Fréttablaðið - 16.12.2022, Page 13
Guðmundur
Steingrímsson
n Í dag
Eitt það besta við að búa á Íslandi
er það hversu auðvelt er að fara
héðan. Í því felst enginn áfellis-
dómur yfir landi og þjóð. Á Íslandi
er gott að vera og landið er fagurt
og frítt og margir bara nokkuð
skemmtilegir, og allt það, en það
koma líka dagar þar sem fábreytn-
in verður yfirþyrmandi, smæðin
dapurleg, vindurinn og kuldinn
samanherpandi og maður þarf ein-
faldlega að komast eitthvert annað
um stundarsakir. Í sól. Á strönd.
Upp í fjöll með litlum þorpum og
þröngum götum. Á veitingastaði.
Í leikhús. Á torg þar sem er hægt
að sitja úti. Á markaði sem selja
ferska ávexti. Til borga með iðandi
mannlífi. Þegar fjölskyldan fór til
London fyrir nokkru mætti okkur
á götu berfættur maður í rönd-
óttum buxum, með sítt svart hár
og stóran páfagauk á öxlinni. Og
hann var bara að fara að versla. Eða
eitthvað.
Svona eru útlönd. Alls konar fólk.
Einu sinni var viðhorfið þann-
ig hér á landi að ef einhver fór
til útlanda þótti ekki óalgengt
að glotta til þess einstaklings að
ferðalagi loknu og bauna á hann
dylgjum og hálfkveðnum vísum
eins og: „Hva, þú bara alltaf í
útlöndum.“ Eða: „Einhver er nú
innkoman.“ Það var engu líkara
en talið væri að sá sem skroppið
hefði til útlanda væri upp að ein-
hverju marki svikari. Utanlands-
ferð væri svik við slorið, veðrið og
þá sameiginlegu ánauð sem fallið
hefði á herðar okkar allra frá 874
og upp úr, um að okkur bæri að
hanga hér, hlusta á vindinn, RÚV
og naga handrit. Hins vegar, vegna
þess að jafnan var út frá því gengið
að utanlandsferð væri einkum og
sér í lagi ástæða til að vera pöddu-
fullur í marga daga samfellt, var
viðhorfið líka sveipað smá forvitni
og skilningi, og jafnvel löngun. Var
bjór? Hvað kostaði vodkað? Á svo
ekki að drekka tollinn?
En nú hefur margur viljað meina
að þetta sé blessunarlega breytt.
Ekki þyki tiltökumál lengur að fólk
fari til útlanda. Og eitt það besta
við að búa hér, segi ég, er hversu
auðvelt er að fara. Með uppgangi
ferðaþjónustunnar hefur flugfélög-
um fjölgað svo mjög sem hingað
fljúga að það er ekki viðlit að
maður þekki nöfnin á þeim öllum.
Liðin er sú tíð að héðan flugu bara
Icelandair og Arnarflug. Nú kemst
fólk hvert sem er, hvenær sem er.
Og áður en lengra er haldið: Við
eigum að mega þetta. Það ætti að
vera í lagi í heilbrigðu samfélagi
að nýta rétt sinn til ferðalaga.
Ferðafrelsið er ekki bara eitthvert
tildur eða óþarfi. Það er grunn-
réttur, sérstaklega ef maður býr
á eyju norður í hafsauga. Íhuga
þarf jú takmarkandi þætti þegar
kemur að utanlandsferðum, eins
og eigin fjárhag, tíma og ekki síst
fótsporið sem flugferðin skilur
eftir í umhverfinu. Að slíkum tak-
markandi þáttum slepptum ætti
hins vegar gatan að liggja greið og
rétturinn vera sjálfsagður.
En er hann það? Greinilega þótti
það í aðdraganda hruns ekki bein-
línis vera réttur almennings að
eignast sjónvarp sem væri flatt. Það
þótti augljóslega merki um mikið
hömluleysi að almenningur skyldi
ekki halda sig við túbusjónvörpin.
