Morgunblaðið - 29.09.2022, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 29.09.2022, Qupperneq 60
www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 *Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur. KENNEDY 3ja sæta sófi. Ljóst áklæði. Einstaklega mjúkur . 223.992 kr. 279.990 kr. DREW Fallegur og notalegur hægindastóll með sveif á hlið sem leggur stólinn aftur og lyftir um leið upp fótaskemli. 159.992 kr. 199.990 kr. AMERÍSKIR DAGAR 20% AFSLÁTTUR og þægilegur HARBOR TOWN Rafdrifinn hægindastóll með bólstruðum viðarörmum. Þessi hjálpar þér að standa á fætur. 159.992 kr. 199.990 kr. LANETT 3ja sæta sófi. 225 × 94 × 93 cm. 175.992 kr. 219.990 kr. PINNACLE Fallegur hægindastóll sem fæst í mörgum litum og útfærslum. Sveif á hlið leggur stólinn aftur og lyftir um leið upp fótaskemli. 151.992 kr. 189.990 kr. LÝKUR Á FÖSTUDAG Jara Hilmarsdóttir messósópran og Erna Vala Arnar- dóttir píanóleikari koma fram á hádegistónleikum und- ir hatti „Á ljúfum nótum“ í Fríkirkjunni við Tjörnina kl. 12. Munu þær flytja tónlist sem tengist margbreytileika myrkursins; valin ljóð úr Vetrarferðinni eftir Franz Schubert og A Charm of Lullabies eftir Benjamin Britt- en. Í tilkynningu segir að myrkur sé oftar en ekki sett í samhengi við eitthvað neikvætt en þegar betur sé að gáð megi einnig finna á því jákvæðar hliðar; svefn, ró og værð. Tónleikarnir standa yfir í um hálftíma. Jara og Erna Vala koma fram á hádegistónleikum í Fríkirkjunni FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 272. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Valur er úr leik í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu kvenna eftir að hafa gert markalaust jafntefli við Slavia Prag í síðari leik liðanna í 2. umferð undankeppninnar í Tékklandi í gær. Fyrri leik liðanna á Hlíðarenda lauk með 1:0-sigri Slavia Prag. »50 Valur úr leik í Meistaradeildinni ÍÞRÓTTIR MENNING Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Síðdegis í gær tók forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, hús á rúm- lega þrjátíu prjónakonum sem hafa undanfarið setið við og prjónað ull- arsokka sem sendir verða á víg- stöðvar í Úkraínu í lok október. Prjónakonurnar komu saman í fé- lagsmiðstöð eldri borgara í Gjá- bakka í Kópavogi. Þær eru þátttakendur í verkefn- inu Sendum hlýju frá Íslandi sem er átaksverkefni sem staðið hefur yfir undanfarnar vikur og miðast að því að prjóna sokka úr íslenskri ull á hermenn í Úkraínu. „Verkefnið fór af stað í byrjun september að lokinni fyrstu smölun og stendur yfir þar til í lok október,“ segir Heiðrún Hauksdóttir, prjóna- kona og sjálfboðaliði í Sendum hlýju frá Íslandi. „Það er dálítið erfitt að segja til um hversu margir prjónararnir eru og sama má segja um fjölda sokka- para akkúrat núna, en þeir eru að byrja að tínast í móttökukassana sem hafa verið settir upp víðs vegar um landið, í verslunum Samkaupa, Krónunnar og N1, og verður for- vitnilegt að sjá fjöldann þegar köss- um verður skilað inn.“ Á heimasíðu verkefnisins, sendumhlyju.is, geta prjónarar skráð sig til leiks og eru nú 155 þátt- takendur skráðir. Það er þó engin skylda að skrá sig og því ekki ólík- legt að fleiri prjónaglaðir þátttak- endur leynist úti í samfélaginu. Hvert sokkapar skiptir máli „Fjöldinn allur af prjónafólki hef- ur sýnt verkefninu áhuga og tekið til hendinni, bæði þaulvön og ekki síður þau sem sjaldnar hafa tekið upp prjónana, enda má segja að prjóna- skapur sé ákveðið þjóðarsport okkar Íslendinga,“ segir Heiðrún. „Við þekkjum líka vel gæði ís- lensku ullarinnar, hún hefur haldið á okkur hita í gegnum ansi krefjandi tíma og við vitum að sokkarnir koma sér vel á vígstöðvum, þar sem frost getur farið allt niður í 30 stig. Hvert einasta sokkapar skiptir máli og það skiptir líka máli að með þessu erum við ekki aðeins að senda hlýju til Úkraínu í formi ullarleist- anna sjálfra, heldur einnig í formi þess að hér á Íslandi, lengst í burtu frá þessum skelfilegu aðstæðum, er fjöldi fólks sem lætur sig málefni fólksins á svæðinu varða og vill sýna stuðning. Við finnum vel fyrir þess- um stuðningi og velvilja hérna heima og við prjónarar sem höfum verið að hvetja fleiri til að vera með höfum alls staðar fengið frábær viðbrögð og finnum að fólk virkilega vill leggja verkefninu lið.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sjálfboðaliðar Guðni Th. Jóhannesson heilsaði upp á öflugt prjónafólk sem tekið hefur til hendinni. Íslenskir ullarsokkar hlýja hermönnum - Átaksverkefnið Sendum hlýju frá Íslandi í fullum gangi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.