Morgunblaðið - 29.09.2022, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 29.09.2022, Qupperneq 20
20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022 öll velk omin! Stefnumót við vísindafólk! u ót við vísindafólk! fn m t við vísindafólk!vísindavakaka i dav ka Laugardalshöll laugardagur 1. október kl. 13.00 - 18.00 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Framkvæmdir eru hafnar við að um- breyta nágrenni Hlemmtorgs. Laugavegi hefur verið lokað fyrir bílaumferð á kaflanum frá Hlemmi að Snorrabraut og verður sú lokun til frambúðar. Fólksbílar munu því ekki framar aka framhjá Hlemmtorgi, sem í eina tíð var helsta bílatorg Reykjavíkur. Hjáleið verður um Rauðarárstíg, Grettisgötu og Snorrabraut, fyrir ökumenn sem koma niður Laugaveg og vilja halda akstri áfram niður Laugaveginn í átt að mið- bænum. Á bílabloggi.is, sem er afar öfl- ugur vefur um bíla, hefur Jóhannes Reykdal blaða- maður rifjað upp sögu Hlemms. Hér skulu nokkur atriði nefnd úr sögu Hlemms, með góðfúslegu leyfi Jó- hannesar. Hlemmur var á árum áður áning- arstaður í hestaferðum til og frá Reykjavík. Þar var byggð vatnsþró árið 1912. „Þarfasti þjónninn fékk lífsnauðsynlega brynningu í vatns- þrónni á Hlemmi, á sama tíma var arftaki hestsins að taka sér bólfestu við Hlemmtorg sem á skömmum tíma varð miðpunktur bílvæðingar þjóð- arinnar með stórfyrirtækin Egil Vil- hjálmsson við suðurhlið og Svein Eg- ilsson við vesturhlið Hlemmtorgs,“ segir Jóhannes. Árið 1919 kom til bæjarins Vestur- Íslendingur, Reykvíkingur sem hafði flutt til Bandaríkjanna árið 1910. Hann hét fullu nafni Sigursveinn Eg- ilsson og var 29 ára gamall. Sigur- sveinn gekk undir nafninu Sveinn vestra og ætlaði ekki að dveljast lengi á Íslandi í heimsókn sinni. Hann var útskrifaður vélfræðingur frá Chicago og kom brátt í ljós að mikil eftirspurn var að myndast í bænum eftir tækni- þekkingu hans. Sveinn afréð að fara ekki aftur utan heldur setjast að í Reykjavík. Fyrirtæki hans varð um- svifamikið í innflutngi bíla og á sviði bílaviðgerða. Það hafði m.a. umboð fyrir Ford-bílana bandarísku. Bróðir Sveins var Jón Egilsson, aðalbókari og gjaldkeri gasstöðv- arinnar við Hlemm. Strax um haustið 1919 sótti Jón, bróðir Sveins, um lóð fyrir steinsteypt einlyft hús. Þetta hús, sem nú heitir Laugavegur 105, var byggt upp í áföngum. Það var fullbyggt 1947, glæsilegt stórhýsi vestan Hlemms, og setur mikinn svip á torgið. Þarna er nú veitinga- starfsemi á 1. hæð og til stendur að innrétta íbúðir á efri hæðum. Tvö öflug bifreiðaumboð Við suðurhlið Hlemmtorgs fór af stað árið 1932 sambærileg starfsemi og við vesturhlið torgsins. Egill Vil- hjálmsson, sem lært hafði bíla- viðgerðir í Bandaríkjunum, hóf bygg- ingu fyrsta hluta byggingasamstæðu árið 1932 sem að lokum myndaði samfellda heild frá Rauðarárstíg að Snorrabraut. Árið 1953 lauk fyrir- tækið byggingu húss á hornlóðinni Snorrabraut/Laugavegur 114. Í þessum húsum við Laugaveg eru í dag starfandi verslanir, veitinga- staðir og