Morgunblaðið - 29.09.2022, Blaðsíða 51
ÍÞRÓTTIR 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022
6. september árið 2013 varð
ákveðinn viðsnúningur hjá ís-
lenska karlalandsliðinu í knatt-
spyrnu í Bern í Sviss. Ég man
ágætlega eftir þessum degi, eða
meira leiknum sem fór fram það
kvöld. Sviss og Ísland áttust við í
undankeppni HM 2014. Ísland
komst yfir í leiknum með marki
frá Jóhanni Berg Guðmundssyni
strax á 3. mínútu en Svissararnir
voru fljótir að jafna metin og eft-
ir 54 mínútna leik var staðan
orðin 4:1 fyrir Sviss.
Íslenska liðið minnkaði mun-
inn í 2:4, 3:4 og loks 4:4 þegar
Jóhann Berg jafnaði metin í upp-
bótartíma en títtnefndur Jóhann
Berg skoraði þrennu í leiknum.
Fram að leiknum gegn Sviss
hafði liðið hálfpartinn unnið og
tapað til skiptis en eftir jafnteflið
í Bern virtist koma ákveðinn
stöðugleiki í íslenska liðið. Jöfn-
unarmark Mikaels Andersonar á
þriðjudaginn gegn Albaníu í Tir-
ana minnti mig aðeins á jöfnun-
armark Jóhanns Berg.
Það er orðið ansi langt síðan
maður sá leikmenn íslenska
karlalandsliðsins fagna marki
jafn innilega og þeir gerðu á
þriðjudaginn. Hvort þetta mark
verði jafn sögulegt og markið
hans Jóhanns Berg var, þarf svo
bara að koma í ljós en karla-
landsliðið er allavega ósigrað í
síðustu sex leikjum sínum sem
er ágætis afrek. „Arnar Þór Við-
arsson er að smíða vél“ sagði
einhver eftir leikinn í Tirana.
Það hefur verið ákveðinn
mótvindur hjá íslenska liðinu síð-
an Arnar Þór tók við en núna
virðist loksins vera smá með-
vindur. Það voru allavega klár
batamerki á spilamennsku liðs-
ins gegn Albaníu og maður gerir
sér vonir um það, þegar liðið
verður „fullmannað“ á nýjan leik,
að hagstæð úrslit gætu farið að
detta í hús.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Harðarmenn frá Ísafirði, sem
leika í fyrsta sinn í úrvalsdeild
karla í handknattleik í vetur, hafa
fengið til liðs við sig tvo brasilíska
leikmenn til viðbótar. Þeir sömdu
fyrr í vikunni við Jonathan Dos
Santos og í dag tilkynntu Ísfirð-
ingar komu tveggja landa hans til
félagsins.
Leikmennirnir sem um ræðir
eru þeir Guilherme De Andrade,
21 árs rétthent skytta, sem kemur
frá Nacional Handebol í Brasilíu
en hann hefur verið fastamaður í
U21-árs landsliði þjóðarinnar. Þá
hefur hann einnig spilað með U23-
ára landsliðinu. Jose Esteves Lo-
pes Neto er svo örvhentur leik-
maður sem kemur frá Corinthians
Guarulhos og leikur með U23-ára
landsliði Brasilíu. Lið þeirra mætt-
ust á dögunum í úrslitaleikjum um
brasilíska meistaratitilinn þar sem
Guilherme og félagar í Nacional
höfðu betur.
Hörður hefur leikið tvo leiki í
deildinni og tapað báðum, gegn
Val og KA, og mætir ÍR í nýliða-
slag í Breiðholtinu annað kvöld.
Meiri liðsauki
á Ísafjörð
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Hlíðarendi: Valur – KA............................. 18
Selfoss: Selfoss – ÍBV .......................... 18.45
Kaplakriki: FH – Fram........................ 19.30
Varmá: Afturelding – Grótta............... 19.30
Skógarsel: ÍR – Hörður ....................... 19.40
Í KVÖLD!
Þrjú Íslendingalið tryggðu sér sæti í
riðlakeppni Meistaradeildar kvenna
í knattspyrnu í gær. Sara Björk
Gunnarsdóttir skoraði fyrsta mark
Juventus strax á 11. mínútu þegar
liðið vann 2:0-sigur gegn Köge á
Ítalíu í síðari leik liðanna í 2. umferð
keppninnar. Sara Björk fór af velli á
78. mínútu en Juventus vann einvíg-
ið samanlagt 3:1. Guðrún Arnar-
dóttir og liðsfélagar hennar í Rosen-
gård slógu Svövu Rós Guðmunds-
dóttur og liðsfélaga hennar í Brann
úr leik með 3:1-sigri í Svíþjóð. Bæði
Guðrún og Svava Rós léku allan leik-
inn með sínum liðum en Rosengård
vann einvígið 4:2. Berglind Björg
Þorvaldsdóttir sat allan tímann á
varamannabekk París SG þegar lið-
ið vann 2:0-sigur gegn Häcken í Sví-
þjóð en París SG vann einvígið sam-
anlagt 4:1. Þá lék Selma Sól Magnús-
dóttir fyrstu 62 mínúturnar með
Rosenborg þegar liðið tapaði 1:2
gegn Real Madrid á Spáni en Real
Madrid vann einvígið 5:1.
