Morgunblaðið - 29.09.2022, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022
Starfshópur um neyðarbirgðir birti
nýja skýrslu í gær. Þar segir að full
þörf sé á að ráðast í nýtt átak til að
hvetja Íslendinga til að koma sér
upp nokkurra daga birgðum af
nauðsynjavörum. Þetta sé nauð-
synlegt til að mæta hugsanlegum
áföllum af völdum hamfara.
Vísað er til þess að við slíkar að-
stæður geti almenningur dregið úr
álagi á viðbragðskerfið með því að
búa sig undir áföll. Mörg ríki hafi
hvatt borgarana til að koma sér
upp birgðum til nokkurra daga,
ýmist þriggja daga eða sjö daga.
Rauði krossinn hafi farið af stað
með slíkt átak fyrir nokkrum árum
undir heitinu 3 dagar. „Full þörf er
á því að blása lífi í það verkefni á
nýjan leik,“ segir í skýrslunni.
Um er að ræða starfshóp, sem
forsætisráðherra skipaði árið 2018
um nauðsynlegar birgðir til að
tryggja lífsafkomu þjóðarinnar á
hættutímum. Veitir Þórunn J. Haf-
stein, ritari þjóðaröryggisráðs,
honum forstöðu. Í skýrslunni er
lagt til grundvallar að eftirtaldar
birgðir þurfi að vera tiltækar: Mat-
væli og nauðsynleg aðföng vegna
matvælaframleiðslu, jarðefnaelds-
neyti, lyf, lækningatæki og hlífð-
arbúnaður, viðhaldshlutir og þjón-
usta vegna mikilvægra innviða
samfélagsins, hreinlætisvörur og
sæfivörur en þar er m.a. er átt við
sótthreinsiefni, skordýra- og jurta-
eitur.
Í skýrslunni segir að Ísland sé
mjög háð flutningum til og frá land-
inu. Mjög margt af því sem teljist
til grundvallarlífsnauðsynja sé al-
gerlega háð innflutningi til lands-
ins. Rof á flugsamgöngum, sér-
staklega milli landa, hafi fljótt áhrif
á þjóðarhag.
Ef Keflavíkurflugvöllur lokast
hafi það fljótt alvarlegar afleiðingar
fyrir farþegaflutninga og inn- og út-
flutning, t.d. ferskvöru og lyfja.
Flugsamgöngur geti rofnað vegna
náttúruvár, t.d. eldgoss, jarð-
skjálfta eða veðurofsa, sem og
manngerðrar hættu, t.d. skemmd-
arverka, netárása eða hernaðar.
Ekkert hættumat
Fram kemur að ekki hafi verið
unnið heildstætt hættumat fyrir
flugvöllinn. Til þess vanti sérhæft
mat á náttúruvá, sérstaklega með
tilliti til stærri jarðskjálfta á flug-
brautir og -byggingar, þar með talið
innviði í flugstöð.
Í skýrslunni sé leitast við að skil-
greina hvaða vörur og tæki teljist
vera nauðsynlegar til að tryggja lífs-
afkomu þjóðarinnar og þurfi að vera
til á hættustundu svo unnt sé að
vernda líf og heilsu almennings,
tryggja órofa virkni mikilvægra inn-
viða samfélagsins og þjónustu svo
unnt sé að sinna brýnustu þörfum
íbúa og samfélags við slíkar að-
stæður. M.a. er bent á að lyfjabirgð-
ir hafi farið minnkandi síðastliðin ár
og það verði að teljast áskorun á
hættustundu.
Starfshópurinn leggur m.a. til að
lögfest verði 90 daga lágmarks-
viðmið olíubirgða hér á landi og
skoða megi að innleiða slíka kröfu í
skrefum. Þá segir í skýrslunni að
reynsla síðustu ára sýni að þrjár
slökkviskjólur fyrir þyrlur þurfi að
vera til í landinu ásamt tilheyrandi
búnaði til þess að bregðast við gróð-
ureldum.
Starfshópurinn leggur til að for-
sætisráðuneytið hafi forgöngu um
samvinnu hlutaðeigandi ráðuneyta
og stofnana við að koma á laggirnar
miðlægum rafrænum upplýsinga-
grunni. Í hann verði skráðar upplýs-
ingar um neyðarbirgðahald. Tengja
þurfi fyrirliggjandi gagnagrunna,
t.d. Orkustofnunar og Lyfjastofn-
unar og búa til nýja á hverju sviði.
Aðgengi að slíkum upplýsingum í
rauntíma sé forsenda þess annars
vegar að unnt sé að leggja mat á
raunverulega birgðastöðu og hins
vegar að ríkisstjórnin geti tekið mál-
efnalega ákvörðun um heimild til að
nýta neyðarbirgðir, forgangsraðað
og stjórnað þeirri nýtingu.
Samráðsferli að hefjast
Forsætisráðuneytið segir að sam-
ráðsferli og greiningarvinna sé nú
hafin eða að hefjast hjá hlutaðeig-
andi ráðuneytum í samráði við hag-
aðila. Verið sé að undirbúa nánari
útfærslu á tillögum starfshópsins.
Gert er ráð fyrir að þessari vinnu
ráðuneytanna ljúki á fyrsta ársfjórð-
ungi ársins 2023. Þá liggi fyrir yfirlit
um nauðsynlegar birgðir á hverju
sviði og mat á birgðastöðu. Jafn-
framt liggi fyrir hvernig upplýs-
ingagjöf um birgðastöðu í rauntíma
verði hagað gagnvart eftirlits- og
umsjónaraðila innan hvers geira.
Þörf á nýju átaki um neyðarbirgðir
- Starfshópur um neyðarbirgðir segir fulla þörf á að endurvekja átak um að Íslendingar komi sér
upp birgðum í nokkra daga til að mæta áföllum - Vill lögfesta 90 daga lágmarksviðmið olíubirgða
Morgunblaðið/Ómar
Matvæli Starfshópur telur þörf á að endurvekja átak um að landsmenn komi sér upp birgðum til að mæta áföllum.
KRINGLAN - SKÓR.ISKRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
STEINAR WAAGE
MIKIÐ ÚRVAL AF ECCO GRAINER VETRARSKÓM
HERRARDÖMUR
22.995 kr. / St. 36-42
Vnr. E-214703
22.995 kr. / St. 36-42
Vnr. E-214703
22.995 kr. / St. 40-47
Vnr. E-214714
22.995 kr. / St. 36-42
Vnr. E-214713
22.995 kr. / St. 36-42
Vnr. E-214713
22.995 kr. / St. 40-47
Vnr. E-214714
22.995 kr. / St. 36-42
Vnr. E-214723
22.995 kr. / St. 36-42
Vnr. E-214723
22.995 kr. / St. 40-47
Vnr. E-214704
22.995 kr. / St. 40-47
Vnr. E-214704
22.995 kr. / St. 40-47
Vnr. E-214724
22.995 kr. / St. 40-47
Vnr. E-214724