Fréttablaðið - 16.12.2022, Page 24
Ís er mjöööög
reglulega borðaður
hjá okkur dömunum í
Bergmáli. Alveg sérstakt
trít er bragðarefur með
þristi, daim, jarðar-
berjum og lakkrísdýfu.
Nammm.
Elísa Hildur Þórðardóttir
Hljómsveitin Bergmál
hættir sér út á nokkuð
hálan ís í nýju jólalögunum
sem meðlimir hennar, þær
Elísa Hildur Þórðardóttir
og Selma Hafsteinsdóttir,
sendu frá sér í mánuðinum.
Lögin heita Gloryjól og
Fáviti um jól.
sandragudrun@frettabladid.is
Þær Elísa Hildur og Selma segjast
vera „fáránlega miklir ísaðdá-
endur“ og þar sem þær drekka
hvorugar þá „tríta þær sig með ís
eftir hvert einasta gigg“.
„Það eru verðlaunin okkar.
Selma fær sér alltaf heimagerðan
rjómaís með Þristi og ég fæ mér
alltaf ís-daimhring,“ segir Elísa
Hildur.
Þeim finnst ekkert skrítið að
Íslendingar borði eins mikinn ís
þegar það er kalt úti og raun ber
vitni.
„Okkur finnst það bara meika
sens. Við borðum alveg jafn
mikinn ís í kulda og á sumrin,“
segir Selma.
Þær segjast báðar vera mikil
jólabörn og byrja að hlusta á
jólalög á sumrin til að gíra sig
upp fyrir jólatörnina. Árið 2015
byrjuðu þær að bjóða upp á
jólatónlistardagskrá sem heitir
Dónajól þar sem þeim fannst svo
mikið af boði af jólatónleikum, en
lítil fjölbreytni í jólalögunum.
„Við vildum hafa jólalög með
miklum húmor og gleði. Dóna-
jólatónleikarnir okkar eru ein-
stakir og skera sig úr! Þetta eru
fullorðins tónleikar sem svíkja
engan,“ segir Elísa Hildur.
Smá dónó og kómískt
Hljómsveitin Bergmál gaf nýlega
út tvö ný jólalög: Gloryjól og
Fáviti um jól sem þær Selma og
Elísa Hildur hafa f lutt á Dónajóla-
tónleikum nú fyrir jólin.
„Gloryjól fjallar um jólasvein-
ana Kertasníki og Þvörusleiki sem
eru að nota Gloryhole … Þetta er
virkilega f lott old school, big band
lag í retró stíl en með smá dónó
og mjög kómískum texta!“ segir
Selma.
„Fáviti um jól fjallar um móður-
hlutverkið og streituna í desemb-
er, andsetin brjáluð börn og allt
það sem foreldrar þurfa að sinna
í desembermánuði og hvað þau
þurfa að gera til að halda gleði- og
friðarjól.“
Hugmyndirnar að lögum og
textum fá þær frá öllu því sem
þeim finnst fyndið, skemmtilegt,
skrítið og áhugavert í samfélaginu
og í fari fólks.
„Líkaminn er einmitt mikill
innblástur því líkaminn getur
verið mjög fyndinn! Að vera kona
getur verið mjög fyndið og alls
konar.
Móðurhlutverkið er mikill
innblástur og margt skemmtilegt
og innblásandi sem gerist í því.
Samskipti kynjanna og ólíkir per-
sónuleikar, skrítið fólk og skrítnar
athafnir veita okkur mikinn inn-
blástur,“ segir Elísa Hildur.
Spila úti um allt
Undanfarið hefur verið nóg að gera
hjá hljómsveitinni Bergmáli. Þær
Selma og Elísa Hildur hafa verið
að spila úti um allt, taka upp lög í
stúdíói og margt fleira skemmti-
legt.
„Við erum búnar að spila erlendis
á árshátíð, spila fyrir hin og þessi
fyrirtæki úti um allan bæ og úti á
landi og halda Dónajólatónleika.
Við höfum verið fengnar til að spila
á jólahlaðborðum hjá fyrirtækjum
og hjá kvenfélögum og svo mætti
lengi telja. Við höfum líka spilað í
hádegishléum hjá fyrirtækjum á
aðventunni,“ segir Selma.
„Svo höfum við verið fengnar
til að spila í brúðkaupum, þá með
dónatóna þar sem við sérsníðum
texta fyrir brúðhjónin, en við
höfum einnig sungið fallegar
ábreiður í sjálfri athöfninni. Það
má fá upplýsingar um okkur og
það sem við bjóðum upp á www.
bergmal.band.“
Þær Selma og Elísa Hildur verða
áfram önnum kafnar eftir jólin og
því er fram undan nóg af tæki-
færum til að fagna með góðum ís.
„Á næstu mánuðum munu árs-
hátíðirnar og þorrablótin taka
stóran sess í lífi okkar. En frítímann
notum við til að semja ný lög, við
stefnum líka að því að taka upp
fleiri lög og gefa út,“ segir Elísa
Hildur.
„Og við höldum áfram að
fagna með ís, líka eftir jólin. Ís
er mjöööög reglulega borðaður
hjá okkur dömunum í Bergmáli.
Alveg sérstakt trít er bragðarefur
með þristi, daim, jarðarberjum og
lakkrísdýfu. Nammm.“ n
Þær Elísa Hildur og Selma í hljómsveitinni Bergmál, fagna alltaf með ís eftir tónleika. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Tríta sig
með ís
elin@frettabladid.is
Allir elska ís, allt árið. Þetta á ekki
bara við um Íslendinga því árið
2021 framleiddu Bandaríkjamenn
meira en 1,3 milljarða af ís sem er
risastórt hlutfall af iðnaðarfram-
leiðslu þar í landi. Það segir að hver
Bandaríkjamaður neyti um 4 lítra
af ís á hverju ári.
Hin vinsæla Ina Garten sem er
bandarískur sjónvarpskokkur er
ákaflega hrifin af ís. Hún hefur
gefið út fjölmargar matreiðslubæk-
ur undir nafninu „Barefoot Con-
tessa“ sem allar hafa notið mikilla
vinsælda. Það kemur kannski ekki
á óvart að hún er mikið fyrir ís og
notar hann á margvíslegan hátt.
Þess vegna kaupir hún alltaf van-
illuís sem hún getur síðan bragð-
bætt með ýmsum hætti. Reyndar
er vanilluís einn af tíu vinsælustu
bragðtegundunum í Bandaríkjun-
um. Ina segist líka vera mjög hrifin
af ferskjuís og kann ýmis ráð til að
ná fram sem besta bragðinu sem
hún deildi í bókinni sinni How
Easy Is That? Fabulous Recipes &
Easy Tips. Hún notar líkjöra, til
dæmis Grand Marnier, Sauternes
eða Limoncello, til að magna upp
bragðið. Ina notar líkjörana eins
og íssósu. Með Limoncello-ísnum
borðar hún biscotti, ítalskar smá-
kökur. Líkjörinn gefur fallegan lit á
vanilluísinn og verður fagur eftir-
réttur fyrir fullorðna.
Það eru til óteljandi aðferðir til
að poppa upp ísinn. Venjulegur
vanilluís úr búðinni getur orðið
mikill veislumatur með súkkulaði-
eða karamellusósu. Ekki er verra
að setja ferska ávexti saman við. n
Líkjör út á ísinn
Sjónvarpskokkurinn Ina Garten hikar ekki við að nota líkjöra sem íssósu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
4 kynningarblað 16. desember 2022 FÖSTUDAGURÍS OG ÍSBÚÐIR