Nú glittir að sama skapi í það við-
horf ráðandi afla hér á landi, að hið
viðsjárverða hömluleysi almenn-
ings birtist í utanlandsferðum,
einkum og sér í lagi til Tenerife, þar
sem fólks sé að taka af sér tásu-
myndir, og þá ekki, nota bene, með
gömlu góðu filmuvélunum heldur
örugglega tiltölulega flötum snjall-
símum.
Nú er eðlilegt að spurt sé: Erum
við enn á þessum stað? Er það enn
litið hornauga að fara til útlanda?
Eru það enn svik við okkar sam-
eiginlega útnárahlutskipti?
Það hefur tekið mig svolítinn
tíma að skilja návæmlega hvað
þetta er, þetta viðhorf sem birtist
í ummælum seðlabankastjóra
um Tene og tásumyndir. Þetta er
ekki eyjaskeggjahugsunarháttur.
Þetta er ekki smásálarhátterni
eða öfund. Ég held að Ásgeir langi
ekkert endilega í tásumynd af sér,
eða sé að hugsa hvar tollurinn verði
drukkinn og hvort honum verði
boðið.
Nei.
Þetta er krónuhagkerfið. Svona
birtist það. Íslensk efnahagsmál
snúast um það að viss öfl hér á
landi ætla að ríghalda í þessa
endemis krónu, sama hvað það
kostar, og allt kerfið dansar með.
Krónan er alltumlykjandi. Hún
er upphaf og endir alls. Hún tekur
kaupið okkar. Hún hamlar frelsi
okkar. Það má alls ekki ræða það,
með nokkru móti, að hugsanlega
ættum við að tengjast stærra mynt-
svæði, sem myndi gera okkum
öllum meira kleift að haga okkar
lífi án þess að þurfa sífellt að taka
tilliti til þessa viðundurs sem
krónan er.
Frekar skal þjóðin hætta að fara
til útlanda. Við eigum að horfa
á útlönd í túbusjónvarpi. Fyrir
krónuna. n
Tene
Krónan er alltumlykj-
andi. Hún er upphaf og
endir alls. Hún tekur
kaupið okkar. Hún
hamlar frelsi okkar.
1. vinningur:
Toyota Corolla Hybrid Style, Hatchback 5 dyra, 1.8, sjálfskiptur
Verðmæti kr. 5.580.000 Miði nr. 22494
2. - 11. vinningur:
Gjafabréf frá Erninum reiðhjólaverslun.
Hvert að verðmæti kr. 500.000
3204 21825 29714 43200 56257
12388 21872 38094 46959 59345
12. - 31. vinningur:
Ferðavinningur með leiguflugi frá Heimsferðum.
Hver að verðmæti kr. 300.000
1447 21490 37998 44742 51615
2044 23250 41754 48623 51723
11435 28799 42412 50147 58878
19165 30541 44732 50569 59068
32. - 86. vinningur:
Gistivinningur fyrir tvo í standard tveggja manna herbergi
með morgunverði í 7 nætur á Íslandshóteli að eigin vali.
Hver að verðmæti kr. 188.300
667 15600 29075 41683 47187
1744 15817 29344 41824 49366
3793 16134 29906 42223 49625
3941 16887 30169 42502 51369
3953 18262 30847 43032 51774
5548 18632 31822 44403 54385
7282 21515 34287 44716 55328
10123 25969 37592 44939 56410
13274 26950 37767 44955 57247
13312 27121 39312 45546 58255
14642 28861 40450 45817 58588
87. - 111. vinningur:
Samsung Galaxy Z Flip4 snjallsími.
Hver að verðmæti kr. 179.990
293 13696 21777 31966 46996
6149 15102 23799 39763 51146
7946 17028 25894 39870 54524
8505 17536 27359 45070 58933
13675 19561 29841 45451 59373
112. - 131. vinningur:
Gjafakort frá Smáralind. Hvert að verðmæti kr. 100.000
1086 16762 30023 44692 57411
1116 23877 36092 44780 57467
12828 29836 39315 45773 58700
13394 29941 44198 55934 58757
Vinninga ber að vitja innan árs á skrifstofu Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17.
