Morgunblaðið - 29.09.2022, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 29.09.2022, Blaðsíða 53
MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ empire moviefreak.com EKKI MISSA AF ÞESSARI Í BÍÓ Indie wire FRÁBÆR GAMANMYND Telegraph UPPLIFÐU STÆRSTU MYND ALLRA TÍMA Í STÓRKOSTLEGUM 4K MYNDGÆÐUM OG UPPFÆRÐRI ÞRÍVÍDD. SÝND Í 3D Í SAMBÍÓUNUM EGILSHÖLL SÝND Í TAKMARKAÐAN TÍMA SÁLFRÆÐITRYLLIR SEM SÍFELLT KEMUR Á ÓVART O pnunarmynd Alþjóðlegrar kvikmynda- hátíðar í Reykjavík í ár er einkar for- vitnileg og jafnvel torræð og munu Ítalir og Íslendingar upplifa hana með nokkuð ólíkum hætti, að ég tel. Á yfirborðinu fjallar myndin um ítölsku leik- konuna Veru Gemma sem virðist þekkt í heima- landinu en er algjörlega óþekkt hér á landi og væntanlega víðar um lönd. Vera leikur sjálfa sig í myndinni, sumsé. Hún hefur látið breyta útliti sínu býsna mikið, greinilegt að hún hefur farið í fjölda fegrunaraðgerða. Þær hafa haft þær afleið- ingar að eftir henni er tekið, hvert sem hún fer, og einnig vegna nokkuð óvenjulegs og býsna djarfs og skemmtilegs klæðaburðar. Rauður kúreka- hattur og bleikur pels er hversdagsklæðnaður fyrir Veru og vekur athygli. Andlitið hefur einnig þau áhrif að Vera á erfitt með að landa hlut- verkum, virðist aldrei hafa rétta útlitið í þau og skal engan undra (sjá meðfylgjandi stillu) því það er allsérstakt. Vera er önnur af tveimur dætrum Giulianos Gemma sem var þekktur leikari á síðustu öld og þá einkum fyrir að leika í spagettívestrum. Aldrei hafði rýnir heyrt minnst á þann mann, frekar en dóttur hans, áður en hann horfði á myndina en er nú nokkru fróðari. Giuliano þótti með endemum myndarlegur maður og var það vissulega, af ljós- myndum að dæma. Nokkur bölvun fylgdi þó þokka Guilianos því dætur hans lifðu í skugga föð- urins og fengu reglulega að heyra að synd væri að þær væru ekki jafnfallegar og hann. Er með nokkrum ólíkindum að heyra dæturnar rifja þetta upp, komnar á miðjan aldur, og greinilegt að slík ummæli hafa valdið sárum sem seint gróa. Þá hef- ur Vera einnig orð á því að í uppeldi þeirra systra hafi mikil áhersla verið lögð á fegurð og útlit og móðir þeirra snemma farið að tala um að senda þær í nefaðgerð. Getur maður rétt ímyndað sér áhrifin sem slíkt uppeldi getur haft á börn. Vera býr ein og virðist einmana, þrátt fyrir að eiga kærasta sem lítur út eins og nærbuxnamódel og er leikari og leikstjóri. Fljótlega kemur í ljós að hann er að notfæra sér frægð Veru og hafa af henni fé líkt og fyrri kærastar hennar. Eftir því sem rýnir kemst næst mun það vera nokkuð nærri ævi leikkonunnar sjálfrar og mörkin milli þess sem er ævisögulegt og skáldskapur eru oftar en ekki óljós í þessari heldur óvenjulegu kvikmynd þeirra Covi og Frimmels. Vera er algjörlega á móti því að keyra bíl og er því alltaf með bílstjóra til taks, þurfi hún að send- ast um Róm. Dag einn keyrir bílstjórinn á ungan dreng og föður hans sem eru á skellinöðru. Fað- irinn bregst illa við og kennir ökumanninum um óhappið, segir hann ekki hafa fylgst með. Öku- maðurinn þvertekur fyrir það en Vera býðst til að sinna drengnum og láta tryggingar sínar bæta þeim skaðann. Þróast mál svo að hún gengur drengnum nánast í móðurstað (móðir hans er lát- in) og verður nær daglegur gestur á heimili drengsins í úthverfi einu fjarri því fína hverfi sem hún sjálf býr í. Þarna mætast andstæðir heimar Rómar, fína og fræga fólkið sem Vera tilheyrir og fátæka fólkið í úthverfunum sem á varla í sig og á. Virðist sem Vera hafi þarna fundið soninn sem hún aldrei eignaðist (leikkonan á þó ungan son) og jafnvel unnusta og tengdamóður en feðgarnir búa hjá ömmu drengins sem er krúttleg í meira lagi. Alls konar vandamál koma upp í myndinni og mörg lífleg rifrildi (sem Ítalir hafa nánast gert að listgrein með sínu mikla handapati og höfuðhreyf- ingum) og virðist Vera lítið hafa að gera annað en