Morgunblaðið - 29.09.2022, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022
Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100
www.spennandi-fashion.isOpið: Mán-fös: 11-18 Lau: 12-15
LURDES BERGADA BARCELONA
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Nýjar vörur streyma inn
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á facebook
100% bómull
Str. S-XXL/XXXL
peysur
B E R N H A R Ð
L A X D A L
Skipholti 29b • S: 551 4422
LAXDAL er í leiðinni
Skoðið
netverslun
laxdal.is
VETRAR-
YFIRHAFNIR
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Björgun hefur selt dýpkunarskipið
Dísu úr landi. Skipið hefur þjónað
hér á landi í rúman áratug, ekki síst
Landeyjahöfn, fyrst undir heitinu
Skandia en lengst af undir Dísu-
nafninu.
Serbneskt fyrirtæki keypti Dísu
og hyggst nota skipið í verkefni í
Litháen, til að byrja með, eftir því
sem næst verður komist. Eysteinn
Jóhann Dofrason, framkvæmdastjóri
Björgunar, segir að skipið sé komið
af íslenskri skipaskrá. Nýir eigendur
séu að laga það svo hægt sé að sigla
því eða draga til meginlands Evrópu.
„Þeir geta alveg dælt heilmikið
með henni. Dísa er orðin þreytt en
ekki ónýt. Það þarf bara að laga hana
aðeins til. Búið er að endurbæta
skipið mikið frá því það kom frá Dan-
mörku þar sem það átti að fara í
brotajárn. Það hefur dælt 400 þús-
und rúmmetrum af efni á ári, síðustu
tvö árin,“ segir Eysteinn.
Dísa kom til landsins í byrjun árs
2011 og hét þá Skandia. Íslenska
gámafélagið tók það á leigu í Dan-
mörku til að dýpka Landeyjahöfn en
félagið varð hlutskarpast í útboði á
verkinu. Björgun tók síðar yfir
samninginn og skipið, að beiðni
Vegagerðarinnar.
Dýpkun í Landeyjahöfn hefur ver-
ið eitt helsta verkefni skipsins hér á
landi allan tímann.
Gengur vel hjá Álfsnesi
Björgun hefur keypt nýtt og öflugt
dýpkunarskip, meðal annars til að
dýpka í og við Landeyjahöfn. Fékk
það nafnið Álfsnes. Skipið kom að
Landeyjasandi í fyrsta skipti að
kvöldi síðastliðins mánudags og hef-
ur verið að dýpka innsiglinguna og
rifið fyrir utan. Það er talið nauðsyn-
legt vegna þess að gamli Herjólfur á
að leysa núverandi ferju af á meðan
hún fer í slipp.
Eysteinn segir að vel gangi hjá
Álfsnesi. Skipstjórnarmennirnir séu
ánægðir með virkni skipsins.
Dísa er seld til Serbíu
- Hefur þjónað
Landeyjahöfn í
rúman áratug
Morgunblaðið/Hallur Már Hallsson
Landeyjahöfn Dísa dýpkar höfnina fyrir gamla Herjólf á árinu 2019.