Upplýsingasími 525 0000.
Birt án ábyrgðar.
VINNINGASKRÁ
Vetrarhappdrætti 2022. Dregið 14. desember 2022
VI INGASKRÁ
Vorhappdrætti 2016. Dregið 13. júní 2016
1. vinni gur:
Chevrolet Cruze LT, bensín 1,8 l, sjálfskiptur
4 dyra frá Bílabúð Benna. Verðmæti kr. 3.290.000
18515
2. vinningur:
Chevrolet Spark LT, 1,2 l. beinskiptur frá Bílabúð Benna.
Verðmæti kr. 1.990.000
62925
3. - 47. vinningur:
Ferðavinningur að eigin vali fyrir 2 eða fleiri með Heimsferðum.
Hver að verðmæti kr. 300.000
13389 15628 20197 31132 40554 43892 50374 56137 64425
13573 16853 24740 33313 40931 44664 50695 56794 66371
13653 17837 25480 36818 41331 45861 52044 58541 66559
14216 18048 28004 37341 42496 46481 53530 60920 67648
14224 20026 31103 40192 42871 49878 55981 63846 68382
48. - 92. vinningur
Apple ipad mini Retina, wi-fi, 4g, 16GB, örþunnur með 7,9” skjá frá epli.is.
Hver að verðmæti kr. 69.990
13824 22613 26189 31193 35948 48201 55350 59337 65030
14961 23377 26922 32430 42881 48685 55474 60292 65534
17753 24117 28103 33210 44882 48997 55903 61487 66775
18106 24326 29098 34971 45870 54192 55908 61973 67337
18304 24447 30159 35596 46357 54741 57892 64992 71669
93 - 142. vinningur
Gisting ásamt morgunve ði í tvær nætur fyrir 2 auk kvöld erðar annað kvöldið hjá einhverju
Fosshótelana. Hver að verðmæti kr. 65.000
12078 16963 24682 30106 35759 47068 50485 55122 63532 65636
13560 19970 25947 32050 40759 48619 51109 58529 63596 65649
14955 20874 26472 33229 44090 48777 51606 58577 64351 66801
15053 22875 28187 34877 44562 48929 54049 59010 64428 70021
15829 23851 28888 34927 46992 49713 54319 63352 64600 71144
Vinninga ber að vitja innan árs á skrifstofu Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17.
Upplýsingasími 525 0000. Birt án ábyrgðar
Barnauppeldi er krefjandi en eitt af
því mikilvægasta sem við gerum er
að tryggja öryggi barnanna okkar.
Hætturnar leynast víða en við
getum gert ráðstafanir til þess að
fyrirbyggja slys eða fækka þeim.
Ýmis efni sem notuð eru í daglegu
heimilishaldi eru afar skaðleg berist
þau í augu, á húð, í öndunar- eða
meltingarveg. Flest tilfelli inntöku
ætandi efna verða fyrir slysni þegar
börn eru í umsjá foreldra sinna inni
á heimilinu en einnig er mikilvægt
að huga að öryggisatriðum á öðrum
heimilum sem börn heimsækja.
Það er brýnt að gæta að öryggi
barna í aðdraganda hátíðanna
þegar margir eru að hreingera
og börn munu einnig heimsækja
ættingja og vini þar sem ekki er
víst að öll hreinsiefni séu geymd á
öruggan máta. Munum einnig eftir
hnapparafhlöðum sem geta leynst
í ýmsum tækjum og jafnvel jóla-
pökkunum en þau geta meðal ann-
ars valdið vefjaskaða vegna leka á
ætandi efni úr rafhlöðunni eftir að
hún er gleypt fyrir slysni.
Meirihluti tilfella inntöku ætandi
efna verður meðal barna sem eru 5
ára eða yngri fyrir slysni þó einn-
ig sé þekkt að inntaka verði meðal
unglinga í sjálfskaðandi tilgangi.
