Fréttablaðið - 16.12.2022, Page 40
Í hvert sinn
sem við förum í mat-
vörubúðina þurfum
við að gera málamiðl-
un. Af hverju ætti þá
leikhúsið að vera
svona auðvelt og
siðferðislegu spurning-
arnar þar svona ein-
faldar?
Þjóðleikhúsið heimsfrumsýn-
ir nýjan þríleik eftir Marius
von Mayenburg. Hann segist
vilja halda áhorfendum á
tánum um það hvort persón-
urnar séu vondar eða góðar í
gegnum öll verkin.
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins
2022 er Ellen B., fyrsta verkið í þrí-
leik þýska leikskáldsins Marius
von Mayenburg. Mayenburg er eitt
þekktasta leikskáld Evrópu og ljóst
að heimsfrumsýning á nýjum þrí-
leik eftir hann er mikill hvalreki
fyrir íslenska leikhúsunnendur.
Mayenburg kveðst hafa byrjað
að skrifa verkin í samkomubanni
Covid-faraldursins sem var einkar
strangt í heimaborg hans Berlín.
„Ég held að ég hafi aðeins getað
skrifað þau út af samkomubann-
inu. Ég byrjaði að skrifa sem eins
konar meðferð af því ég hafði verið
með frumsýningu rétt áður en
sam komu bannið tók gildi. Ég var
að frumsýna nýtt verk og á frum-
sýningarkvöldinu fréttum við að
leikhúsum yrði lokað daginn eftir.
Þannig að ég fór beint úr frumsýn-
ingarpartíinu í samkomubann. Það
var mjög svekkjandi,“ segir hann.
Lærði margt um sjálfan sig
Mayenburg starfaði lengi sem
dramatúrg og staðarleikskáld í hinu
virta leikhúsi Schaubühne í Berlín,
þar sem mörg af hans þekktustu
verkum hafa verið frumsýnd. Hann
kveðst hafa byrjað á því að skrifa
verkið Ex sem varð að öðru verki
þríleiksins og verður frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu í janúar.
„Út frá þessu leikriti þróaðist
verkið Ellen B. því ég var með svo
margar hugmyndir sem ég gat
ekki komið fyrir í fyrsta verkinu.
Ég ákvað að nota sömu aðstæður
tveggja einstaklinga sem eru í sam-
bandi og þriðja einstaklinginn sem
kemur svo inn í sambandið og ógnar
því, en með ólíkum kringumstæð-
um, ólíku valdajafnvægi og ólíkum
persónum,“ segir Mayenburg.
Að sögn hans kviknaði svo til-
raun út úr seinna verkinu sem varð
að þriðja og lokaverki þríleiksins,
Alveg sama, sem verður frumsýnt
í Þjóðleikhúsinu haustið 2023.
Mayenburg segist hafa lært og
grætt mikið sem höfundur á einveru
samkomubannsins, burtséð frá öllu
því slæma sem heimsfaraldurinn
hafði í för með sér.
„Það var hjálplegt fyrir mig að
læra nýja hluti um sjálfan mig.
Hvernig hugurinn minn funkerar
í svona aðstæðum. Að læra hvað
skiptir raunverulegu máli og hvað
ég þarf fyrir skrifin mín. Ég hélt að
ég gæti kannski haldið í eitthvað
af þeim hlutum sem ég græddi á
þessu ástandi en það var auðvitað
ómögulegt. Þegar samkomubannið
kláraðist tók lífið yfir og ég gat ekki
haldið eftir neinu af þessu góða,“
segir hann kíminn.
Náið listrænt samband
Spurður um hvernig það hafi komið
til að þríleikur hans verður heims-
frumsýndur hér á Íslandi en ekki í
Berlín, heimsborg alþjóðlega leik-
listarheimsins, segir Mayenburg
það vera miklu leyti að þakka ástr-
alska leikstjóranum Benedict And-
rews. Þeir Mayenburg og Andrews
eru nánir vinir en sá síðarnefndi bjó
á Íslandi um nokkurra ára skeið og
leikstýrði nokkrum verkum fyrir
Þjóðleikhúsið.
„Við vorum í bandi í gegnum
allt samkomubannið og eftir, því
við erum mjög nánir vinir. Hann
sýndi áhuga á að lesa leikritin en
við lesum oft yfir verk hvor annars
í vinnslu. Hann þekkti vel til þessa
verkefnis og sagðist myndu vilja
sviðsetja það og gera öll þrjú verkin
saman. Af því honum fannst, og ég
er sammála, þau vera mjög sam-
tengd og eiga margt sameiginlegt.
Þau svara hvert öðru á vissan hátt,“
segir Mayenburg.
Benedict Andrews hafði milli-
göngu við Þjóðleikhúsið og þeir
Mayenburg hófu samtal við Magnús
Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóra.
Brátt kom þó í ljós að Andrews
myndi ekki geta leikstýrt þriðja
verkinu vegna annarra verkefna og
kom þá upp sú hugmynd að Mayen-
burg myndi leikstýra því sjálfur.
„Það er yndislegt að fá tækifæri
til að vinna saman aftur. Við höfum
áður unnið saman í Berlín og Ástr-
alíu. Þetta er eins konar endurvakn-
ing á mjög nánu listrænu sambandi
okkar,“ segir hann.
