Fréttablaðið - 16.12.2022, Page 17
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 16. desember 2022
HEILAÞOKA?
Fæst í helstu apótekum - www.celsus.is
AUKIN ORKA
OG FÓKUS
Landsmenn syntu 10,2 hringi í
kringum Ísland í átakinu.
gummih@frettabladid.is
Góð þátttaka var í landsátakinu
Syndum, sem Íþrótta- og Ólympíu-
samband Íslands og Sundsamband
Íslands stóðu fyrir allan nóvem-
ber mánuð. Á tímabilinu skráðu
1.157 einstaklingar sundmetra
sína á heimasíðu átaksins en jafn-
framt voru 726 manns sem skráðu
sundmetra sína á þar til gerð
skráningarblöð. Það voru því sam-
tals 1.883 sem skráðu ferðir sínar
meðan á átakinu stóð og syntu
samtals 13.515 kílómetra sem gerir
10,2 hringi í kringum landið.
Sporna við auknu hreyfingarleysi
Syndum er heilsu-og hvatningar-
átak sem höfðar til allra lands-
manna, óháð aldri, bakgrunni
eða líkamlegu ástandi. Þetta átak
var viðburður undir Íþróttaviku
Evrópu sem tókst vel í ár. Mark-
mið hennar er að kynna íþróttir og
almenna hreyfingu um alla Evrópu
og sporna þannig við auknu
hreyfingarleysi meðal almennings.
Markmiðið með átakinu
Syndum var að hvetja almenning
til að hreyfa sig oftar og meira í
sínu daglega lífi og nota meðal
annars sund til þess. Til þess að
taka þátt skráðu þátttakendur sig á
syndum.is og skráðu metrana sem
þeir syntu.
Á vef Íþrótta- og Ólympíusam-
bands Íslands kemur fram að
almenn ánægja hafi verið meðal
þátttakenda með átakið og virðast
margir hafa nýtt sér það sem
hvatningu til að synda oftar og
lengra en einnig til að bæta sund-
tækni sína. n
Landsmenn
duglegir í sundinu
Guðný Guðjónsdóttir segist vera öll önnur eftir að hún fór að taka inn kollagen frá Feel Iceland, hvort sem það er á líkama eða sál. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Kollagenið er allra meina bót
Guðný Guðjónsdóttir er víðförul heimskona sem hefur lifað tímana tvenna. Hún setur
heilsuna í fyrsta sæti og þakkar Feel Iceland kollageni hreysti sína og unglegt útlit. 2