Tilfellin eru misalvarleg. Sum börn
þarfnast eftirlits til skemmri tíma á
bráðamóttöku en önnur börn þarf
jafnvel að leggja inn til gjörgæslu-
meðferðar.
Tíðni inntöku ætandi efna hefur
lækkað mjög í vestrænum heimi
vegna forvarna, bættra merkinga á
umbúðum og barnalæsinga á þeim,
auk þess sem styrkur ætandi efna
í efnablöndum má ekki fara yfir
ákveðin mörk. Því miður er inntaka
ætandi efna mun stærra vandamál
í þróunarlöndum en þar skortir
merkingar á umbúðir og ætandi
efni eru jafnvel seld í umbúðum sem
ekki eru upprunalegar.
Alkalísk efni eru algengustu
ætandi efnin sem eru innbyrt, eink-
um hreinsiefni eins og klór, ofn-
hreinsir, þvottaefni fyrir uppþvotta-
vélar, stífluhreinsir og hársléttiefni.
Hreinsiefni fyrir salernisskálar og
sundlaugar eru dæmi um sýru. Efni
með sýrustig undir 2 eða yfir 12 eru
afar ætandi og leiða til vefjaskaða
sem getur haft í för með sér alvar-
lega og varanlega fylgikvilla.
Ef barn verður fyrir inntöku
ætandi efnis er ráðlagt að hafa sam-
band við Eitrunarmiðstöð og leita
læknishjálpar tafarlaust. Mikilvægt
er að taka umbúðir með sér til þess
að heilbrigðisstarfsfólk geti af lað
sér nákvæmra upplýsinga um inni-
haldsefnin og sýrustig þeirra.
Ekki er mælt með að gefa barni
vatn eða mjólk til drykkjar í þeim
tilgangi að þynna út ætandi efnið
í meltingarvegi vegna þess að það
eykur hættu á uppköstum sem
útsetja vélinda fyrir ætandi efni
á ný. Frekari meðferð og eftirlit
ákvarðast af mati læknis.
Mikilvægar ráðleggingar til for-
eldra og forráðamanna eru að
geyma hreinsiefni ávallt í uppruna-
legum umbúðum úr augsýn og þar
sem börn ná ekki til. Aldrei skyldi
nota drykkjarílát undir hreinsi-
efni. Reynum eftir fremsta megni
að kaupa einungis hreinsiefni í
umbúðum með barnalæsingu.
Notum þvottaefni á fljótandi formi
eða í duftformi fyrir uppþvottavélar
og þvottavélar í stað þvottaefnis-
pakka þar til börn á heimilinu eru 6
ára eða eldri. Treystum ekki á lása á
skápum sem geta veitt falskt öryggi.
Mikilvægt er að við förum var-
lega þegar verða breytingar á dag-
legum athöfnum og umhverfi eins
og í fríum og heimsóknum á önnur
heimili. Geymum fjarstýringar
og bíllykla á öruggum stað vegna
hnapparafhlaðna og losum okkur
við tækifæriskort, smáhluti og leik-
föng sem innihalda þær.
Foreldrar geta tekið ákvörðun
um að eiga ekki ætandi hreinsi-
efni inni á heimilum þar sem eru
ung börn. Það er alltaf valkostur
að nota mildari efni og vel hægt að
nota edik og matarsóda til að þrífa
ofninn svo dæmi sé tekið. Setjum
öryggi barnanna okkar í forgang og
verum ekki feimin við að gera sömu
kröfu til annarra umönnunaraðila.
Höfundur er sérfræðingur í nær-
ingar- og meltingarsjúkdómum
barna á Barnaspítala Hringsins og
meðlimur í stjórn Félags íslenskra
barnalækna n
Geymið þar sem börn ná ekki til
Jóhanna Guðrún
Pálmadóttir
barnalæknir
Setjum öryggi
barnanna okkar í for-
gang og verum ekki
feimin við að gera
sömu kröfu til annarra
umönnunaraðila.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÖSTUDAGUR 16. desember 2022 Skoðun 11FRÉTTABLAÐIÐ