Morgunblaðið - 29.09.2022, Side 18

Morgunblaðið - 29.09.2022, Side 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022 Hafnartorg Gallery | Sími 588 0620 | casa.is Haustfögnuður á Hafnartorgi Opið til kl. 20:00 í kvöld 29.09. 10-20% afsláttur af öllu í Casa BOUTIQUE Koma þarf böndum á verðbólgudrauginn, auka framboð á íbúðarhúsnæði, koma með raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum og breyta áherslum í skólastarfi þannig að börnum líði sem best og skólarnir séu góður vinnustaður allra. Þetta eru í stuttu máli sagt svör fólks sem Morgunblaðið ræddi við í vikunni og spurði hver væru brýnustu verkefni stjórnvalda á Íslandi nú á haustdögum á því herrans ári 2022. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mannlíf Kátir strákar á leiðinni á fótboltamót. Velferð barna er eitt af mikilvægustu málum samfélagsins og að tryggja öllum tækifæri til þátttöku og geta skapað sér og sínum gott líf. „Mikilvægt er að þau sem völdin hafa vinni að upp- byggingu húsnæðis með það að leiðarljósi að ungt fólk geti eignast þak yfir höfuðið. Uppbygging hef- ur verið mikil hér Ölfusi þar sem ég bý og stefnt að enn meiru slíku í nánustu framtíð,“ segir Magnþóra Kristjánsdóttir, grunnskólakennari í Þor- lákshöfn og nýr útgefandi bæjarmiðilsins þar í sveit, sem er hafnarfrettir.is. „Brýnt er að huga að náttúrunni og hvern- ig við getum breytt venjum okkar þar. Styrkja þarf skóla og styðja við kennara og annað starfsfólk því álagið er stundum ómanneskjulegt. Of stórir bekkir með of fáu starfsfólki er ekki vænleg leið til árangurs. Þá hefur sýnt sig síðustu ár að kulnun er stórt vandamál. Því tel ég mikilvægt að skoða vel hvernig hægt er að styðja betur við skólana svo nemendur fái sem mest út úr náminu, sem og að starfsfólk njóti starfs síns til fulls.“ Styðja vel við skólastarfið „Byggjum fleiri íbúðir. Í mínum huga eru þetta lyk- ilorð og stóra verkefnið sem stjórnmálamenn verða að leysa,“ segir Kristján Baldursson, löggiltur fasteignasali hjá Trausta. „Brjóta þarf lönd undir ný hverfi með sterkum inn- viðum. Í þeim orðum felst að strax frá byrjun sé hugsað fyrir þörfum væntanlegra íbúa með skólum, íþrótta- aðstöðu og slíku. Séu þessir þættir í lagi má gera ráð fyrir að gott samfélag skapist að nokkru leyti af sjálfu sér. Öryggi í húsnæðis- málum er eitt mikilvægasta mál hvers tíma. Síðustu árin hefur verið hörgull á húsnæði á höfuðborgarsvæðinu, þar sem tugir kaup- enda hafa bitist um sömu íbúðina. Mikilvægt er að ná verðbólgunni betur niður og lækka vexti. Til að svo megi verða þarf rétt skilyrði á fasteignamarkaði og stóra málið þar er eins og ég sagði í upphafi; byggjum fleiri íbúðir.“ Byggja meira og brjóta lönd „Verðbólgan æðir áfram og ég borga 100 þúsund krónur af íbúðaláni. Upp- hæðin hefur hækkað um helming á fáum mán- uðum,“ segir Eiður Smári Björnsson sem rekur fyrirtækið EB-flutninga. „Vinur minn keypti íbúð á dögunum, en ætlar að selja aftur nú og flytja í hjólhýsi. Segir eignamynd- un ómögulega nú. Þetta allt er slæmt.“ Velferðarkerfið er völundarhús, eins og Eiður Smári kynnist nú. Þau Kankana Wannakam kona hans eignuðust dóttur í síð- asta mánuði og segir faðirinn að best hefði komið út í sinni fjölskyldu að móðirin tæki sem mest af fæðingarorlofi. Slíkt fáist þó ekki. „Heilbrigðisþjónusta, skólar og fleira. Þetta er heilmikið að læra fyrir þau sem eru að eignast fyrsta barn. En ég kvarta ekki því í vinnunni er nóg að gera og ég er með sjö bíla í útgerð. Efnahagslífið er á fullum snúningi og sérstaklega er innflutningur mikill nú.“ Verðbólga og völundarhús „Efnahagsmálin snerta okkur öll og ástandið und- anfarin misseri hefur bitið verulega. Há verðbólga til langs tíma er graf- alvarleg,“ segir Unnur Val- borg Hilmarsdóttir, sveit- arstjóri í Húnaþingi vestra. Átak í samgöngumálum, svo sem í viðhaldi á mann- virkjum, er mikilvægt, ekki síst fyrir byggðir úti á landi, segir sveitarstjórinn. Slíkum verk- efnum hafi ekki verið sinnt sem vera skyldi síðustu ár. Slæmar afleiðingar þess séu nú að koma í ljós. Skv. fyrirliggjandi samgöngu- áætlun taki áratugi að koma málum í lag. „Þá þarf að gefa landbúnaðarmálum gaum, vegna þeirrar þýðingar sem greinin hefur fyrir hinar dreifðari byggðir. Búa þarf bænd- um mannsæmandi starfsskilyrði til að tryggja búsetu til sveita. Halda þarf uppi eðli- legri framleiðslugetu og þar með tryggja fæðuöryggi.