Morgunblaðið - 29.09.2022, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.09.2022, Blaðsíða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022 Fuglar Fjórir sendlingar þenja vængina er þeir fljúga meðfram ströndinni. Logn var úti, sjórinn stilltur og veðrið því afar hagstætt fyrir fuglana sem þekkjast á sínu kubbslega útliti. Kristinn Magnússon Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins hafa lagt til að gripið verði til aðgerða í því skyni að stemma stigu við hættulegum hraðakstri léttra bifhjóla á göngu- og hjólreiðastígum borg- arinnar, sem og á gangstéttum. Aðgerða er þörf þar sem mikil brögð eru að því að slíkum bif- hjólum, bæði rafknúnum og bensíndrifnum, sé ekið eftir göngu- og hjólastígum, langt yfir þeim lögbundna hámarkshraða sem gildir um bifhjól á slíkum stígum. Aðgerð- irnar verði þrenns konar: 1. Betri merkingar. Setja þarf upp skýrar merkingar við göngu- og hjólreiðastíga borgar- innar um að á þeim gildi 25 km hámarkshraði léttra bifhjóla. 2. Aukin fræðsla. Ráðist verði í fræðsluátak í skólum borgarinnar til að kynna gildandi reglur um akstur léttra bifhjóla í þéttbýli. Kynntar verði reglur um hámarks- hraða á göngu- og hjólastígum, hjálmaskyldu, hvar megi hjóla o.s.frv. Óskað verði eftir samstarfi við Samgöngustofu að þessu leyti. 3. Löggæsla. Óskað verði eftir því að lögreglan herði umferðareft- irlit á göngu- og hjólreiðastígum borgarinnar og komi í veg fyrir að vélknúnum hjólum sé ekið þar yfir löglegum hámarkshraða. Oft hefur legið við stórslysi Frá því undirritaður flutti tillögu um málið í borgarstjórn í síðustu viku hafa hon- um borist fjölmargar ábendingar um stöðugan háskaakstur á göngu- og hjólreiðastígum borg- arinnar. Meirihluti bifhjólamanna fer að reglum, samt er ljóst að of stór hluti þeirra virð- ir ekki hraðareglur. Nefnd eru mörg dæmi um að rafhlaupahjóli hafi verið ekið svo hratt ná- lægt gangandi eða hjólandi vegfarendum að leg- á neyðarmóttöku vegna slysa á rafhlaupahjól- um. Mikilvægt að bregðast strax við Ljóst er að bregðast þarf við sem fyrst og hér geta Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög gegnt mikilvægu hlutverki. Strax í haust er hægt að setja upp skýrar merkingar um há- markshraða en nú virðist þær vanta með öllu. Þetta myndi skipta máli því algengt er að bif- hjólamenn vísi til þess að hvergi séu merkingar um gildandi hámarkshraða þegar fundið er að hraðakstri þeirra á göngu- og hjólastígum. Þá gæti lögreglan hert umferðareftirlit á slíkum stígum án fyrirvara. Ekki tekur heldur langan tíma að hrinda af stað fræðsluátaki um þessi mál í skólum borgarinnar. Í þessu máli þurfa opinberir aðilar að vinna hratt og vel saman í stað þess að vísa hver á annan. Kjartan Magnússon » 17% þeirra sem slösuðust alvarlega í umferðinni í fyrra voru á rafhlaupahjól- um, þótt umferð þeirra væri innan við 1% af allri umferð. Kjartan Magnússon Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. kjartan.magnusson@reykjavik.is Stöðvum háskaakstur á göngu- og hjólastígum ið hafi við stórslysi. Heyrst hefur frá foreldrum sem banna nú börnum sínum að fara út á ákveðna göngu- og hjólastíga því þeir séu orðnir að hraðbrautum fyrir vélknúin farartæki. Að undanförnu hafa komið fram uggvæn- legar upplýsingar um fjölgun slysa þar sem raf- hlaupahjól koma við sögu. 42% þeirra sem slös- uðust alvarlega í umferðinni á síðasta ári voru svokallaðir óvarðir vegfarendur, þ.e. gangandi, hjólandi eða á rafhlaupahjóli. 