að sinna drengnum og rifja upp gamla tíma með systur sinni og vinkonu. Allt er þetta framreitt af raunsæi og skilin milli veruleika og skáldskapar eru oft óljós, sem fyrr segir. Þessi frásagnarmáti minnir nokkuð á hinar svo- kölluðu gerviheimildarmyndir (e. mockumentary) þótt hér sé engin gamanmynd á ferð. Vera er drama með dálitlum heimildarmyndarbrag og sumt sótt í ævi aðalleikkonunnar sem er að leika sjálfa sig. Hún gerir það bara býsna vel og hlaut fyrir verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í byrjun mánaðar. Mun Vera einna þekktust hin síðustu ár fyrir þátttöku sína í raunveruleika- þáttum og með einföldu gúgli má finna ýmsar slúðurfréttir sem tengjast þeim. Vera hætt með þessum eða hinum náunganum og svo framvegis. Það hlýtur því að teljast nokkuð kraftmikið stökk upp á við hjá Veru að hljóta verðlaun á einni virt- ustu kvikmyndahátíð heims. Myndin er hvað sterkust í ádeilu sinni á útlits- dýrkun og afleiðingarnar sem slík innantóm yfir- borðsmennska getur haft í för með sér. Þá er hún einnig áhrifamikið portrett af manneskju sem virðist glíma við einmanaleika og brotna sjálfs- mynd. Einkar sterkt er til dæmis atriði þar sem lýta- eða fegrunarlæknir talar um fyrir Veru þeg- ar hún vill stækka brjóst sín enn frekar. Telur hann ráðlegt að bíða aðeins með slíka aðgerð. Þá má líka segja að andlit Veru sé persóna út af fyrir sig, áhorfandinn getur ekki haft augun af því frek- ar en aðrir sem hún hittir á leið sinni um Róm. Þar fer andlit með sögu, svo ekki sé meira sagt. En hvort þarna fer hin raunverulega Vera eða einhvers konar útgáfu af Veru liggur ekki fyrir og engin lausn fæst í raun við þeirri gátu. Þannig hefst myndin og endar með sama hætti, áhorfand- inn gengur á eftir Veru, hún snýr við honum baki þannig að andlitið sést ekki. Og kannski er það hið rétta sjónarhorn á þessa frægu konu sem fáir munu kannast við utan heimalands hennar. Vera eða ekki Vera Vinkonur Vera Gemma með vinkonu sinni Asiu Argento, dóttur leikstjórans Darios Argentos. Háskólabíó Vera bbbmn Leikstjórn: Tizza Covi og Rainer Frimmel. Handrit: Tizz Covi. Aðalhlutverk: Vera Gemma, Daniel De Palma, Sebastian Dascalu, Annamaria Ciancamerla og Walter Saabel. Austurríki, 2022. 115 mín. Sýnd á RIFF. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Vorblótið sí- vinsæla eftir Stravinskíj mun hljóma á tón- leikum Sinfón- íuhljómsveitar Íslands í Hörpu í kvöld. Það verð- ur kraftmikil lokahnykkur á dagskrá tón- leikanna en fyrst hljóma verk þriggja íslenskra tón- skálda. Eftir Önnu Þorvaldsdóttur verður flutt verkið CATA- MORPHOSIS en Anna er í hópi eftirtektarverðustu tónskálda sam- tímans og hafa verk hennar verið flutt af mögum þekktustu sinfóníu- hljómsveitunum. Þá verður flutt glænýtt verk eftir Veronique Vöku, Gemæltan. Tónverk eftir hana hafa verið tilnefnd til Tónlistarverð- launa Norðurlandaráðs og Íslensku tónlistarverðlaunanna. Þá flytur Sæunn Þorsteinsdóttir, staðar- listamaður Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands 2022-23, Bow to String eftir Daníel Bjarnason en hún pantaði verkið af honum á sínum tíma. Vorblót og íslensk verk flutt í kvöld Sæunn Þorsteinsdóttir Útgáfu fimm nýrra verka í Pastel-ritröðinni sem Flóra á Akureyri gefur út verður fagnað í menningarhús- inu Mengi í dag, fimmtudag, kl. 17. Ritin í Past- el-röðinni eru þá orðin 33 en höfundar þeirra nýju eru Katla Tryggvadóttir, Jakub Stachowiak, Fríða Karlsdóttir, Einar Falur Ingólfsson og Viktoría Blöndal. Um er að ræða bæði texta- og myndlistarverk og munu höfundarnir lesa upp og kynna þessi verk sín. Pastel-ritin koma út í 100 tölu- settum og árituðum eintökum. Frá byrjun útgáfu bókverkanna hafa höfundar ýmist verið reyndir lista- menn eða nýliðar á þeim vett- vangi. Fimm ný Pastel-rit kynnt í Mengi í dag Jakub Stachowiak
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.