Morgunblaðið - 29.09.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.09.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy ri 60+ TIL KANARÍ rb re 14.NÓVEMBER Í 22NÆTURrir va ra með Bróa 595 1000 www.heimsferdir.is 316.350 Flug & hótel frá 22nætur Fararstjóri: Brói HÁLFT FÆÐI INNIFALIÐ Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það hefur ekkert gerst,“ segir Benedikt Erlingsson, leikari og leikstjóri, þegar hann er inntur eft- ir stöðu mála varðandi endurgerð kvikmyndar hans, Kona fer í stríð, í Hollywood. Greint var frá því síðla árs 2018 á vef kvikmynda- tímaritsins Deadline að Jodie Fost- er myndi leikstýra, framleiða og leika í bandarískri endurgerð myndarinnar. Margir glöddust yfir þeim tíð- indum að Foster myndi fara með hlutverk Höllu sem Halldóra Geir- harðsdóttir lék svo eftirminnilega í upprunalegu myndinni. Sagði Fost- er á sínum tíma að kvikmyndin hefði gagntekið sig og að hún hlakkaði til að endurgera þessa áhrifamiklu mynd. „Persóna Höllu er stríðsmaður jarðarinnar, sterk kona sem fórnar öllu til að gera hið rétta,“ var haft eftir Foster árið 2018. Síðan hefur hins vegar ekkert frést af þessum áformum og nú, þegar fyrir liggur að Foster verður hér á landi næstu níu mánuði við tökur á sjónvarpsþáttunum True Detective, telur Benedikt að- spurður tilvalið að kanna hvar verkið sé á vegi statt. „Ég mun örugglega funda með henni út af þessu, núna þegar hún mætir. Við vorum á tímabili í sam- bandi og skrifuðumst á, einmitt um verkefnið. Það er hins vegar engu að treysta í kvikmyndagerð, ekki fyrr en kamerurnar rúlla,“ segir Benedikt. Benedikt fundar með Foster - Ekkert frést af endurgerð myndarinnar Kona fer í stríð Benedikt Erlingsson Jodie Foster Endurgerð Kona fer í stríð naut mikilla vinsælda á sínum tíma. Veronika Steinunn Magnúsdóttir Hólmfríður María Ragnhildardóttir Karítas Ríkharðsdóttir Stórbruni varð á Egilsstöðum í gær eftir að eldur kviknaði í verslunar- og þvottahúsnæði Vasks að Fagra- dalsbraut. Slökkvilið var kallað út á fimmta tímanum í gær og taldi það sig hafa náð tökum á eldinum laust eftir sjö í gærkvöld. Engin meiðsl urðu á fólki í elds- voðanum. Hús Vasks varð alelda á 10 til 15 mínútum að sögn sjónar- votta. Mikinn, kolsvartan reyk lagði yfir Egilsstaði en slökkvistarf gekk greiðlega miðað við aðstæður. Aðgerðastjórn lögreglunnar á Austurlandi hvetur fólk sem hefur fundið fyrir óþægindum í öndunar- færum til að hringja í síma 1700 eða hafa samband við neyðarlínu, ef um neyðarástand er að ræða. Altjón á húsnæði Vasks Þótt altjón hafi orðið á húsnæði Vasks tókst að bjarga Landsnets- húsinu, sem er sambyggt, en eld- varnarveggur er þar á milli. Eldsupptök voru ekki ljós þegar mbl.is náði tali af Kristjáni Ólafi Guðnasyni, yfirlögregluþjóni lög- reglunnar á Austurlandi í gær- kvöld. „Það er ekki talið að neinn hafi verið inni í húsinu eða í hættu vegna eldsins,“ sagði Kristján. Húsið stóð á tímabili í björtu báli og var því allt kapp lagt á að eld- urinn bærist ekki í nærliggjandi hús eða dreifði sér frekar. „Það eru tilmæli til íbúa í nær- liggjandi hverfum að halda glugg- um lokuðum vegna reyks,“ segir Kristján. Allir sluppu ómeiddir Allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn, þar á meðal slökkviliðið á Egilsstöðum og slökkviliðið í Fjarðabyggð. „Okkur þykir mjög leiðinlegt og sárt að sjá fyrirtækið okkar fara svona illa. En það sluppu allir ómeiddir úr húsinu,“ segir í færslu sem Vaskur birti á Facebook-síðu sinni í gærkvöld. Talsvert mikill tækjabúnaður var á vettvangi og var lögregla með dróna á lofti við slökkvistarf. Bað lögreglan á Austurlandi fólk að vera ekki með dróna á lofti nálægt vett- vangi á meðan á slökkvistarfi stóð. Eldur logaði á Egilsstöðum - Altjón á húsnæði Vasks - Verslun og efnalaug - Eldur breiddi úr sér á tíu til fimmtán mínútum - Slökkvistarf gekk greiðlega fyrir sig - Íbúum í nágrenninu ráðlagt að loka gluggum vegna reyks Morgunblaðið/Árni Sæberg Eldur Mikinn reyk lagði yfir bæinn og var íbúum því ráðlagt að loka gluggum. Í dag er síðasti dagurinn til að berja augum yf- irlitssýningu á verkum Guðmundar Guðmunds- sonar, sem betur er þekktur sem Erró, í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin, sem er undir yfirskriftinni Sprengikraftur mynda, var opnuð 9. apríl til að fagna 90 ára afmæli Errós. Í tilefni þessa var strætó skreyttur í sumar með broti úr listaverkinu Vísindaskáldskaparvíðátta en eflaust hverfur það með haustinu eins og laufblöðin af trjánum. Morgunblaðið/Eggert Litadýrð strætó og haustsins prýðir höfuðborgina Ársfundur atvinnulífsins, sem haldinn er á vegum Samtaka atvinnulífsins (SA), fer fram í Borgarleik- húsinu í dag kl. 15:00. Fundurinn í ár ber yfir- skriftina Fyrir- tækin okkar í að- draganda kjaraviðræðna. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra ávarpar fundinn. Þá fjallar Ole Erik Almlid, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins í Nor- egi (NHO) um kjarasamningslíkan Norðmanna. Auk þeirra munu Eyj- ólfur Árni Rafnsson, formaður SA, og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri, einnig halda erindi. Loks heldur fjöldi atvinnu- rekenda stutt erindi í máli og myndum. Í auglýsingu fyrir fund- inn kemur fram að hann verði snarpar 60 mínútur þar sem til standi að stilla saman strengi í aðdraganda kjaraviðræðna. Sem kunnugt er fara kjaraviðræður fram síðar í haust. Hægt verður að fylgjast með fundinum í streymi á mbl.is. Ársfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram í dag Eyjólfur Árni Rafnsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.