Morgunblaðið - 29.09.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.09.2022, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Samtök iðn- aðarins sendu í gær frá sér afar at- hyglisverða og vandaða skýrslu um íslenskt efna- hags- og samkeppnisumhverfi með 26 tillögum um það sem betur mætti fara svo að frek- ari árangur náist í að bæta lífskjör í landinu. Auk um- fjöllunar um tillögurnar er farið yfir stöðuna í tengslum við komandi kjaraviðræður og þar kemur ýmislegt athyglis- vert fram. Samtök iðnaðarins benda á að farsæl niðurstaða nýrra kjarasamninga sé „lykilþáttur í því að ná tökum á verðbólgu og vaxtastigi. Meginmarkmiðið ætti að vera að viðhalda stöðugleika á vinnumarkaði og varðveita þann árangur sem náðst hefur á síðustu árum, en frá árinu 2012 hefur kaupmáttur launa aukist um 55-57% á sama tíma og kaupmáttur hefur aukist um 2-10% á hinum Norður- löndunum.“ Þarna munar gríðarlega miklu og það er líka athyglis- vert sem bent er á að þrátt fyrir efnahagsáföllin, sem dundu yfir frá gerð síðustu kjarasamninga árið 2019, þá jókst kaupmáttur launa um 8,6% og kaupmáttur lægsta launataxta enn meira, eða um 9,7%. Þessi mikla kaupmáttar- aukning síðastliðinn áratug hefur leitt til þess að laun og tengd gjöld sem hlutfall af landsframleiðslu eru hvergi hærri en hér á landi í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Í skýrslunni segir að í fyrra hafi launakostnaður á unna stund verið um 30% hærri hér en að meðaltali í Evrópu og bent er á að sam- keppnisstaða innlendra fyrir- tækja gagnvart erlendum keppinautum hafi versnað og sé þung um þessar mundir. Verulegt áhyggjuefni er að hið opinbera, einkum þó sveit- arfélögin, hefur á síðustu ár- um leitt launaþróunina hér á landi á sama tíma og ríki og sveitarfélög hafa þanið út starfsemi sína. Í skýrslu SI er bent á að á „tíma Lífskjara- samningsins frá mars 2019 hafa laun hjá opinberum starfsmönnum hækkað um 18,7% samanborið við 14% á almenna markaðinum. Á þess- um tíma hefur opinberum starfsmönnum líka fjölgað umtalsvert eða um 12% á sama tíma og starfsmönnum á almennum vinnumarkaði fækkaði um 2%.“ Allir hljóta að sjá að þessi þróun getur ekki haldið áfram. Fyrirtæki á almennum markaði leggja grunninn að því með verð- mætasköpun sinni að hægt sé að halda úti starfsemi hins opinbera. Það að sífellt fjölgi í hópi opinberra starfsmanna á sama tíma og fækkun verður á almenna markaðnum, sam- hliða því að laun opinberra starfsmanna séu hækkuð langt umfram það sem al- menni markaðurinn ræður við, getur ekki endað nema með ósköpum. Stjórnvöld, bæði hjá ríki og sveitarfélögum, verða að taka starfsemi hins opinbera til gagngerrar endurskoðunar. Báknið hefur bersýnilega þanist út langt umfram það sem þjóðfélagið stendur undir til lengri tíma og þessi þróun er veruleg ógn við lífskjör í landinu til lengri tíma. Um leið og hið opinbera þarf að taka til hjá sér, draga úr umsvifum og fækka verk- efnum og starfsfólki, þarf það að bæta aðstæður almennra fyrirtækja. Þar er að mörgu að hyggja líkt og fram kemur í fyrrnefndri skýrslu, en eitt er að lækka tryggingagjaldið. Í könnun sem SI létu gera meðal fyrirtækja kom fram að lækkun tryggingagjalds er sú aðgerð sem stjórnvöld gætu gripið til sem mundi skipta hvað mestu máli fyrir rekst- urinn. Tryggingagjaldið er skatt- ur á launagreiðslur og er mjög íþyngjandi fyrir fyrir- tæki og dregur úr mögu- leikum til launagreiðslna og launahækkana. Tekjur rík- isins af gjaldinu voru innan við 100 milljarðar króna í fyrra en í ár er gert ráð fyrir að gjaldtakan verði komin í 118 milljarða og í 127 millj- arða á næsta ári. Þessi mikla hækkun á því sem tryggingagjaldið skilar ríkissjóði ætti að vera skýr skilaboð um að tímabært sé að ráðast í verulega lækkun þess. Hingað til hafa verið stigin smá skref í þeim