Juventus, Rosengård og París SG
verða því í pottinum þegar dregið
verður í riðlakeppnina í höfuð-
stöðvum UEFA í Sviss 3. október.
Þrjú Íslendingalið tryggðu
sér sæti í riðlakeppninni
Ljósmynd/@JuventusFCWomen
Mark Sara Björk Gunnarsdóttir í baráttunni í leik Juventus og Köge í Tór-
ínó í gær en Sara Björk kom Juventus yfir með skallamarki á 11. mínútu.
ekki svo langt frá því. Við vorum ein-
um leik frá því að fara í umspil þann-
ig að það þarf klárlega ekki mikið.
Ég get ekki komið með eitt full-
komið svar við því hvað það er sem
vantar en að sama skapi þarf bara
hársbreidd hér og þar. Það þarf
kannski smá heppni líka, það verður
eitthvað að falla fyrir liðin eða hvern-
ig sem það er, eins og gerðist kannski
með Stjörnuna fyrir nokkrum árum.
Maður þarf kannski líka eitthvað
svoleiðis. Að sama skapi er hægt að
byggja á þessum árangri og nýta
hann sem eldsneyti fyrir næsta ár,“
sagði Júlíus.
Gátum alltaf mannað hópinn
Fyrir tímabilið styrkti Víkingur
liðið með því að fá til sín sex leik-
menn og ekki var vanþörf á því þar
sem sex leikmenn höfðu horfið á
braut. Um mitt sumar var Kristall
Máni Ingason svo seldur til Rosen-
borg og Danijel Dejan Djuric var
fenginn í staðinn.
Júlíus sagði það mikilvægt að vera
með sem breiðastan hóp þegar leikið
er í mörgum keppnum. „Ég held að
það hafi alveg skilað sér í sumar að
vera með stóran hóp og að það sé
bara lífsnauðsynlegt fyrir svona fé-
lög sem eru að spila á mörgum víg-
stöðvum.“
Fyrir um 5-6 vikum var hins vegar
farið að þynnast nokkuð í hópnum
vegna meiðsla. „Svona getur gerst en
við vorum kannski fullóheppnir með
meiðsli og höfum verið það síðustu
vikur, eins og þegar tveir bakverðir
meiddust í sama leiknum og gátu
ekki spilað næsta leik,“ bætti hann
við.
„Það er náttúrlega ekki beint
venjuleg staða en þetta getur alltaf
gerst þegar maður er með svona
marga leiki. Það þarf bara að undir-
búa sig fyrir tímabilið eins og við
gerðum. Við lentum aldrei í því að
geta ekki mannað hópinn, við vorum
alltaf með ferska menn á bekknum.
En auðvitað fer það eftir þessu
leikjaálagi hvernig liðið síðan stend-
ur eftir það. Ég held að við höfum
gert vel í því að rótera liðinu og ná
mönnum, sem fengu kannski ekki
sénsinn fyrst en fengu svo að sýna
sig, í takt við liðið og það hefur skinið
í gegn. Þeir hafa sprungið út á síð-
ustu vikum og nýtt tækifærin,“ sagði
Júlíus einnig.
Gott að fá smá andrými
Þó að Víkingar vilji spila sem
flesta leiki sagði hann það vissulega
kærkomið að hafa fengið smá hlé í
landsleikjaglugganum sem lauk í vik-
unni.
„Ég held að í svona fríum frá leikj-
um fáirðu alltaf fínt súrefni. Upp á
næstu vikur er það bara fínt þannig
séð, að ná endurheimt og geta æft af
góðum krafti. Að geta núllstillt sig úr
deildinni yfir í bikarinn og síðan aftur
yfir í deildina. Það er bara mjög gott
að fá smá andrými.“
Júlíus minntist á bikarinn, en Vík-
ingur er á leið í sinn þriðja bikarúr-
slitaleik í röð þegar liðið mætir FH í
úrslitum Mjólkurbikarsins á Laugar-
dalsvelli á laugardag. Að honum
loknum taka við fimm leikir í efri
hluta Bestu deildarinnar, þar sem
sex efstu lið hennar mætast inn-
byrðis í októbermánuði.
„Það er bara tilhlökkun held ég.
Eftir að hafa spilað svona marga leiki
í röð fær maður kannski smá and-
rými á milli leikja núna og getur svo-
lítið stillt sig af fyrir hvern leik fyrir
sig. Það er mikil tilhlökkun í hópnum
fyrir síðustu leikina sem eftir eru,“
sagði hann um leikina sex sem eru
eftir á löngu tímabili.
