Morgunblaðið - 26.11.2022, Side 2
FRÉTTIR
Innlent2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022
SVARTUR
FÖSTUDAGUR
30%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
VÖRUM ALLA HELGINA
KÓÐI Í VEFVERSLUN:
SVARTUR
LINDESIGN.IS
Gefur lítið
fyrir lög-
fræðiálit
lSjóðirnir telja
stöðu sína sterka
„Ég hef séð
þetta áður,
svona misvís-
andi lög-
fræðiálit. Það er
að jafnaði ágætt
að horfa til þess
hver lætur vinna
álitið. Hérna
eru þeir sem
hafa hagsmuni
að óska eftir
því að fá þetta lögfræðiálit. Það var
viðbúið að þessi sjónarmið kæmu
fram,“ segir Bjarni Benediktsson,
fjármála- og efnahagsráðherra,
í samtali við Morgunblaðið um
lögfræðiálit lögfræðistofunnar
LOGOS. „Hérna er verið að skrifa
lögfræðiálit um tillögu sem aldrei
hefur verið lögð fram. Það er verið
að skrifa lögfræðiálit um frumvarp
sem ekki liggur fyrir þinginu,“ segir
Bjarni. LOGOS vann lögfræðiá-
lit fyrir lífeyrissjóðina sem eiga
skuldabréf á ÍL-sjóð. Þeir telja laga-
lega stöðu sína vegna fyrirhugaðrar
lagasetningar fjármálaráðherra um
gjaldþrot ÍL-sjóðs afar sterka og að
fyrirhuguð lagasetning brjóti í bága
við stjórnarskrá og mannréttinda-
sáttmála Evrópu.
Bjarni
Benediksson
Gaf konunni vinninginn
lVannnýjan bíl í áskrifendahappdrættiMorgunblaðsins
lGlæsilegurToyotaC-HRHybrid var afhentur í gær
„Ég gaf konunni bílinn í jóla- og
afmælisgjöf og þarf ekkert að hugsa
um það meira í mínu lífi! Mér finnst
konan líta mig miklu bjartari augum
núna,“ segir Þorvaldur Guðmunds-
son í Reykjanesbæ, vinningshafi
í áskrifendahappdrætti Morgun-
blaðsins.
Nafn hans var dregið úr nöfnum
allra áskrifenda í beinni útsendingu
á K100 á fimmtudag. Kona Þorvald-
ar, Friðrika Jóhanna Sigurgeirsdótt-
ir, á afmæli 4. desember. Þau fengu
nýjan Toyota C-HR Hybrid, að
verðmæti 6.290.000 krónur, afhent-
an í gær. En hvernig varð Þorvaldi
við þegar honum var tilkynnt um
vinninginn?
„Ég er dálítið hrekkjóttur og
hef orðið fyrir hrekkjum sjálfur.
Ég spurði manninn, sem hringdi
og sagði að ég hefði unnið bíl,
hver hann væri því ég þekkti ekki
röddina. Hann sagðist vera ritstjóri
Morgunblaðsins. Ég spurði hvort
hann væri að meina þetta? Jú, hann
sagðist gera það,“ segir Þorvaldur.
„Ég sagði að ég tryði þessu ekki fyrr
en ég sæi það gerast. Ég hef upplifað
hrun, Covid og eldgos á Reykjanesi
en aldrei áður lent í því að fara í
bæinn og taka á móti splunkunýjum
bíl án þess að taka upp veskið – ég
átti ekki von á að upplifa slíkt æv-
intýri. Við hjónin erum hálfpartinn
með tárin í augunum eftir þetta allt
saman. Bíllinn er rosalega flottur!“
Friðrika kona Þorvaldar var við
vinnu í Reykjavík og með kveikt á
K100 þegar hún heyrði nafn Þor-
valdar. Hún velti því ekkert frekar
fyrir sér fyrr en Þorvaldur hringdi
í hana. Þá spilaði hún upptöku
af útsendingunni aftur. Friðrika
vinnur í bænum og hefur farið á
milli á gömlum bíl. „Ég skráði bílinn
á hana. Nú yngir hún upp um 18 ár,
eins og í textanum hans Bjartmars,“
segir Þorvaldur. „Við þökkum bara
innilega fyrir okkur.“
Morgunblaðið þakkar Toyota
kærlega fyrir samstarf um áskrif-
endahappdrættið og óskar Þorvaldi
og Friðriku innilega til hamingju.
Morgunblaðið/Eggert
Vinningshafar Hjónin Þorvaldur Guðmundsson og Friðrikka Jóhanna voru kampakát með nýja bílinn.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.isMenning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.ismbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ákaflega krefjandi og viðkvæmar
kjaraviðræður bíða framundan, að
sögn Aðalsteins Leifssonar ríkissátta-
semjara. Ásetningur allra sem koma
að borðinu er þó að ná samningum og
er hann vongóður um að gott samtal
taki við eftir helgi.
Klukkan var farin að ganga hálfell-
efu þegar samninganefndir samflots
Starfsgreinasambandsfélaganna og
verslunarmanna annars vegar og
samflots iðnaðar- og tæknifólks hins-
vegar luku fundi sínummeð Samtök-
um atvinnulífsins í gærkvöldi. Helsta
niðurstaðan var viðræðuslit milli VR
og SA.
