Fréttablaðið - 16.12.2022, Side 43
Fyrir listamanninn
n Faber Castell-litasett
Gott trélita-, túss- eða vatns-
litasett er klassísk gjöf. Gaman
er að gefa nokkrar arkir eða
skissubók með gjöfinni.
nAkrýlmálning/akrýltúss
Akrýll er gott hráefni fyrir áhuga-
fólk og hægt er að fá hann í
flestum verðflokkum.
n Pensla- og/eða spaðasett
Góðir penslar og spaðar eru
mikilvæg áhöld og það er virki-
lega gaman að eiga vandað sett.
n Perlusett
Hægt er að kaupa fjölda gjafa-
setta fyrir byrjendur í skart-
gripagerð.
n Málningartrönur
Trönur bæta líkamsstöðu
málarans og gera honum kleift
að fá betri yfirsýn yfir verkefnið.
n Blekpennar og -byttur
Vandaður blekpenni er sann-
kallað töfratæki. Falleg rithönd
er eins og falleg söngrödd á
pappír.
nMyndlistar-, teikni- eða
skrautskriftarnámskeið
Til að bæta tæknina, styrkja
sjálfstraustið og kynnast
skemmtilegu fólki.
Fyrir sælkerann
nGrænmeti í áskrift
Gott hráefni er gulli
betra. Íslenskar
verslanir
bjóða upp
á græn-
metis-
kassa með
ferskasta
hráefninu hverju
sinni. Þetta eykur
gæðin í matreiðslu, áhuga og
grænmetisneyslu.
nVínglös
Falleg glös eru klassísk gjöf.
Sniðugt fyrir fólk sem er að
byrja að búa saman.
nKökugafflar
Kökugaffla vantar á mörg
heimili, samkvæmt óformlegri
rannsókn blaðamanns.
nBorðdúkur
Fallegur borðdúkur getur
lyft rýminu og gert sparilegt,
sumarlegt, jólalegt eða einfald-
lega – fallegt!
nSalatáhöld
Fyrir allt nýja grænmetið úr
grænmetis áskrift inni.
nVönduð
ólívuolía
Holl, góð og
falleg gjöf.
Fjöldi bragð-
tegunda í
boði.
nGóð
vínflaska
Ekki eins holl
en þó góð og
falleg gjöf.
Og auðvitað
fjöldi teg-
unda í boði!
Fyrir þau elstu og bestu
n Þráðlaus heyrnartól
Þægilegt og handhægt þegar
hlusta skal á góða bók, ljúfa
tónlist eða einfaldlega hádegis-
fréttirnar.
n Stafrænn myndarammi
Fyrir minningar af besta
fólkinu. Uppsetning frá ást-
vinum og aðstoð við myndaval
innifalið!
n Hitateppi, hitavesti eða
fótarammi
Kuldi getur sótt að eldri borg-
urum og því er tilvalið að geta
gripið í góða hitagræju.
n Ryksuguvélmenni
Árið er 2022 og við látum
auðvitað vélmennin sjá um
heimilisstörfin.
n SmartTag-staðsetningartæki
Þegar minnið er ekki alveg eins
og það var á meðan Ómar hafði
hár, þá er gott að geta skellt
staðsetningartæki á húslykla
eða viðlíka græjur. Virkar líka
fyrir þreytta unga foreldra.
n Hljóðbókaáskrift
Aðgangur að heiminum,
hugsuðum og ævintýrum sem
teygja sig handan tíma og rúms
og yfir öll landamæri. Uppsetn-
ing og kennsla innifalin í boði
yngri fjölskyldumeðlima.
n Stækkunargler
Gott þegar rýna skal í Frétta-
blaðið!
„Engin bók í þessu jólabókaflóði
hefur komið mér jafnmikið á óvart.
Ég var algjörlega heilluð.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
„... sérlega vel upp byggð saga,
frásagnarstíllinn þjáll og grípandi
og persónusköpun góð.“
Páll Egill Winkel / Morgunblaðið
Innbundin Rafbók
„Verk hans er mikið afrek.“
Páll Baldvin Baldvinsson / Stundin
Áhrifamikil skáldsaga eftir
Hauk Má Helgason sem varpar
nýju ljósi á lífið í Reykjavík
á seinni hluta átjándu aldar.
UPPSELD HJÁ ÚTGEFANDA.
ENDURPRENTUN VÆNTANLEG!
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is
FRÉTTABLAÐIÐFÖSTUDAGUR 16. desember 2022 Lífið 25