Morgunblaðið - 26.11.2022, Síða 23

Morgunblaðið - 26.11.2022, Síða 23
FRÉTTIR Erlent 23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022 Kringlunni | Glerártorgi | Skeifunni 8 | Hafnartorg Gallery | casa.is Spe FRÍ HEIMSENING ef verslað er fyrir 4.000 kr. eða meira í vefverslun. cktrum. Íransstjórn for- dæmir ályktunina lSkotið ámótmælendur í Zahedan Íranska utanríkisráðuneytið fordæmdi í gær ályktun mann- réttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, sem Ísland og Þýskaland báru upp, þar sem óháð rannsókn á ofbeldis- verkum klerkastjórnarinnar gegn mótmælendum var sett á fót. Sagði í yfirlýsingu ráðuneytisins að Íran „hafnaði algjörlega“ álykt- uninni og að hún væri „algjörlega gagnslaus,“ þar sem Íransstjórn hefði nú þegar hafið sína eigin rann- sókn á „atvikum síðustu tveggja mánaða“. Þá bryti óháð rannsókn gegn fullveldi Írans og myndu írönsk stjórnvöld ekki viðurkenna rannsóknarnefndina. Þá sagði ráðuneytið einnig að Þjóðverjar og „viss vestræn ríki“ hefðu gert „strategísk mistök“ með ályktuninni og að ríkin væru með falskar ásakanir á hendur Íransstjórn um að hún bryti gegn réttindum manna, kvenna og barna. Yfirlýsing utanríkisráðuneytisins kom sama dag og íranskar öryggis- sveitir hófu skothríð á mótmælend- ur eftir föstudagsbænir í borginni Zahedan, sem er í héraðinu Sístan- Balúkistan í suðausturhluta Írans. Var fjöldi mótmælenda sagður hafa fallið í skothríðinni samkvæmt heimildum AFP-fréttastofunnar, en nákvæmar tölur voru ekki tiltækar í gær. Á myndskeiðum frá mótmæl- unum má heyra að mótmælendur lýstu yfir samstöðu sinni með Kúrdum í norðvesturhluta landsins, en stjórnvöld hafa beitt sér hvað harðast gegn þeim frá upphafi mótmælanna í september. Norsku mannréttindasamtök- in Iran Human Rights sögðu að öryggissveitirnar hefðu notað þungar vélbyssur til að kveða niður mótmælin í Zahedan. Talið er að rúmlega 400 manns hafi nú fallið fyrir hendi stjórnvalda frá því að mótmælaaldan hófst í september. AFP/Giuseppe Cacace BlóðMótmælin hafa m.a. náð til HM í Katar, þar sem Íran keppir. Þannig munu Svíar senda gögn að verðmæti um 3 milljarðar sænskra króna í aðstoð til Úkraínumanna, eða sem nemur um 40,5 milljörðum íslenskra króna. Er það umtalsverð aukning frá fyrri aðstoð Svía, en þeir hafa áður sent hergögn sem voru samtals að verðmæti um 2milljarðar sænskra króna, eða um 27milljarðar íslenskra króna. Í pakkanum nú eru meðal annars háþróuð loftvarnakerfi, létt torfærufarartæki og vetrarfatn- aður og skotheld vesti. Finnar munu senda hergögn að verðmæti um 55,6 milljónir evra, eða sem nemur um átta milljörð- um íslenskra króna. Er það tæpur þriðjungur af heildaraðstoð Finna við Úkraínumenn. Anti Kaikkonen, varnarmálaráðherra Finnlands, var hins vegar fámáll í samtali við vef- miðilinn Euronews um það hvers konar gögn væri um að ræða. „Það er finnska leiðin að vera þögull,“ sagði Kaikkonen, en gaf þó til kynna að Finnar hefðu tekið þaðmeð í reikn- inginn að vetur er á leiðinni. Vestrænir hernaðarsérfræðingar segja að það geti skipt sköpum hvern- ig herirnir tveir verða útbúnir í vet- ur, en nú þegar hafa birst myndir og myndskeið á samfélagsmiðlum sem virðast sýna hvar hópar rússneskra hermanna virðast hafa frosið í hel. Slæmur aðbúnaður meðal rúss- neskra hermanna gæti því haft mikil áhrif á getu þeirra til þess að sækja fram eða verjast í stríðinu á komandi mánuðum. Breska varnarmálaráðu- neytið greindi einnig frá því í gær, að mikill fjöldi þeirra varaliðsmanna sem kallaðir hefðu verið í rússneska herinn á síðustumánuðum hefðu ver- ið sendir á vígstöðvarnar þrátt fyrir að þeir væru að glíma við alvarleg veikindi eða heilsubrest. Þá væri varaliðsmönnunum oft beitt í verkefni þar sem mannfall væri mikið, líkt og sókninni að Bak- hmút eða við að grafa skotgrafir í Lúhansk-héraði undir stórskotahríð Úkraínumanna. Pútín hughreystir mæður Vladimír Pútín Rússlandsforseti hitti í gær 17 mæður hermanna í Úkraínu og var fundur þeirra sýndur í beinni sjónvarpsútsendingu. Sagði Pútín þar að hann deildi sársauka þeirra sem hefðu misst ástvini sína í stríðinu, en