Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.12.2022, Qupperneq 80

Fréttablaðið - 17.12.2022, Qupperneq 80
Á mann- mörgu bernsku- heimili mínu var jafn sjálf- sagt að ræða bókmennt- ir og pólit- ík. Sólveig Sif Hreiðarsdóttir Sólveig Sif mælir með bókum Davids Walliams sem hún segir sækja mikinn innblástur til Roalds Dahl, hún mælir einnig með bókum Gunnars Helgasonar. fréttablaðið/ernir Sólveig Sif Hreiðarsdóttir hefur getið sér gott orð sem þýðandi. Hún mælir með að lesa David Walliams og Gunn­ ar Helgason um jólin. Ámannmörgu bernsku­ heimili mínu var jafn sjálfsagt að ræða bók­ menntir og pólitík og oft spunnust skemmti­ legar umræður,“ segir Sólveig Sif Hreiðarsdóttir, þýðandi og bóka­ útgefandi. Þegar kom að því að velja nám í háskóla valdi ég hagfræði en laum­ aði mér í eitt og eitt námskeið í bók­ menntum. Ég kynntist manninum mínum og við áttum eftir að búa lengi erlendis,“ segir hún. „Eftir að heim kom leið ekki langur tími áður en hrunið dundi yfir og ég fékk enga vinnu, sem mér líkaði illa. Ég innritaði mig í HÍ í bókmenntafræði til að gera eitthvað uppbyggilegt meðan á atvinnuleit­ inni stæði og var í hlutastarfi,“ segir Sólveig og bætir við að námið hafi opnað henni nýjan heim. „Allt í einu var ég komin með gráðuna. Í framhaldinu ákvað ég að fara í meistaranám í þýðingafræði og naut þar handleiðslu og leiðsagn­ ar Gauta Kristmannssonar prófess­ ors,“ segir Sólveig Sif Hreiðarsdóttir, þýðandi og bókaútgefandi. Heillaðist af Roald Dahl Sólveig er með BA­gráðu í bók­ menntafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í þýðingafræðum frá sama skóla, en áður hafði hún lokið hagfræðigráðu í New York. Hún hefur getið sér gott orð sem þýðandi og var meðal annars tilnefnd til Íslensku þýðingaverðlaunanna og Barnabókaverðlauna Reykjavíkur­ borgar fyrir bókina Á hjara veraldar. Í þýðingafræðinni var eitt verk­ efni að eigin vali þýðing hennar á bókinni George’s Marvellous Medicine eftir Roald Dahl. „Ég hafði oft lesið hana fyrir börnin mín þegar við bjuggum í London. Þegar ég var að þýða Georg hugsaði ég með mér að ungir lesendur á Íslandi þyrftu að hafa tækifæri til að lesa þessa bók,“ segir Sólveig, Hún falaðist eftir útgáfuréttinum og fékk, með því skil­ yrði að hún yrði líka að þýða og gefa út bókina BFG (The BFG), þar sem stórmyndin um söguna í leik­ st jór n Stevens S piel b e r g v a r væntanleg.“ Sólveig segist hafa verið á báðum áttum með það hvort hún ætti að ráðast í þýðingu á BFG en látið slag standa og þarna hafi orðið til Kver bókaútgáfa. „Satt að segja var ég smeyk við verkefnið vegna þess að stór hluti BFG er á Gobblefunk, alveg sérstöku tungumáli sem Roald Dahl bjó til. Þetta var mjög k ref jandi en dásamlega skemmti­ legt verkefni,“ segir Sól­ veig. Rumpuskógur og Loki Nú hafa komið út níu bækur Roalds Dahl hjá Kver og sumar verið endurútgefnar vegna þess að þær seldust upp. „Þessar bækur eru sígildar og seljast alltaf jafnt og þétt. Núna fyrir jólin kom út Jakob og risastóra ferskjan og sér­ stök útgáfa af Matthildi með Netf lix­kápu, en um jólin verður frumsýnd kvikmynd sem er byggð á söngleiknum um Matthildi. Eftir áramótin kemur svo endur­ útgáfa í hefðbundnum búningi,“ segir Sólveig. Kver er líka með tvær innbundn­ ar barnabækur þessi jól. „Rumpuskógur eftir Nadiu Shireen er dillandi fyndin bók um systkinin Tedda og Nönnu sem lenda í ótrúlegum ævin­ týrum. Síðan er Loki: L eiða r v í si r f y r i r prakkara eftir Louie Stowell. Frásögn í dagbókarformi um það hvernig ásnum Loka reiðir af eftir að Óðinn sendir hann til jarðar í formi tólf ára skóladrengs í refsisk y ni vegna óknytta,“ segir Sólveig og bætir við að báðar bækurnar séu þær fyrstu í ritröð. En með hvaða bókum mælir þú fyrir jólin? „Ég verð að segja að mér finnst David Walliams alltaf skemmtileg­ ur. Hann sækir mjög í smiðju Roalds Dahl, eins og hann hefur sjálfur sagt frá,“ segir Sólveig. „Svo eru bækur Gunnars Helga­ sonar líka stórskemmtilegar og það leynir sér ekki að hann sækir inn­ blástur til Roalds Dahl,“ bætir hún við. „Mér finnst mikilvægt að þýdd­ um bókum sé gert hátt undir höfði, líkt og frumsömdum. Ekkert þrífst í einangrun, hvað þá bókmenntir, og þar leika þýðingar mikilvægt hlutverk,“ segir Sólveig Sif og lætur það verða lokaorð sín að þýðingum megi líkja við brú milli menningar­ heima. n Mikilvæg brú milli menningarheima Birna Dröfn Jónasdóttir birnadrofn @frettabladid.is 44 Helgin 17. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.