spilakassasalur. Þannig höfðu þessi tvö bifreiða- umboð um miðja öldina reist tvö af stærstu húsum höfuðborgarinnar, gatna á milli við Hlemmtorg. Fyrirtækið Egill Vilhjálmsson sá um árabil um smíði yfirbygginga á strætisvögnum bæjarins auk smíði svokallaðra Egilshúsa sem voru aðal- lega smíðuð á Willys-jeppa, sem Egill flutti inn. Bílasmiðju Egils Vilhjálms- sonar við Hlemmtorg mátti um tíma kalla bílaverksmiðju. Fyrsta ferð hlutafélagsins Strætis- vagna Reykjavíkur hf. var farin 31. október árið 1931. Endastöð vagns á leið númer eitt var við vatnsþróna á Hlemmi. Árið 1944 keyptu bæjaryfir- völd hlutafélagið. Hlemmur varð síð- an aðaltengistöð strætisvagna um langt árabil og á endanum var byggt þar stórt þjónustuhús, teiknað af Gunnari Hanssyni. Þetta hús nýttist vel fyrir Strætó og farþega vagnanna. Fyrir nokkrum árum var innréttuð mathöll í húsinu og farþegarnir eiga þar ekki lengur skjól. Stætisvagnar aka enn um Hlemm og munu gera framvegis, þ.e. eftir Hverfisgötunni, og þá sem borgar- línuvagnar. Loks er þess að geta að leigubíla- stöðin Hreyfill var með afgreiðslu á Hlemmi um áratuga skeið og þar rak Olíuverslun Íslands (BP) lengi bens- ínstöð. Mikil umsvif á Hlemmi Meðfylgjandi mynd tók Jón Jóns- son (1908-1990) frá Þjórsárholti og sýnir hún vel umsvifin á Hlemmi fyrr á árum. Þarna eru tvö bílaumboð, leigubílstöð, bensínstöð og biðstöðvar strætisvagna. Lögregluþjónn stjórn- ar umferð, líklega í tengslum við um- ferðarbreytingarnar 26. maí 1968, þegar hægri umferð var tekin upp á Íslandi. Jón Jónsson var flinkur ljós- myndari. Hann starfaði sem leigubíl- stjóri og var mikill áhugaljósmyndari. Ljósmyndasafn Reykjavíkur varð- veitir margar mynda hans. Fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að verktakinn við framkvæmdirnar nú, Alma verk ehf., hafi lokað götukaflanum neðan Hlemms. Gangstéttum beggja vegna verður haldið opnum en unnið í göt- unni til áramóta. Þá verður gert hlé á verkinu. Í apríl 2023 hefst svo vinna aftur og unnið á því svæði þar sem gangstéttirnar liggja. Gangandi og hjólandi geta farið um götuna meðan á því stendur. Tilboð í verkið voru opnuð í júní sl. Sjö tilboð bárust og innkaupa- og framkvæmdaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum 7. júlí 2022 að ganga að tilboði Alma Verks ehf. Það hljóðaði upp á tæpar 190 millj- ónir, sem var nánast sama upphæð og kostnaðaráætlun verksins. Bílatorgið Hlemmur nú bíllaust - Hlemmtorg var um áratuga skeið helsta bílatorg Reykjavíkur - Bílaumboð, strætó, leigubílar og bensínstöð - Búið er að loka hluta Laugavegar til frambúðar og aðeins Strætó ekur nú um torgið Ljósmynd/Jón Jónsson ©Ljósmyndasafn Reykjavíkur Bílatorgið Mynd tekin á Hlemmi fyrir liðlega hálfri öld. Torgið fullt af bílum og bílatengda starfsemi þar að finna. Morgunblaðið/sisi Gatan lokuð Framkvæmdir eru hafnar á Laugavegi neðan við Hlemm. Gatan verður síðan lokuð til frambúðar öðrum en gangandi og hjólandi. Jóhannes Reykdal

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.