Morgunblaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022 Verslað Nóg var að gera í verslunum í gær, á svörtum föstudegi, enda mörg góð tilboð í gangi. Ekki fylgir sögunni hvort hundurinn í þessari gleraugnaverslun hafi gert góð kaup. Eggert Jóhannesson Eitt af því ánægju- lega á landsfundi Sjálf- stæðisflokksins 4.-6. nóvember var sam- þykkt ítarlegrar álykt- unar um velferðarmál. Það er hvatning til for- ystufólks Sjálfstæð- isflokksins og rík- isstjórnarinnar að leggja aukinn þunga á þann málaflokk. Að neðan er samantekt á nokkrum þáttum úr ályktun velferð- arnefndar og nokkur viðbótaratriði frá mér um mikilvægi FRELSIS í þessum málaflokki sem öðrum. Móta þarf nýja velferðar- og heilbrigðisstefnu Nýta þarf betur tækifærin í op- inberum rekstri og ekki síst einka- rekstri ef Landspítali á að geta sinnt betur sínu kjarnahlutverki. Horfa þarf til menntunar, tækiþróunar, lýðheilsu og þarfa sjúklinga og heil- brigðisstarfsfólks. Efla þarf sérstaklega forvarnir og endurhæfingu og ef nefna á einn málaflokk sérstaklega þá eru það geðheilbrigðismál, þar með talið ný bygging fyrir geðheilbrigðisþjón- ustu. Það þarf legudeild þeirra sem eru í langtímameðferð og einnig betri aðstöðu og þjónustu fyrir þá sem þurfa skammtímameðferð og dagdeildarþjónustu. Taka má undir þá umræðu að undanförnu að geð- rækt ætti að vera sjálfstæð náms- grein í skólum og kenn- arar ættu að vera þjálfaðir til þessa verk- efnis. Sama með upp- byggilega endurhæf- ingu og betrunarvist fanga. Samtímis uppbygg- ingu LSH við Hring- braut þarf að huga að framtíðaraðstöðu fyrir aðra sjúkrahúsþjón- ustu. Slík sjúkra- húsþjónusta gæti verið hluti af heilbrigð- iskjarna með fjölþætta þjónustu svo sem heilsugæslustöð, endurhæfingu, öldrunarlækningar og sérfræðilækna. Fara þarf í grein- ingu á framtíðarþörf og staðarvali fyrir slíka sjúkrahúsþjónustu og byggingu eða jafnvel nýta Landspít- ala í Fossvogi. Vinna þarf þetta í samstarfi við sveitarfélög á höf- uðborgarsvæðinu og sjálfstætt starfandi heilbrigðisstofnanir og fyrirtæki. Slíkt sjúkrahús og tengd starfsemi ætti að langstærstum hluta að vera rekin af sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólki. Endurskoða þarf lífeyris- og almannatryggingakerfi Málefni eldra fólks og öryrkja ættu að vera aðskildir málaflokkar. Koma þarf til móts við þá sem búa við kröpp kjör og skapa svigrúm til atvinnuþátttöku eldra fólks og ör- yrkja án verulegrar skerðingar eins og er í dag. Til viðbótar við þetta vil ég per- sónulega lýsa vonbrigðum með framlögð fjáraukalög sem gera ráð fyrir að eingreiðslan í ár sé skert um helming úr kr. 53.100 í kr. 27.772 og þetta hlýtur að verða lagfært í ann- arri umræðu fjáraukalaga. Ekki síst ber að horfa til þess að verðlag hefur hækkað svo um munar, ekki síst húsnæðiskostnaður sem er ör- yrkjum og eldri borgurum oft afar þungbær. Nýta þarf einka- framtakið betur Sjúkratryggingar Íslands verða að rækja betur hlutverk sitt. Úrbóta er þörf á ýmsum sviðum svo sem varðandi samningagerð og valfrelsi notenda við kaup á þjónustu, fram- fylgja eftirliti og stórauka stafræna þjónustu. Sjúklingar og heilbrigðis- starfsfólk þurfa að hafa fleiri en einn valkost þegar kemur