efnum en þróun þessara tveggja ára sýnir að nú er þörf á mun myndarlegri aðgerðum. Ríkið telur sig eflaust ekki aflögu- fært frekar en fyrri daginn, en fyrirtækin í landinu eru það ekki heldur og þau þarf að setja í forgang til að hér sé unnt að halda uppi verðmæta- sköpun og lífskjörum. Laun eru hvergi hærri en hér á sama tíma og gjöld á laun eru orðin sligandi} Varasöm þróun launa og gjalda F yrir nokkru síðan staðfesti ég þriðju úthlutun úr Matvælasjóði, að þessu sinni hátt í sjötta hundrað milljónir til hinna ýmsu verkefna. Samtals hafa verið veittir úr sjóðn- um 1,6 milljarðar síðan honum var komið á. Hlutverk hans er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbún- aðar- og sjávarafurðum. Til mikils er að vinna. Síðustu ár hefur nýting sjávarfangs batnað mik- ið og með nýrri tækni hefur náðst að vinna verð- mæta vöru úr rækjuskel og roði. Aukið virði afurða skiptir máli Þessi þróun varð ekki af sjálfu sér heldur hef- ur hún kostað mikla fjárfestingu í gegnum árin en er nú að skila sér í því að fyrir afurðir, sem áður fóru helst á útsöluverði í útflutning í fóð- urgerð eða sambærilegt, fæst nú hærra verð. Sama þróun verður að eiga sér stað með aukaafurðir í landbúnaði. Þó að magn aukaafurða úr sláturhúsum verði aldrei af sömu stærðargráðu og aukaafurðir úr sjávarútvegi þá kann að vera að mikilvægi þeirra fyrir landbúnaðargeirann sé engu síðra. Nú þegar eru spennandi verkefni í gangi sem hafa það að markmiði að auka virði úr aukaafurðum búfjár, innmat og fleiru. Fyrirtæki sem fengu styrk úr fyrstu úthlutun sjóðs- ins eru byrjuð að hasla sér völl erlendis. Ein af forsendum þess að það takist að bæta afkomu sauðfjárbænda er að auka virði þeirra afurða sem þeir framleiða. Þar eru auka- afurðir hluti af heildarmyndinni þótt afkoma sauðfjárbænda muni ekki velta á innmat frekar en afkoma sjávarútvegs ræðst af roði. En eins og dæmin sanna úr sjávarútvegi þá getur aukið virði hliðarafurða skipt máli, þar sem þau hrá- efni eru þegar til staðar. Þekking sigrar sjúkdóma Fullnýting og markaðssetning nýrra afurða er ekki hið eina sem skiptir máli, heldur einnig þær miklu framfarir sem geta komið með þekk- ingu. Gullfundur varð á þessu ári þegar gen, sem veitir vernd gegn riðu, uppgötvaðist í ís- lensku sauðfé. En í hátt í 150 ár hefur riðuveiki valdið miklu tjóni í íslenskri sauðfjárrækt og reynst nánast ómögulegt að uppræta þrátt fyrir mikil, kostnaðarsöm og sársaukafull viðbrögð á borð við niðurskurð. En núna eru fyrirheit um að loksins sé fær leið til að vinna lokasigur á riðuveiki á Ís- landi. Verkefni sem snýr að því að gera greiningu á þessu geni hagkvæmari fékk stuðning matvælasjóðs í ár. Gullfundur sem þessi er til marks um hversu mikil verð- mæti þekking getur fært íslenskum landbúnaði og hversu mikilvægt verkefni það er að vernda og kortleggja erfða- auðlindir íslensks búfjár. Fjölmörg önnur mikilvæg verk- efni hafa hlotið stuðning sjóðsins og eru til marks um mik- ilvægi hans fyrir framtíð íslenskrar matvælaframleiðslu. svandis.svavarsdottir@mar.is Svandís Svavarsdóttir Pistill Matvælasjóður eykur virði og dýraheilbrigði Höfundur er matvælaráðherra STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen þessum hluta skýrslunnar kemur fram að á tímabilinu 2016 til 2021 hafi 13% mála legið óhreyfð í ár eða lengur á meðan þau voru til með- ferðar. Af þeim 148 málum sem lágu óhreyfð í meira en ár þá sátu 59 þeirra föst í rannsóknardeild í ár eða lengur. Þá lágu 38 mál af 148 lengi óhreyfð á ákærusviðum lög- reglustjóraembættanna. Eins og hamstrar á hjóli Helsta skýringin á því að málin lágu í dvala er sögð vera of mikill málafjöldi og mannekla á öllum stig- um. Sama er hvort litið er til rann- sóknardeilda, ákærusviðs lögreglu- stjóra eða héraðssaksóknara. Þá segir jafnframt í skýrslunni: „Í viðtölum við rannsóknarlögreglu- menn, lögreglufulltrúa og ákær- endur kom fram að starfsfólk sé með samviskubit yfir því að ná ekki að sinna verkefnum sínum og upplif- unin sé oft á tíðum að vera eins og hamstur á hjóli.