Verður algjör aumingjavæðing
Í deildinni eru ríkjandi Íslands- og
bikarmeistarar Víkings í öðru sæti
sem stendur, átta stigum á eftir
toppliði Breiðabliks. Spurður hvern-
ig hann mæti möguleika Víkinga á að
skáka Blikum sagði Júlíus að lokum:
„Við verðum bara að taka einn leik
fyrir í einu og setja vonandi ein-
hverja pressu á þá vegna þess að það
er ekki auðvelt að vera að elta allt
sumarið og mega ekki misstíga sig.
Við verðum bara að leggja allt í
sölurnar, gefa allt í þetta. Við megum
ekki sýna nein veikleikamerki, það
má enginn gefast upp því þetta verð-
ur algjör aumingjavæðing ef svo fer.
Það þarf að stilla sig af fyrir hvern
einasta leik sem eftir er.“
Allir ánægðir með að
spila svona marga leiki
- Víkingur leikur 41 leik á tímabilinu - Evrópuævintýri jók álagið til muna
Morgunblaðið/Eggert
Fyrirliðinn Júlíus Magnússon hefur þegar leikið 34 af 35 leikjum Víkings á
tímabilinu og stefnir á sex til viðbótar áður en því lýkur 29. október.
APRÍL (4): Meistarakeppnin og þrír leikir í Bestu deildinni.
MAÍ (7): Sex leikir í Bestu deildinni og einn í Mjólkurbikarnum.
JÚNÍ (4): Tveir Evrópuleikir, einn leikur í Bestu deildinni og einn í Mjólk-
urbikarnum.
JÚLÍ (8): Fjórir leikir í Bestu deildinni og fjórir Evrópuleikir.
ÁGÚST (8): Fjórir leikir í Bestu deildinni, tveir Evrópuleikir og tveir í
Mjólkurbikarnum.
SEPTEMBER (4): Fjórir leikir í Bestu deildinni.
OKTÓBER (6): Bikarúrslitaleikurinn og fimm leikir í Bestu deildinni.
Samtals 41 leikur á 202 dögum frá 10. apríl til 29. október.
Tímabilið 2022 hjá Víkingum
FÓTBOLTINN
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Yfirstandandi tímabil hjá karlaliði
Víkings úr Reykjavík í knattspyrnu
hefur verið einstakt hvað leikjafjölda
á einu tímabili varðar. Óhætt er að
fullyrða að ekkert íslenskt lið muni
hafa leikið jafn marga keppnisleiki á
einu tímabili, en þegar tímabilinu
lýkur verður Víkingur búinn að spila
alls 41 leik í öllum keppnum frá 10.
apríl til loka október.
„Þetta hefur bara verið mjög
skemmtilegt heilt yfir. Ég held að all-
ir séu svolítið ánægðir, að það sé eng-
inn ósáttur við að hafa fleiri leiki. Ég
held að það sé bara því fleiri leikir,
því betra. Þetta tímabil hefur verið
forréttindi, að fá að taka þátt í Evr-
ópukeppni og á öllum vígstöðvum,“
sagði Júlíus Magnússon, fyrirliði
Víkings, í samtali við Morgunblaðið.
Sjálfur hefur hann leikið alla leiki
liðsins á tímabilinu nema einn til
þessa, alls 34 leiki af 35, og þeim leik í
Bestu deildinni missti Júlíus af vegna
leikbanns sem hann var úrskurðaður
í eftir að hafa fengið fjórar áminn-
ingar. Vegna þessa mikla leikjaálags
segir Júlíus að endurheimt hafi
gjarna verið í fyrirrúmi á æfingum
hjá Víkingum.
„Það hefur svolítið verið sú upp-
skrift í sumar. Maður hefur verið að
spila og síðan hefur verið endurheimt
næstum því fram að næsta leik. Það
hefur ekki verið oft sem við höfum
verið að æfa af fullum krafti eins og
við viljum. En að sama skapi förum
við af fullum krafti í leikina og lærum
af reynslunni, það er bara skemmti-
legra upp á það að gera,“ útskýrði
hann.
Vantar ekki mikið upp á
Stór hluti af því aukna leikjaálagi
sem Víkingur stóð frammi fyrir á
tímabilinu kom til vegna Evrópu-
ævintýris, þar sem liðið lék alls átta
leiki í forkeppni Meistaradeildar
Evrópu, þá undankeppni hennar og
loks undankeppni Sambandsdeildar
UEFA. Árangurinn var afar góður
þar sem liðið vann fjóra leiki, gerði
tvö jafntefli og tapaði tveimur leikj-
um. Þar á meðal var grátlegt tap í
framlengdum leik gegn Lech Poznan
í Póllandi þar sem Víkingur var ná-
lægt því að komast í umspil fyrir
riðlakeppni Sambandsdeildarinnar.
Hvað vantar upp á til þess að ís-
lensk lið nái loks að taka það skref að
komast í riðlakeppni í Evrópu-
keppni?
„Ég held að það hafi sýnt sig í ár
að það vantar ekki mikið upp á. Ég
ætla ekki að segja að við og Breiða-
blik höfum verið hársbreidd frá því
að komast í riðlakeppni en við vorum