að sjúkra- hússtarfsemi og almennri heilbrigð- isþjónustu eins og t.d. gildir eftir að Háskóli Íslands er ekki einn að sinna háskólamenntun. Tryggja þarf öllum landsmönnum aðgengi að heilbrigðis- og velferðar- þjónustu eins og best verður á kosið. Þróa þarf tækni og tækifæri til að nýta stafrænar lausnir. Samningar þurfa að liggja fyrir um kaup á þjón- ustu við sjúkrastofnanir og sérfræð- inga á sviði heilbrigðis- og velferðar- þjónustu fyrir alla landsmenn og jafnræði skal ríkja á milli lands- byggðar og höfuðborgarsvæðisins. Jafna þarf aðstöðu einstaklinga með kostnaðarþátttöku í ferða- og dval- arkostnaði þegar slíkt er nauðsyn- legt og einfalda ferlið við að sækja endurgreiðslu með stafrænum hætti. Nýsköpun í velferðar- og heil- brigðisþjónustu mun stuðla að auk- inni hagkvæmni og gæðum í rekstri og tækifærum til aukinna útflutn- ingstekna. Við menntun heilbrigðisstarfs- fólks og fjárfestingu er þörf á fjöl- breyttum rekstrarformum og fleiri atvinnutækifærum, m.a. til að auka áhuga ungs fólks á þessari starf- semi. Virkjun bæði einkaframtaks og ríkisreksturs á sviði nýsköpunar, fjárfestinga og reksturs í heil- brigðis- og velferðarþjónustu mun stuðla að auknum útflutningstekjum og hagvexti. Þetta getur komið veru- lega til móts við kostnað heilbrigðis- kerfisins. Húsnæðismál ein af grunnþörfum fólks Ítarleg umfjöllun var um þann málaflokk í ályktun velferðar- nefndar, en þessi mál eru í ólestri ekki síst vegna vanrækslu höfuð- borgarinnar á hagkvæmum bygg- ingarlóðum, einfaldara og hraðara regluverki og vanþróaðs leigumark- aðar almennt. Sjálfstæðisflokkurinn vill að stuðlað verði að áherslu á skattfrjálsa ráðstöfun séreignar- sparnaðar inn á íbúðarlán til fram- búðar svo og að aldraðir geti selt sína íbúðareign án þess að andvirðið skerði greiðslur frá Trygginga- stofnun. Frelsi fyrir fólk og fyrirtæki Kjörorð landsfundar Sjálfstæðis- flokksins var FRELSI. Velferðar- mál snertir frelsi fólks, frelsi til að velja sér heilbrigðisþjónustu bæði sem þjónustuþegi og starfsmaður. Aldraðir eiga að halda sínu frelsi en ekki vera sviptir því á síðasta lífs- skeiðinu. Velferðarsvið Reykjavík- urborgar verður að geta veitt íbúum aukið frelsi til að velja sér ein- staklingsmiðaða þjónustu. Fólk utan höfuðborgarsvæðisins verður að hafa frelsi til að sækja sér heilbrigð- isþjónustu sem mest til jafns við höf- uðborgarbúa. Heilbrigðisstarfsfólk þarf að hafa frelsi til að reka heil- brigðisþjónustu og fyrirtæki á því sviði enda slíkt grundvöllur þess að fá t.d. lækna heim að loknu námi. FRELSI á alls staðar heima, ekki síst í velferðarmálum. Ég vil að lokum þakka samstarfs- fólki í velferðarnefnd fyrir mikið og óeigingjarnt starf og árangurinn var eftir því. Einnig þakka ég landsfundi fyrir afar góðar undirtektir og von- andi að eftir þeim verði farið. Þorkell Sigurlaugsson » Þakkir til lands- fundar Sjálfstæð- isflokksins fyrir sam- þykkt velferðarstefnu þar sem frelsið og upp- stokkun kerfisins er í fyrirrúmi. Þorkell Sigulaugsson Höfundur er fráfarandi formaður vel- ferðarnefndar og varaborgarfulltrúi í Reykjavík. Verðum flokkur frelsis og forystu í velferðarmálum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.