Morgunblaðið - 29.09.2022, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.09.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022 20% afsláttur af öllum innréttingum út október. 562–1500 Friform.is Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. Virka daga 10-17 Laugardaga 11-15Hjar ta heimilisins Við hönnum innréttingar að þínum þörfum. Jón Magnússon hæstaréttar- lögmaður rifjar upp að upp hafi komist um „símhleranamál í Bretlandi 2005-2007. Blaða- og fréttamenn ákveð- inna miðla stund- uðu símhleranir og ólöglegt niðurhal og birtu af því fréttir einkum í News of the World. Blaðamennirnir sem og forstjóri, ritstjórar o.fl. voru látnir hætta strax og rannsóknin fór af stað. Breskir fjölmiðlar fordæmdu þessa ólöglegu fram- göngu kollega sinna innan Mur- doch-fjölmiðlasamsteypunnar. Hér hefur verið til rannsóknar stuldur á farsíma ákveðins manns meðan hann lá meðvit- undarlaus, ólöglegt niðurhal og birting frétta í ákveðnum fjöl- miðlum af þessu ólögmæta nið- urhali, sem m.a. RÚV tengist og nokkrir aðrir miðlar.“ - - - Jón segir að ólíkt því sem gerst hafi í Bretlandi þá ríki þögnin ein um íslenska málið og að hinir grunuðu fari „ítrekað fram með þeim hætti að halda því fram, að stöðu sinnar vegna eigi þeir að vera undanþegnir ábyrgð á meintum lögbrotum“. - - - Hann endar skrif sín á þess- um orðum: „Það er dap- urlegt að verða ítrekað vitni að því að blaða- og fjölmiðlamenn átti sig ekki á þeim lagalegu grunnstoðum sem við byggjum á, m.a. að hver skuli talinn sak- laus þangað til sekt er sönnuð og allir séu jafnir fyrir lög- unum.“ - - - Umrætt mál er enn til rann- sóknar og takmarkaðar upplýsingar verið að hafa um málavöxtu. Þegar þær liggja fyr- ir er ekki ólíklegt að umræðan taki töluverðum breytingum. Jón Magnússon Hleranir hér og þar STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, alls 10 þingmenn, heimsækir Ósló og Kaupmannahöfn dagana 27.-30. september til að kynna sér málefni útlendinga og fjölmiðla í Noregi og Danmörku. Að auki eru tveir starfsmenn Alþingis með í för. Nefndin heimsækir þing, sendiráð og ráðuneyti auk stofnana sem fjalla um málefni útlendinga og málefni fjölmiðla, þar á meðal stéttarfélög blaða- manna. Einnig verða heimsóttar stofnanir sem veita flóttamönnum aðstoð, segir í tilkynningu á vef Alþingis. Í Danmörku kynnir nefndin sér m.a. starfsemi Rauða krossins í Sandholm sem er mót- tökumiðstöð flóttamanna. Fyrir hönd allsherjar- og menntamálanefndar taka þátt í ferðinni Bryndís Haraldsdóttir formað- ur, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Birgir Þórarinsson, Eyjólfur Ármannsson, Helga Vala Helgadóttir, Jódís Skúladóttir, Jóhann Frið- rik Friðriksson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Sigmar Guðmundsson og Sigmundur Davíð Gunn- laugsson. Inga Valgerður Stefánsdóttir og Kristel Finnbogadóttir Flygenring, starfsmenn á skrif- stofu Alþingis, eru með í för. sisi@mbl.is Tíu þingmenn farnir í kynnisför - Kynna sér málefni út- lendinga og fjölmiðla Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kynnisför Bryndís Haraldsdóttir er formaður. Unnið hefur verið að því að undan- förnu að koma fyrir færanlegum húsum, svokallaðri Ævintýraborg, fyrir leikskóla Vogabyggðar við Naustavog. Hverfið hefur byggst hratt upp síðustu misseri. Þegar það verður fullbyggt verða þar allt að 1.900 íbúðir. Leikskólinn er á tanga í Elliðaár- ósum sem kallast Fleyvangur (Vogabyggð 5) en yst á tanganum er Snarfarahöfnin. Göngu- og hjólabrú yfir Ketilbjarnarsíki mun í framtíðinni tengja Fleyvang við aðra hluta Vogabyggðar. Ævintýraborg í Vogabyggð verð- ur sex deilda leikskóli sem rúma mun 100 börn á aldrinum 1-6 ára. Leikskólastjóri er Ragna Kristín Gunnarsdóttir. Framkvæmdir við Ævintýra- borgina hafa tafist nokkuð frá fyrstu áætlunum. Fyrsta skóflu- stunga var tekin 29. júní og um miðjan september var lóðafrágang- ur boðinn út. Tilboð verða opnuð 4. október. Nú er stefnt að því að leik- skólinn verði tilbúinn í desember. Fyrstu fimm börnin, sem voru innrituð í Ævintýraborg í Voga- byggð, hófu aðlögun 12. september síðastliðinn í húsnæði leikskólans Bakka í Grafarvogi. Leikskóli í Vogabyggð mun síðar rísa ásamt nýjum grunnskóla og rúma 140 börn. Stefnt er að því að hann taki til starfa á árinu 2025, að því er fram kemur á vef Reykjavík- urborgar. Hann mun leysa af hólmi Ævintýraborgina. sisi@mbl.is Ævintýraborg risin á Fleyvangi í Vogabyggð Morgunblaðið/sisi Fleyvangur Húsin eru komin á sinn stað en eftir er að ganga frá lóðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.