Eldfim umfjöllunarefni
Ellen B. fjallar um parið Astrid og
Klöru sem hafa verið saman um ára-
bil. Astrid er menntaskólakennari
á fimmtugsaldri og fimmtán árum
eldri en Klara sem er smiður en líka
fyrrverandi nemandi Astridar. Dag
einn kemur Wolfram, samkennari
og yfirmaður Astridar, í heimsókn
og setur allt þeirra líf í uppnám.
Verkið fjallar um ýmis eldfim mál-
efni á borð við kynferðisof beldi
gagnvart börnum, valdajafnvægi
innan hinsegin sambanda og kyn-
ferðislega áreitni.
Þú hikar ekki við að fjalla um erfið
málefni í verkum þínum?
„Nei, í þessu leikriti sérstaklega
langaði mig til að fjalla um mis-
munandi valdajafnvægi. Þetta
fjallar ekki bara um valdajafnvægi
innan sambands heldur líka valda-
jafnvægi innan vinnustaðar. Skóla-
stjórinn í mennta-
skóla kemur inn í
mjög persónulegar
aðstæður inni á
heimili kennara. Hann ryðst þangað
inn á mjög grimman hátt, myndi ég
segja. Ég vildi ekki gera þetta auð-
velt fyrir áhorfendur, ég reyni að
gera þeim eins erfitt fyrir og hægt
er að skipta sér í lið. Fyrir mitt leyti
finnst mér alltaf sem áhorfanda
mjög svekkjandi þegar ég veit það
of snemma hver er góður og hver
vondur.“
Mayenburg segir þessar spurn-
ingar einnig leita á hann í hans per-
sónulega lífi.
„Ég held að við þurfum öll stöðugt
að gera málamiðlanir í lífi okkar. Í
hvert sinn sem við förum í mat-
vörubúðina þurfum við að gera
málamiðlun. Af hverju ætti þá leik-
húsið að vera svona auðvelt og sið-
ferðislegu spurningarnar þar svona
einfaldar? Ég vildi gera það erfitt
að skipta sér í fylkingar. Ég vona að
þegar áhorfendur horfi á leikritið
þá muni þeir skipta um lið á 5 til 10
mínútna fresti.“
MeToo hafði áhrif
Verkið fjallar einnig um kynferðis-
lega áreitni á vinnustað og talar
þannig beint inn í MeToo-hreyfing-
una sem tröllreið vestrænum sam-
félögum fyrir nokkrum árum síðan.
Mayenburg segist ekki hafa verið
meðvitað að leggja sitt af mörkum í
þá umræðu en segir að MeToo gæti
hafa haft áhrif á hann undir niðri.
„Þetta er ekki auðveld umræða
en það að hún átti sér stað var löngu
orðið tímabært. Hún þurfti að eiga
sér stað og ég er mjög feginn að það
gerðist. Þetta hefur að mörgu leyti
áhrif á mín verk. Ég held að einn af
mikilvægustu punktunum sem ég
áttaði mig á yfir síðasta áratuginn
sé sá að allar þessar spurningar um
femínisma og frelsi undan ánauð
eru ekki kvenlæg umfjöllunarefni.
Þetta er eitthvað sem MeToo opn-
aði fyrir alla. Að það eru ekki bara
konur sem þurfa að læra að frelsa
sjálfar sig heldur þurfa karlmenn að
læra það líka. Þessar spurningar um
vald eiga við um alla í samfélaginu.“
Konur geti líka leikið illmenni
Í Ellen B. er kona sökuð um kyn-
ferðisof beldi. Sumum áhorfendum
gæti fundist þetta umdeilt, hvernig
myndir þú bregðast við því?
„Ég skil þann punkt fullkomlega.
Ég hef átt mörg samtöl við ýmsar
leikkonur sem segja mér, af hverju
eru það alltaf karlmenn sem fá
áhugaverðustu hlutverkin í leik-
húsi? Af hverju eru það alltaf þeir
sem fá að leika ágengari og meira
ráðandi hlutverkin? Af hverju þurfa
konur alltaf að leika fórnarlömbin?
Ég skil það fullkomlega.
Ég reyndi að skrifa þannig kven-
hlutverk, ekki bara í Ellen B. heldur
líka í Ex, og mér finnst gaman að
skrifa þannig hlutverk vegna þess
að ég lít á það sem hluta af raun-
sæinu. Ég reyni að skrifa kvenkyns
persónur sem eru ráðandi, skarpar
í hugsun, tala hratt og takast á við
átök á ágengan hátt.“
Mayenburg segist raunar hitta
slíkar konur á hverjum degi í lífi
sínu og starfi.
„Konurnar í kringum mig
eru alveg jafn klárar og
karlarnir. Margar þeirra
eru enn klárari og vitrari
í því hvernig þær takast á
við átök. Af hverju ekki
að setja þær á svið?
Ég held að það
sé ekki pólitískur
kostur að sýna bara
siðferðislega f lekk-
lausar kvenpersónur.
Það er líka spurning
um frelsi að vera leyft
að leika vondar per-
sónur. Á sama tíma
myndi ég þó ekki
segja að konurnar
í þessum þremur
verkum séu illar. Það
má ræða hvort þær séu
Vill gera áhorfendum erfitt fyrir
Marius von Mayen- burg ætlar sjálfur að leikstýra þriðja verki þríleiksins en vinur hans Benedict And-
rews leikstýrir fyrstu tveimur verkunum. MYND/ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Ellen B. verður
frumsýnt í Þjóð-
leikhúsinu 26.
desember næst-
komandi.
MYND/
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
22 Menning 16. desember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 16. desember 2022 FÖSTUDAGUR