Morgunblaðið - 26.11.2022, Side 25
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022
Verslað Nóg var að gera í verslunum í gær, á svörtum föstudegi, enda mörg góð tilboð í gangi. Ekki fylgir sögunni hvort hundurinn í þessari gleraugnaverslun hafi gert góð kaup.
Eggert Jóhannesson
Eitt af því ánægju-
lega á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins 4.-6.
nóvember var sam-
þykkt ítarlegrar álykt-
unar um velferðarmál.
Það er hvatning til for-
ystufólks Sjálfstæð-
isflokksins og rík-
isstjórnarinnar að
leggja aukinn þunga á
þann málaflokk. Að
neðan er samantekt á
nokkrum þáttum úr ályktun velferð-
arnefndar og nokkur viðbótaratriði
frá mér um mikilvægi FRELSIS í
þessum málaflokki sem öðrum.
Móta þarf nýja velferðar-
og heilbrigðisstefnu
Nýta þarf betur tækifærin í op-
inberum rekstri og ekki síst einka-
rekstri ef Landspítali á að geta sinnt
betur sínu kjarnahlutverki. Horfa
þarf til menntunar, tækiþróunar,
lýðheilsu og þarfa sjúklinga og heil-
brigðisstarfsfólks.
Efla þarf sérstaklega forvarnir og
endurhæfingu og ef nefna á einn
málaflokk sérstaklega þá eru það
geðheilbrigðismál, þar með talið ný
bygging fyrir geðheilbrigðisþjón-
ustu. Það þarf legudeild þeirra sem
eru í langtímameðferð og einnig
betri aðstöðu og þjónustu fyrir þá
sem þurfa skammtímameðferð og
dagdeildarþjónustu. Taka má undir
þá umræðu að undanförnu að geð-
rækt ætti að vera sjálfstæð náms-
grein í skólum og kenn-
arar ættu að vera
þjálfaðir til þessa verk-
efnis. Sama með upp-
byggilega endurhæf-
ingu og betrunarvist
fanga.
Samtímis uppbygg-
ingu LSH við Hring-
braut þarf að huga að
framtíðaraðstöðu fyrir
aðra sjúkrahúsþjón-
ustu. Slík sjúkra-
húsþjónusta gæti verið
hluti af heilbrigð-
iskjarna með fjölþætta
þjónustu svo sem heilsugæslustöð,
endurhæfingu, öldrunarlækningar
og sérfræðilækna. Fara þarf í grein-
ingu á framtíðarþörf og staðarvali
fyrir slíka sjúkrahúsþjónustu og
byggingu eða jafnvel nýta Landspít-
ala í Fossvogi. Vinna þarf þetta í
samstarfi við sveitarfélög á höf-
uðborgarsvæðinu og sjálfstætt
starfandi heilbrigðisstofnanir og
fyrirtæki. Slíkt sjúkrahús og tengd
starfsemi ætti að langstærstum
hluta að vera rekin af sjálfstætt
starfandi heilbrigðisstarfsfólki.
Endurskoða þarf lífeyris-
og almannatryggingakerfi
Málefni eldra fólks og öryrkja
ættu að vera aðskildir málaflokkar.
Koma þarf til móts við þá sem búa
við kröpp kjör og skapa svigrúm til
atvinnuþátttöku eldra fólks og ör-
yrkja án verulegrar skerðingar eins
og er í dag.
Til viðbótar við þetta vil ég per-
sónulega lýsa vonbrigðum með
framlögð fjáraukalög sem gera ráð
fyrir að eingreiðslan í ár sé skert um
helming úr kr. 53.100 í kr. 27.772 og
þetta hlýtur að verða lagfært í ann-
arri umræðu fjáraukalaga. Ekki síst
ber að horfa til þess að verðlag hefur
hækkað svo um munar, ekki síst
húsnæðiskostnaður sem er ör-
yrkjum og eldri borgurum oft afar
þungbær.
Nýta þarf einka-
framtakið betur
Sjúkratryggingar Íslands verða
að rækja betur hlutverk sitt. Úrbóta
er þörf á ýmsum sviðum svo sem
varðandi samningagerð og valfrelsi
notenda við kaup á þjónustu, fram-
fylgja eftirliti og stórauka stafræna
þjónustu. Sjúklingar og heilbrigðis-
starfsfólk þurfa að hafa fleiri en einn
valkost þegar kemur að sjúkra-
hússtarfsemi og almennri heilbrigð-
isþjónustu eins og t.d. gildir eftir að
Háskóli Íslands er ekki einn að sinna
háskólamenntun.