„Mér fannst vera virkt og gott sam-
tal um að finna lausn sem stæði vörð
um hagsmuni launafólks og skapaði á
sama tíma stöðugleika og svigrúm til
að lækka vexti. Upplifun fólks báðum
megin við borðið var að í stað þess að
veita aðilum vinnumarkaðarins rými
til samninga þá hafi komið yfirlýs-
ingar frá Seðlabankanum sem gerðu
flóknar og viðkvæmar samningavið-
ræður enn erfiðari fyrir báða aðila.
Staðan ermjög krefjandi og viðkvæm
en verkefnið fer ekki frá okkur,“ segir
Aðalsteinn sem hefur nú boðað SGS,
Landssamband verslunarmanna og
VR, auk samflots iðnaðar- og tækni-
fólks, til fundar á þriðjudaginn.
Ytra umhverfið óhagfellt
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, segir útspil Seðlabankans með
vaxtahækkun hafa rutt út þeirri vinnu
sem hafði verið unnin við samninga-
borðið á milli VR og SGS annars
vegar og SA hins vegar. Hann seg-
ir félagið hafa viljað fá tryggingu í
kjarasamningi um að vaxtakjör fólks
á húsnæðismarkaði og verðlag gæti
haldist stöðugt yfir samningstímann,
en að slíkt hafi ekki verið í boði af
hálfu viðsemjanda þeirra og það hafi
valdið því að VR sleit viðræðunum.
Ragnar Þór segir grundvallar-
kröfu VR vera að auka kaupmátt og
lækka kostnað við að lifa. „Það þarf
ekki annað en að horfa á verðbólgu-
spá fram í tímann til að sjá hvað þarf
til að verja kaupmátt millitekju-
hópa. Sömuleiðis að vega upp þann
kostnaðarauka, vaxtastig, húsaleigu,
verðlag og kostnaðarhækkanir sveit-
arfélaga,“ segir Ragnar sem útilokar
ekki verkföll fyrir áramót.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, segir ljóst að
ytra umhverfið hafi verið óhagfellt
kjaraviðræðum í vikunni, og nefnir
hann m.a. stýrivaxtahækkunina sem
seðlabankastjóri boðaði.
„Ég held að það sé bara mannlegt
og eðlilegt að snurða geti hlaupið á
þráðinn í svona viðræðum,“ segir
Halldór þegar blaðamaður spyr hann
út í viðræðuslitin.
„Sú vinna sem við höfum lagt í
þessa vikuna er auðvitað grunnur að
því sem koma skal. Við höfum heyrt
ýmis sjónarmið yfir samningaborðið
og við munum auðvitað bregðast við
þeim og ég vænti þess að viðræður
næstu viku verði uppbyggilegar og
markmið aðila verði það sama, að
ganga frá kjarasamningi.“
Hann segir ágætt að samningsað-
ilar andi með nefinu yfir helgina en
vinnanmuni halda áfram á nýjan leik
á þriðjudaginn.
Fundurinn góður
Daginn eftir að Seðlabankinn til-
kynnti um stýrivaxtahækkunina á
miðvikudaginn voru samningsaðilar
kallaðir á fund Katrínar Jakobsdóttur
forsætisráðherra. Katrín segir mjög
miður að VR hafi slitið viðræðunum.
„Fundurinn með forystumönnum
var baramjög góður og þar fór ég yfir
hvað stjórnvöld geta gert til þess að
leggja sitt af mörkum og greiða fyr-
ir lausn. En auðvitað er það þannig
að fyrst þurfa samningsaðilar að ná
saman áður en stjórnvöld koma að,“
segir Katrín.
Staðankrefjandi og viðkvæm
lFlóknar og erfiðar kjaraviðræður framundanlRagnar Þór útilokar ekki verk-
föll fyrir áramótlGrundvallarkrafa að auka kaupmáttlYtra umhverfi óhagfellt
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
Þorsteinn Ásgrímsson
Urður Egilsdóttir
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
KjaraviðræðurKatrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir mjög miður að
VR hafi slitið viðræðunum. Hún hafi átt góðan fund með forystumönnum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
DómurMennirnir mæltu sér mót
til að eiga í fíkniefnaviðskiptum.
Milduðudómvegna
manndráps af gáleysi
Landsréttur mildaði í gær dóm
yfir Dumitru Calin, rúmenskum
karlmanni á þrítugsaldri, sem hafði
áður hlotið þriggja og hálfs árs dóm
í héraði fyrir manndráp af gáleysi
og fleiri brot. Var það vegna andláts
Daníels Eiríkssonar sem lést eftir
að hann hafði dregist með bíl Calins
í um 14 metra, en Calin ók bílnum
á 15-20 kílómetra hraða á bílastæði
við Vindakór í Kópavogi.
Ákæruvaldið vildi að Landsréttur
myndi endurskoða niðurstöðu
héraðsdóms sem sýknaði Calin
af hættubroti. Landsréttur sneri
þeirri ákvörðun við og var Calin
jafnframt sakfelldur fyrir það. Þrátt
fyrir þessa niðurstöðu taldi Lands-
réttur rétt að milda dóm Calins úr
þriggja og hálfs árs fangelsi í tvö ár.
Ásamt fangelsisvistinni var Calin
gert að greiða foreldrum Daníels
þrjár milljónir króna í miskabæt-
ur, rúma milljón króna í útfarar-
kostnað og 700 þúsund krónur
í málskostnað. Calin var einnig
dæmdur fyrir nokkur fleiri brot,
m.a. fjársvik og akstur undir áhrif-
um fíkniefna.