sagðist um leið ekki sjá eftir „sérstöku hernaðaraðgerðinni“. Pútín varaði mæðurnar ennfremur við því að trúa öllu sem þær læsu um stríðið á netinu. „Það er ljóst að lífið er flóknara en það sem sést á sjón- varpsskjánum eða jafnvel á netinu, engu er treystandi þar,“ sagði Pútín. Mæður eru í hávegum hafðar í Rússlandi, og var litið á fundinn sem tilraun Pútíns til þess að koma í veg fyrir vaxandi óánægju með stríðið. Breska varnarmálaráðuneytið sagði í gær að rússneski herinn væri að senda fallhlífarhermenn sína aftur til vígstöðvanna í Donbass-héruðunum, jafnvel þótt þeir hefðu nýlega þurft að flýja frá Kerson-borg og væru enn að jafna sig eftir brotthvarfið þaðan. Fallhlífasveitirnar, sem þekktar eru undir rússnesku skammstöfuninni VDV, hafa orðið illa úti í Úkraínu- stríðinu til þessa, en þær urðu fyrir miklu mannfalli í atlögu Rússa að Kænugarði, sem og tilraunum þeirra til að hertaka hafnarborgina Ódessa á fyrstu vikum og mánuðum styrj- aldarinnar. Sagði í yfirlýsingu varnarmála- ráðuneytisins að bætt hefði verið fyrir mannfallið með því að senda varaliðsmenn í sveitirnar, þrátt fyrir að þaðmyndi draga úr hernaðarstyrk fallhlífasveitanna. Þámyndu sveitirn- ar áfram fá verkefni við að verja þá staði semRússar teldumikilvægasta. Telur ráðuneytið líklegt að sveit- irnar verði notaðar annaðhvort til að styðja við varnir Rússa í kring- um borgirnar Kreminna og Svatove í Lúhansk-héraði, eða til að aðstoða við sóknaraðgerðir Rússa í kringum Bakhmút í Donetsk-héraði, en Rúss- ar hafa lagt mikið í sölurnar til að ná þeirri borg síðustu mánuði, en án árangurs. Vetur er á leiðinni Veturinn í Úkraínumun setja stórt mark á átökin næstu mánuðina, en enn var rafmagnslaust í um helm- ingi Kænugarðs í gær, þrátt fyrir að lagst hefði verið í miklar viðgerðir á raforkukerfi borgarinnar eftir árásir Rússa í vikunni. Hafa óbreyttir borg- arar meðal annars safnast saman í matvöruverslunum og annars staðar þar sem hlýju er að fá. Vetrarríkið mun þó ekki bara hafa áhrif á almenning, og hafa vestur- veldin lagt áherslu á það undanfarið að senda vetrarfatnað fyrir úkraínska hermenn. Þannig tilkynntu bæði Sví- ar og Finnar í fyrradag um að þeir hygðust senda stóraukna hernaðar- aðstoð til Úkraínu. Sendir aftur á vígstöðvarnar lFallhlífasveitir Rússa komnar til Donbass eftir flóttann frá KersonlSenda vetrarbúnað til ÚkraínuherslSlæmur aðbúnaður hjá rússneskum hermönnum Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is AFP/Alexander Shcherbak Úkraínustríðið Pútín ræðir hér við áhyggjufullar mæður hermanna í Úkraínu um gang styrjaldarinnar. ÞÝSKALAND Viðurkenna hungursneyðina sem þjóðarmorð Þýska þingið stefnir að því að samþykkja ályktun næsta mið- vikudag, þar sem hungursneyðin í Úkraínu á fjórða áratugnum verði formlega viðurkennd sem þjóðarmorð. Þingmenn úr bæði ríkisstjórn- arflokkunum þremur sem og kristilegu flokkunum standa að ályktuninni, en sérstakur minningardagur verður um hungursneyðina, sem kölluð er Holodomor í Úkraínu, í dag. Hungursneyðin geisaði árin 1932-33, en áætlað er að á bilinu 3,5-5 milljónir manna hafi farist úr hungri á þeim tíma. Hafa sum- ir sagnfræðingar raunar áætlað að allt að tíu milljónir hafi farist vegna hungursneyðarinnar. Rússar hafa ávallt neitað því að hungursneyðin hafi verið af mannavöldum, og Sovétmenn þrættu fyrir það fram á níunda áratuginn að hungursneyð hefði yfirhöfuð verið í Úkraínu. Sagnfræðingar á borð við Timothy Snyder og Anne App- lebaum hafa hins vegar sagt að hungursneyðin hafi verið þjóðarmorð, og að sérstaklega hafi vakað fyrir Stalín, þáverandi einræðisherra Sovétríkjanna, að valda hungri meðal Úkraínu- manna. Frans páfi lýsti því yfir á mið- vikudaginn að hungursneyðin hefði verið þjóðarmorð af völdum Stalíns, en rúmenska og írska þingið samþykktu bæði í vikunni ályktanir þar sem hungursneyðin var viðurkennd sem annaðhvort glæpur eða þjóðarmorð gegn úkraínsku þjóðinni. AFP/Forsetaembætti Úkraínu Holodomor Rishi Sunak, forsætis- ráðherra Breta, við minnismerki um hungursneyðina í Kænugarði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.