“ Landbúnaður og fæðuöryggi „Jöfn tækifæri til náms eru afar mikilvæg og þau verða stjórnmálamenn að tryggja,“ segir Andrea Edda Guðlaugsdóttir, for- maður nemendafélagsins, Inspector Scholae, við Menntaskólann í Reykjavík. „Námslán geta verið nauðsynleg. Hins vegar kemur alltaf að skuldadögum og margir vilja því ekki taka slík lán. Fara frekar að vinna og slá frekari skólagöngu á frest, sem er varhugavert. Mörg dæmi eru um að þau sem hverfa frá námi snúi ekki aftur og festist í láglaunastörfum. Slíkt er öllum dýrt. Betra væri því að taka upp námsstyrki.“ Umhverfismál eru ungu fólki ofarlega í huga, segir Andrea Edda, sem kallar eftir raunverulegum aðgerðum í málaflokknum. „Sumar ráðstafanir í umhverfis- málum eru sýndar- mennska og breyta litlu í stóra samhenginu. Að banna notkun plaströra á veitingahúsum og plast- poka í verslunum og inn- leiða pappír þess í stað skiptir litlu fyrir umhverfi okkar á meðan bensínbílar aka um göturnar og mengandi álver og verksmiðjur eru starfræktar. Slíka starfsemi og samgöngumál almennt þarf að endurskoða með meiri samfélagsfræðslu í framhaldsskólunum.“ Námsstyrkir bjóðist ungu fólki „Farsældarlögin, sem lúta að velferð barna, unglinga og fjölskyldna, sem sett voru fyrir nokkrum misserum, eru kærkomin. Því miður hafa þó nægir fjármunir ekki fylgt þeim svo öll markmiðin náist í gegn. Þarna hafa stjórnvöld, bæði ríki og sveit- arfélög, því mikið verk að vinna,“ segir Björn Már Sveinbjörnsson Brink, félagsráðgjafi í Hafnarfirði. Hann starfrækir Vopnabúrið, þjón- ustu við börn og ungmenni sem glíma við fjölþættan vanda. Úrræði þetta er aðlagað hverju barni og tek- ur jafnt á andlegum sem líkam- legum þáttum í lífi þeirra sem styrkja þarf. Hreyfing, næring og svefn eru grunnatriðin í þessu starfi. Þjónusta Vopnabúrsins felur í sér ráðgjafar- og stuðningsviðtöl, með- ferðarvinnu, líkamsrækt, tóm- stundir og félagslega virkni, tals- mannsþjónustu og fræðslu. Þá er unnið meðal annars út frá ýmsum meðferðaráætlunum sem fyrir liggja. „Reynslan er góð og hefur sannað gildi sitt,“ segir Björn sem byggir vinnu sína á rannsóknum og gagn- reyndum aðferðum í félagsráðgjöf. „Stuðningi við ungt fólk í vanda er annars oft sinnt af sjálfstætt starf- andi fagfólki og frjálsum félaga- samtökum, sem jafnvel fjármagna starfsemi sína með því að sækja styrki út í bæ. Slíkt gengur auðvitað ekki upp til lengdar. Mikilvægt sam- félagslegt starf þarf fyrirsjáanleika og föst framlög frá hinu opinbera. Öðruvísi er varla hægt að þróa þessa starfsemi áfram og koma með nýj- ungar. Sjálfur hef ég til dæmis talað fyrir því að koma þurfi með sértækt úrræði þar sem betur er hugað að sjálfstrausti ungmenna og að þeim sé veitt aðstoð við tengslamyndun og félagslega virkni. Horfa til styrk- leika hvers og starfa út frá því. Þátt- taka fagfólks sem þekkir til lífs og líðanar ungmenna er mikilvæg í slíkri vinnu.“ Margir krakkar sem standa á krossgötum og finna sig ekki í dag- legu lífi hafa mikla hæfileika á ákveðnum sviðum sem mikilvægt er að horfa til, segir Björn. „Að gefa þeim til dæmis tækifæri með stuðn- ingi úti í atvinnulífinu getur verið snjall leikur. Því miður er sá rammi sem skólakerfið starfar eftir mjög ferkantaður, sem hamlar því að hægt sé að styðja þessa krakka sem vera skyldi, sem þó skiptir svo óend- anlega miklu máli fyrir líðan þeirra og í raun samfélagið allt. Hver króna úr opinberum sjóðum, sem varið er í starf með ungu fólki, skilar sér margfalt á seinni stigum.“ Farsældarstarfið þarf fé

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.