Tryggja þarf öllum landsmönnum
aðgengi að heilbrigðis- og velferðar-
þjónustu eins og best verður á kosið.
Þróa þarf tækni og tækifæri til að
nýta stafrænar lausnir. Samningar
þurfa að liggja fyrir um kaup á þjón-
ustu við sjúkrastofnanir og sérfræð-
inga á sviði heilbrigðis- og velferðar-
þjónustu fyrir alla landsmenn og
jafnræði skal ríkja á milli lands-
byggðar og höfuðborgarsvæðisins.
Jafna þarf aðstöðu einstaklinga með
kostnaðarþátttöku í ferða- og dval-
arkostnaði þegar slíkt er nauðsyn-
legt og einfalda ferlið við að sækja
endurgreiðslu með stafrænum
hætti.
Nýsköpun í velferðar- og heil-
brigðisþjónustu mun stuðla að auk-
inni hagkvæmni og gæðum í rekstri
og tækifærum til aukinna útflutn-
ingstekna.
Við menntun heilbrigðisstarfs-
fólks og fjárfestingu er þörf á fjöl-
breyttum rekstrarformum og fleiri
atvinnutækifærum, m.a. til að auka
áhuga ungs fólks á þessari starf-
semi. Virkjun bæði einkaframtaks
og ríkisreksturs á sviði nýsköpunar,
fjárfestinga og reksturs í heil-
brigðis- og velferðarþjónustu mun
stuðla að auknum útflutningstekjum
og hagvexti. Þetta getur komið veru-
lega til móts við kostnað heilbrigðis-
kerfisins.
Húsnæðismál ein af
grunnþörfum fólks
Ítarleg umfjöllun var um þann
málaflokk í ályktun velferðar-
nefndar, en þessi mál eru í ólestri
ekki síst vegna vanrækslu höfuð-
borgarinnar á hagkvæmum bygg-
ingarlóðum, einfaldara og hraðara
regluverki og vanþróaðs leigumark-
aðar almennt. Sjálfstæðisflokkurinn
vill að stuðlað verði að áherslu á
skattfrjálsa ráðstöfun séreignar-
sparnaðar inn á íbúðarlán til fram-
búðar svo og að aldraðir geti selt
sína íbúðareign án þess að andvirðið
skerði greiðslur frá Trygginga-
stofnun.
Frelsi fyrir fólk og fyrirtæki
Kjörorð landsfundar Sjálfstæðis-
flokksins var FRELSI. Velferðar-
mál snertir frelsi fólks, frelsi til að
velja sér heilbrigðisþjónustu bæði
sem þjónustuþegi og starfsmaður.
Aldraðir eiga að halda sínu frelsi en
ekki vera sviptir því á síðasta lífs-
skeiðinu. Velferðarsvið Reykjavík-
urborgar verður að geta veitt íbúum
aukið frelsi til að velja sér ein-
staklingsmiðaða þjónustu. Fólk utan
höfuðborgarsvæðisins verður að
hafa frelsi til að sækja sér heilbrigð-
isþjónustu sem mest til jafns við höf-
uðborgarbúa. Heilbrigðisstarfsfólk
þarf að hafa frelsi til að reka heil-
brigðisþjónustu og fyrirtæki á því
sviði enda slíkt grundvöllur þess að
fá t.d. lækna heim að loknu námi.
FRELSI á alls staðar heima, ekki
síst í velferðarmálum.
Ég vil að lokum þakka samstarfs-
fólki í velferðarnefnd fyrir mikið og
óeigingjarnt starf og árangurinn var
eftir því. Einnig þakka ég landsfundi
fyrir afar góðar undirtektir og von-
andi að eftir þeim verði farið.
Þorkell
Sigurlaugsson » Þakkir til lands-
fundar Sjálfstæð-
isflokksins fyrir sam-
þykkt velferðarstefnu
þar sem frelsið og upp-
stokkun kerfisins er í
fyrirrúmi.
Þorkell
Sigulaugsson
Höfundur er fráfarandi formaður vel-
ferðarnefndar og varaborgarfulltrúi í
Reykjavík.
Verðum flokkur frelsis og forystu í velferðarmálum