“ Því sé bæði mikilvægt að fjölga starfsfólki og hlúa að því starfsfólki sem nú þegar hefur þekkingu og reynslu í málaflokknum. Málin eru einnig flókin og því geta tafir falist í tímafrekum liðum rannsóknar eins og tæknirann- sóknum og því þegar mál eru endur- send milli ólíkra deilda og embætta. Kynferðisbrotamál liggja lengi óhreyfð Skráð kynferðisbrot og afgreiðslutími mála 2016-2021 500 450 400 350 300 250 200 600 500 400 300 200 100 0 2016 2017 2018 2019 2020 2021 498 476 551 658 520 662 325 323 480 490 378 349 185 213 263 215 158 216 181 156 124 217 158 152 Fjöldi afgreiddra kynferðisbrotamála Þar af nauðgunarmál Fjöldi skráðra kynferðisbrota Þar af nauðgunarmál Meðalafgreiðslutími lokinna kynferðisbrotamála Nauðgunarmála (dagar) 343 413 253 232 342 280 Fjöldi mála D ag ar Heimild: Skýrsla starfshóps Ríkissaksóknara ummáls- meðferðartíma kynferðisbrota BAKSVIÐ Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is U ndanfarin ár og misseri hefur málsmeðferðartími kynferðisbrotamála al- mennt lengst. Sem dæmi voru nauðgunarmál, sem lauk árið 2021, að jafnaði 180 dögum lengur til meðferðar hjá lögreglu en mál sem lauk árið 2016. Er þar helst um að kenna mikilli manneklu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu starfshóps ríkissaksóknara um málsmeðferð- artíma kynferðisbrota. Starfshópurinn gerði töl- fræðilega úttekt á málum sem fengu lokaniðurstöðu í lögreglukerfinu frá 1. janúar 2016 til 31. desember 2021 og eru niðurstöður hennar birtar í skýrslunni. Meðallengd er 413 dagar Kynferðisbrotamálum hefur fjölgað verulega á tímabilinu. Á árinu 2021 voru skráð 33% fleiri kynferðisbrotamál en á árinu 2016. Á sama tíma hefur afgreiddum mál- um fjölgað, sérstaklega á árunum 2018 og 2019, en á árinu 2021 voru afgreidd 7% fleiri kynferðisbrotamál en á árinu 2016. En þrátt fyrir aukin afköst hef- ur málsmeðferðartíminn lengst. Þannig voru mál, sem lokið var árið 2021, að meðaltali 343 daga til með- ferðar hjá lögreglu og ákærendum lögreglustjóraembættanna, saman- borið við 253 daga meðalmeðferðar- tíma mála sem lauk á árinu 2016. Því tók að meðaltali 90 dögum leng- ur að afgreiða málin. Þegar nauðgunarmál voru skoðuð sérstaklega kom fram að frá 2016 til 2021 hefur skráðum málum fjölgað um 17% en nokkrar sveiflur eru á milli ára. Afgreiddum málum hefur hins vegar fækkað um 9% og málsmeðferðartími lengst um 77%. Mál, sem lauk árið 2021, voru að jafnaði um 180 dögum lengur til meðferðar en mál sem afgreidd voru árið 2016, eða 413 daga í stað 232. Þau mál sem lengstan tíma tóku í kerfinu voru skoðuð sér- staklega, auk hundrað mála af handahófi. Þá kom í ljós að stór hluti málanna lá á einhverju stigi í dvala og engar rannsóknaraðgerðir voru í gangi eða önnur meðferð. Í Að mati starfshóps ríkissak- sóknara um málsmeðferðar- tíma kynferðisafbrotamála er ýmislegt sem má betur fara í afgreiðslu málanna. Þótt mannekla sé helsta skýringin á því að mál liggi óhreyfð megi einnig bæta verkferla. Hópurinn leggur til skýrari forgangsröðun mála, betri nýt- ingu á fjarfundarbúnaði við skýrslutökur, að lagt sé mat á hvort senda megi mál áfram innan kerfis þrátt fyrir að sum gögn vanti og að stuðlað verði að því að mál séu ekki endur- send í heilu lagi milli embætta. Þá er lagt til að skerpt verði á skráningum er varða tafir í málaskrárkerfi þar sem dóm- stólar eru í auknum mæli farn- ir að grípa til þess að milda refsingu sakborninga vegna óútskýrðra tafa á meðferð mála. Vilja bætta verkferla TILLÖGUR STARFSHÓPS RÍKISSAKSÓKNARA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.