkostnaður við hverja utanferð
n Aðeins 2018
n Aðeins 2020–2022
n Aðeins 2022
kemur Lilja Alfreðsdóttir, menn-
ingar- og viðskiptaráðherra og
fyrrverandi mennta- og menningar-
ráðherra. En hennar ferðir eru þær
dýrustu af þeim ráðherrum sem
setið hafa allan tímann, tæplega 320
þúsund krónur hver.
Áberandi ódýrustu ferðirnar eru
á skrá hjá Sigurði Inga Jóhannssyni
innviðaráðherra, aðeins 114.826.
Hafa 28 ferðir Sigurðar kostað ríkis-
sjóð minna en 8 ferðir Jóns Gunn-
arssonar. Flestar ferðir Sigurðar Inga
hafa verið á vegum samstarfsráðu-
neytis Norðurlandanna, sem Guð-
mundur Ingi Guðbrandsson situr
nú í ásamt félagsmálaráðuneytinu.
Sá ráðherra sem hefur ferðast
langminnst miðað við tíma í starfi
er Svandís Svavarsdóttir, mat-
vælaráðherra og fyrrverandi heil-
brigðisráðherra. Aðeins 8 ferðir á
tæpum 5 árum og hver um sig hefur
aðeins kostað rúmlega 165 þúsund
krónur.n
ggunnars@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Lyfja var valin markaðs-
fyrirtæki ársins á markaðsverð-
launum ÍMARK sam fram fóru í
Hörpu í gær.
Þetta er í 31. sinn sem ÍMARK,
félag íslensks markaðsfólks, veitir
markaðsverðlaunin en þau eru
veitt fyrirtækjum sem hafa verið
áberandi í sínu markaðsstarfi á
árinu.
Auk Ly f ju voru Atlantsolía,
66°Norður, Krónan og Blush til-
nefnd til verðlaunanna í ár.
Sigríður Margrét Oddsdóttir,
framkvæmdastjóri Lyf ju, segir
verðlaunin mikla viðurkenningu á
vinnu starfsfólksins.
„Hjá Lyfju starfar samhentur
hópur sem leggur metnað sinn í að
bæta heilsu og lífsgæði fólks. Við
höfum lagt okkur fram við að bæta
fræðslu og forvörnum inn í okkar
markaðsstarf og tekið það hlutverk
alvarlega.“ Aðspurð segir Sigríður
það hafa komið sér á óvart að vinna
til verðlaunanna.
„Þetta eru allt alveg framúrskar-
andi fyrirtæki sem voru tilnefnd í
ár, þannig að já, þetta kom verulega
á óvart. En svo þegar maður hugsar
um alla vinnuna sem liggur að baki
hjá starfsfólkinu þá getur maður
ekki verið annað en stoltur,“ segir
Sigríður Margrét. n
Lyfja valin markaðsfyrirtæki ársins af ÍMARK
Starfsfólk Lyfju við verðlauna
afhendinguna í gær.
4 Fréttir 16. desember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