Morgunblaðið - 26.11.2022, Page 14

Morgunblaðið - 26.11.2022, Page 14
FRÉTTIR Innlent14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022 BEYONDAIR H. Jacobsen ehf. | Reykjavíkurvegi 66, 220 Hfj. Kíktu á beyondair.is Ný tækni í loftgæðum • Tækið líkir eftir loftinu utandyra • Notar súrefni og raka úr loftinu • Breytir þeim í öflug oxuð vatnsmólíkúl • Hlutleysir örverur í loftinu og á yfirborði • Eyðir vírusum, bakteríum, myglu og fl. „Það er búið að vera nóg að gera yfir leikjunum. Ég held að það megi segja að það sé bara kærkomið að fá HM í fótbolta að vetri til. Það er öðruvísi, en gaman,“ segir Ingvar Svendsen, veitingamaður á American Bar í Austurstræti. Margir hafa gert sér ferð á sport- bari til að fylgjast með leikjum á HM í knattspyrnu karla sem nú fer fram í Katar. Mótið hefur verið umdeilt en eftir að flautað var til leiks hefur stemningin smám saman verið að aukast. Þetta merkja veitingamenn, einkum og sér í lagi þegar stærri þjóðirnar mæta til leiks. Ingvar segir að leikirnir á HM séu frábær viðbót nú í nóvember sem oft- ast þurfi að líða fyrir að margir huga að undirbúningi jólanna og ungt fólk sé í prófum. „Ég held að það verði allt fullt um helgina,“ segir veitingamað- urinn kokhraustur. Og það kannski ekki að ástæðulausu því margir stórir leikir eru á dagskrá. Veislan hófst í gærkvöldi með leik Englands og Bandaríkjanna og þegar Morgun- blaðið ræddi við Ingvar ummiðjan daginn bjóst hann við sérstaklega góðri mætingu á þann leik. Það er því ekki ólíklegt að talsvert hafi farið af kjúklingavængjum og hamborgurum ofan í gesti og eitthvað af bjór með. „Við höfum fengið allra þjóða kvik- indi hingað í vikunni eftir því hvaða leikir hafa verið; Ameríkanar eru alltaf duglegir að mæta, Bretarnir líka og eins Frakkar. Svo hafa ein- hverjir Portúgalir og Spánverjar látið sjá sig líka,“ segir Ingvar. Tveir stórleikir eru á dagskrá í dag. Danir mæta Frökkum klukk- an 16 og klukkan 19 er komið að Mexíkó og Argentínu. Á morgun er kvöldleikurinn afar mikilvægur leikur Þjóðverja og Spánverja. Helgi Guðmundsson, aðstoðarrekstrar- stjóri á Ölveri í Glæsibæ, býst við að margir leggi leið sína þangað um helgina. „Ég trúi ekki öðru en að það verði rosa góð mæting. Við fundum það í gær þegar Brasilía var að spila að stemningin er smám saman að magnast. Það hefur verið fínasta stemning hérna í vikunni, sérstak- lega hjá stóru þjóðunum. Til dæmis þegar England er að spila, það eru margir vitleysingar semmæta þá,“ segir hann og skellir upp úr. „Það verður tómt stuð og fjör um helgina og svo þegar kemur að síðustu um- ferðinni í riðlakeppninni, þegar tveir leikir verða á sama tíma, mun þetta springa í tætlur. Veislan heldur svo áfram í milliriðlunum.“ lMargir fylgjastmeð leikjunumáHMá sportbörum, einkumþegar stóru þjóðirnar eru að keppa lTveir stórleikir eru í dag og búist viðmargmennil„Springur í tætlur“ þegar líður ámótið Stemninginmagnast smám saman Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Á vaktinni Það var þéttsetinn bekkurinn á Ölveri á fimmtudagskvöld þegar Brasilía og Serbía mættust. Veitingamenn eru búnir undir annasama helgi. AFP/Adrian Dennis GleðiDanskir áhorfendur eru mættir til Katar og þessi var svo heppinn að fá markmannshanska Kaspers Schmeichels eftir leikinn gegn Túnis. AFP/Anne-Christine Poujoulat Gulir og glaðir Það vantar sjaldan upp á stuðninginn þegar Brasilíumenn mæta til leiks á HM. Hér fagna þeir eftir leikinn gegn Serbíu. Rafbílavæðing Landspítala Allir bílar Landspítalans verða orðnir rafknúnir á fyrri hluta næsta árs, 2023. Um fjörutíu bíla er að ræða og með þessu er verið að hraða orku- skiptum í bílaflota spítalans. Eru fyrstu fimm bílarn- ir komnir en síðasta vor var útboð á fyrstu sautján bif- reiðunum. Orkuskiptin eiga að draga úr kolefnisspori spítalans, rekstr- arkostnaði, loftmengun og gjaldeyrisnotkun. Áætlað er að árlega muni losun CO2-ígilda minnka um 100 tonn. Frá því að Landspítalinn setti sér lofts- lagsmarkmið árið 2016 hefur dregið úr losun um 40%. Eru orkuskiptin einn liður í því. Bíll Landspítalinn við Hringbraut.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.