17% þeirra sem slösuðust alvarlega í umferðinni á því ári voru á rafhlaupahjólum en umferð þeirra er þó innan við 1% af allri umferð. Fram kemur að mörg ung börn, allt niður í átta ára gömul, hafi komið Lagt er til í fjárlagafrumvarpi næsta árs að framlög til utanrík- ismála verði aukin um nokkuð hundruð milljónir. Þetta hefur verið gagnrýnt á þeim for- sendum að fjármununum hefði verið betur varið í aðra mikil- væga málaflokka. Því er til að svara að vægi utanríkismála hef- ur aukist umtalsvert þar sem umgjörð öryggismála í Evrópu hefur gjörbreyst á síðustu mán- uðum. Ástæðan er allsherjarinn- rás Rússa í Úkraínu í febrúar. Áhrifin af átök- unum á Íslendinga munu verða víðtækari en marga kann að gruna. Í fyrsta lagi breytist ör- yggisumhverfið á íslensku yfirráðasvæði. Þetta kemur til af óförum rússneska heraflans í Úkraínu. Þar hefur komið í ljós vanhæfi land- hers þeirra og flughers. Þá stendur eftir sjó- herinn sem Rússar munu í auknum mæli beita til að reyna að sýna að þeir séu mikilvægt her- veldi. Stór hluti flota þeirra er staðsettur í Norður-Rússlandi. Til að komast út á heimshöfin verða skipin og kafbátarnir að sigla fram hjá Ís- landi. Atlantshafsbandalagið (NATO) og þá sérstaklega Bandaríkin munu vilja fylgjast með þessum flotaferðum. Þegar við bætist að Ísland er mik- ilvægur hlekkur milli Norður- Ameríku og Evrópu nú þegar NATO ætlar að efla varnir sínar í Austur-Evrópu má reikna með að Bandaríkin hafi áhuga á að efla starfsemi sína í Keflavík á næstu árum. Ýmsar breytingar eru líka að verða á örygg- ismálum í okkar heimshluta sem munu hafa áhrif hér á landi. Framtíð Heimskautsráðsins (e. Arctic Council) er óviss. Samstarf Rúss- lands, sem er mikilvægur hlekkur í því vegna legu landsins, við önnur ríki í ráðinu er í upp- námi. Fjandskapur Rússa og hinna heim- skautsríkjanna sjö mun leiða til frekari hern- aðaruppbyggingar á svæðinu. Rússar hafa í talsverðan tíma verið að efla herafla sinn þar og nú eru miklar líkur á því að Bandaríkin láti til sín taka þarna. Líklegt er að samvinna Vesturveldanna á norðurslóðum færist meira undir forræði NATO, bæði vegna þess að Kan- ada hefur látið af andstöðu sinni við afskipti bandalagsins af svæðinu og ekki síður vegna þess að Svíþjóð og Finnland eru á leið inn í Atlantshafsbandalagið. Afstaða almennings Hér hefur aðeins verið vikið að helstu breyt- ingunum sem eru að verða á öryggismálum á Norður-Atlantshafssvæðinu. Við Íslendingar eigum að reyna að hafa eins mikil áhrif á þessi mál og við getum, þjóðinni til heilla. Mikil- vægur þáttur í því ferli er að þeir sem telja sig hafa eitthvað til málanna að leggja hiki ekki við að láta í sér heyra. Þetta á ekki síst við um ungt fólk því líklegt er að þeim sem ólust upp eftir kalda stríðið finnist utanríkismál ekki jafn mikilvægur málaflokkur og eldri kyn- slóðum. Eðlilegt er að landsmenn deili um áherslur á þessu sviði en ákjósanlegt er að umræðan sé á málefnalegum grunni. Fyrir nokkrum árum samþykkti Alþingi þjóðarör- yggisstefnu þar sem grundvallaratriði utan- ríkisstefnu landsins eru sett fram. Þeir sem vilja láta taka sig alvarlega í umræðunni um þennan málaflokk ættu að ræða öryggismál á þeim grundvelli sem þar er settur fram. Svo þarf að varast eins og hægt er ótraustar eða beinlínis ósannar upplýsingar sem því miður er nóg framboð af í nútímasamfélagi. Nái landsmenn að ræða málin ítarlega og af skyn- semi eigum við að geta haft meiri áhrif á þró- un öryggismála í okkar heimshluta en ætla mætti af fjölda landsmanna. Kristinn Valdimarsson » Vegna þess að öryggis- umhverfi Evrópu er gjör- breytt er eðlilegt að stjórnvöld eyði meiru í málaflokkinn. Landsmenn þurfa að hugsa meira um þessi mál. Kristinn Valdimarsson Höfundur er stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur. kvaldimars@yahoo.com Mikilvægur málaflokkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.