Morgunblaðið - 29.09.2022, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022
www.gilbert.is
FRISLAND 1941
TÍMALAUS GÆÐI
VIÐ KYNNUM
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Indie-poppsveitin Vök gaf út sína
þriðju breiðskífu síðastliðinn föstu-
dag. Platan, sem inniheldur 12 lög,
er samnefnd hljómsveitinni og hefur
hún strax vakið mikla athygli. Það
er þó fleira á prjónum sveitarinnar
vinsælu, sem hefur sigrað hjörtu
um alla Evrópu síðastliðin ár, en
sveitin, sem fagnar 10 ára afmæli á
næsta ári, byrjaði að skipuleggja
ferðalag um Bandaríkin í vikunni.
Hljómveitina skipa þremenning-
arnir Margrét Rán Magnúsdóttir
söngkona og hljómborðsleikari,
Einar Stefánsson bassa- og gítar-
leikari og Bergur Dagbjartsson
trommuleikari en þau Margrét og
Einar mættu í Ísland vaknar og
ræddu um nýju plötuna og gamla og
nýja tíma við þau Kristínu Sif og
Ásgeir Pál.
Síðast gaf Vök út plötu árið 2019,
verðlaunaplötuna In the Dark. Í
ársbyrjun 2020 hófst vinna í nýju
plötunni.
„Við höfum í raun aldrei tekið
okkur eins langan tíma í að vinna í
breiðskífu,“ sagði Einar í þættinum.
Hafa rifist tvisvar á tíu árum
Þau Margrét rifjuðu upp upphaf
Vakar, sem Margrét stofnaði fyrir
Músíktilraunir sem sveitin vann
2013. Þá var Einar enn í annarri
hljómsveit að keppa við Vök í
keppninni. Hann slóst þó í hópinn
2015 eftir mannabreytingar hjá
sveitinni en þau Margrét eru miklir
vinir.
„Við erum ekki mikið að rífast,
við erum frekar góðir vinir,“ sagði
Margrét í þættinum.
„Ég held við höfum rifist svona
tvisvar sinnum í okkar tíu ára vin-
áttu. Það voru bæði mjög fáránlega
heimskuleg atriði, þannig að það
þarf mikið til,“ sagði Einar og upp-
skar hlátur í stúdíóinu. Þau vildu þó
ekkert fara út í það hver þessi „fá-
ránlega heimskulegu atriði“ voru.
„Þetta er á bak við okkur,“ sagði
Einar hlæjandi.
Spurð út í það hvernig lög sveit-
arinnar verða til sagði Margrét að
þau fylgdu oftast ákveðinni rútínu
við lagasmíðina.
„Rútínan er svolítið þannig að ég
bý til ákveðið demó, ákveðinn grunn
– og Einar setur svo sitt krydd.
Hann svona „spæsar“ þetta,“ lýsti
Margrét.
Langaði að verða
alþjóðlegt band
Einar hefur einnig komið mikið
að textasmíði fyrir nýju plötuna en
flest lög Vakar eru á ensku.
„Við byrjuðum á íslensku en það
var eiginlega algjörlega til að heilla
dómarana í Músíktilraunum,“ sagði
Margrét hlæjandi og bætti glettn-
islega við: „Og það virkaði. Hún [ís-
lenskan] er líka rosalega falleg
en … mig langaði alltaf að verða
meira svona alþjóðlegt band. En
mér finnst mjög skemmtilegt hvað
við höfum náð Íslandi vel miðað við
að við syngjum á ensku. Þannig að
það er geggjað,“ sagði Margrét.
Stefna á næstu heimsálfu
Spurð út í ferðalög sveitarinnar
erlendis staðfestu þau að sveitin
væri byrjuð að skipuleggja túr um
Evrópu og vonandi Bandaríkin í
vikunni.
„Við höfum ekki mikið verið þar [í
Bandaríkjunum] en okkur langar
aðeins að „test the waters“,“ sagði
Margrét.
Sveitin hefur þó ferðast um nán-
ast alla Evrópu síðastliðin ár.
„Við höfum tekið svona eitt tvö
tónleikaferðalög að jafnaði á ári al-
veg síðan 2015-16,“ bætti Einar við.
Minnst hefur sveitin ferðast um
Norðurlöndin en það var ekki fyrr
en með síðustu plötu sem hún ferð-
aðist í meira mæli til „nágrann-
anna“.
Sveitin hefur þó mikið spilað í
Þýskalandi, Bretlandi og Póllandi
og víðar í Evrópu þar sem aðdá-
endahópurinn er stór.
Innblástur frá dimmum tíma
Eitt lag af plötunni Vök hefur
vakið sérstaka athygli en það er
lagið Something Bad en Margrét
samdi það þegar hún upplifði
dimma tíma, sem endurspeglast vel
í laginu.
„Þetta lag er mjög „dark“. Ég
sem þetta í byrjun ársins 2020. Það
voru ógeðslega mörg flugslys, sem
var ógeðslega „scary“. Afi minn
greindist með ólæknandi krabba-
mein og Covid var á leiðinni til
landsins. Ég var ein í stúdíóinu
mínu og heyrði í vindinum og hugs-
aði: Það er eitthvað grimmt á leið-
inni. Something bad fjallar um ná-
kvæmlega það,“ sagði Margrét.
Útgáfutónleikar fyrir plötuna
Vök með Vök verða í Gamla bíói 21.
október næstkomandi.
„Við ætlum að tjalda öllu til og
hafa gaman,“ sagði Margrét en
sveitin heldur aðra útgáfutónleika á
Græna hattinum á Akureyri 22.
október.
Ljósmynd/Dóra Dúna
Það er nóg á prjónum stórsveitarinnar Vakar sem
gaf út breiðskífuna Vök á dögunum. Sveitin vonast til
að geta þreifað fyrir sér á bandarískum markaði á
næstunni, en Vök fagnar tíu ára afmæli á næsta ári.
Fann að það væri eitt-
hvað grimmt á leiðinni
Spennandi Hljómsveitin
Vök stefnir út fyrir
heimsálfuna á næstunni
og ætla að þreifa sig
áfram í Bandaríkjunum.
K100 Þau Margrét og Einar mættu í K100-stúdíóið og ræddu um nýju plöt-
una og komandi tíma við þau Kristínu Sif og Ásgeir Pál.
Vök Margrét Rán,
Einar Stef og Bergur
Dagbjarts skipa Vök
sem gaf út sína þriðju
breiðskífu, Vök,
á dögunum.