Morgunblaðið - 26.11.2022, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022
DÆGRADVÖL46
Glæný verslun
Skeifunni 9
Troðfull af vörum fyrir öll gæludýr
Kauptúni 3, Garðabæ | Skeifan 9, Reykjavík | Sími 564 3364 | www.fisko.is
Opið virka daga 10-19, laugardag 10-18, sunnudag 12-18
kíktu í heimsókn
L i f and i v e r s l un
fy r i r ö l l gæ ludýr
Helena Rós Sigmarsdóttir, lögfræðingur hjá Ríkiskaupum – 50 ára
Setjum upp kærleiksgleraugun
H
elena Rós Sigmars-
dóttir er fædd 26. nóv-
ember 1972 á fæðingar-
deild Landspítalans í
Reykjavík, en foreldrar
hennar voru búsettir á Selfossi
1972-1973. Fjölskyldan flutti til Þor-
lákshafnar 1973 en þegar foreldrar
hennar slitu samvistum 1976 fluttu
mæðgurnar ásamt yngri tvíbura-
bræðrum í Kópavog. „Ég eignaðist
fljótlega yndislegan stjúpföður
og gekk fyrstu árin í grunnskóla í
Laugardalnum áður en fjölskyldan
flutti í Mosfellsbæ 1982.“
Helena gekk í Varmárskóla frá
10 ára og þar til grunnskólagöngu
lauk fyrir utan eitt ár sem hún tók í
Tjarnarskóla. Hún var í sveit í þrjú
sumur hjá föðurbróður sínum að
Jaðri í Hrunamannahreppi 7-9 ára
og svo í Syðstu-Mörk undir Eyja-
fjöllum 10-12 ára og eyddi páskum
oft í sveitinni. Hún var vinnumaður
í sveit 16 ára á Litlu-Ármóti austan
við Selfoss.
„Eftir grunnskóla lá leiðin í
Fjölbraut í Ármúla en sú vist varði
ekki lengi. Fljótlega lá leiðin vestur
á firði þar sem ég kynntist barns-
föður mínum. Við hófum búskap og
eignuðumst dótturina Ástríði Rán
um sumarið 1992 en leiðir skildu
þegar dóttirin var á öðru ári. Þá hóf
ég nám í Iðnskólanum í Reykjavík
og kláraði tækniteiknun jólin 1995.
Á meðan ég var í náminu kynntist
ég pabba strákanna minna. Stefnan
var sett á arkitektanám í Dan-
mörku. Við fluttum til Árósa í janú-
ar 1996 en fljótlega kom í ljós að við
vorum ekki bara þrjú sem höfðum
flutt þar sem laumufarþegar voru
í bumbunni og það ekki bara einn
heldur tveir. Námið var sett á bið
og við fluttum aftur til Íslands um
vorið. Eftir að drengirnir fæddust
flutti fjölskyldan í Hafnarfjörðinn.“
Helena fékk vinnu hjá lítilli
verkfræðistofu, var komin í stjórn
foreldrafélagsins í leikskólanum
og stjórn tvíburafélagsins sem var
blómlegur félagsskapur á þeim
tíma. Árið 2007 fór Helena aftur
í nám, byrjaði í verkfræði við HR
en eftir ár fór hún í lagadeildina
við HÍ. Hún kláraði BA í lögfræði
um vorið 2012 og masterinn
vorið 2014. Stjórnsýsla og opinber
innkaup vöktu áhuga hennar og
fjallaði meistararitgerðin um þann
málaflokk. Hún lauk svo námi til
löggildingar fasteigna- og skipasala
vorið 2016.
„Samhliða námi starfaði ég á
fasteignasölu en fékk svo starf hjá
gömlu verkfræðistofunni minni
og þá sem lögfræðingur. Þar fékk
ég frábæra reynslu og innsýn í
samningagerð, umhverfismál og
sjálfbærni.“ Þá reynslu tók hún með
sér þegar hún hóf störf hjá Ríkis-
kaupum sumarið 2019, þar sem hún
tók við eignasölu ríkisins ásamt
öðrum verkefnum.
„Haustið 2014 misstum við
Ástríði okkar en hún tók líf sitt á
Vogi eftir nokkuð snarpa en erfiða
viðureign við fíknisjúkdóm. Við tók
tímabil þar sem við sáum oft ekki
í gegnum þykka sorgarþokuna. Ég
leitaði til Nýrrar dögunar og fór í
alls kyns stuðningshópa til að gera
sorgina léttbærari. Einn dag rataði
ég til Birtu landssamtaka foreldra
sem misst hafa börn skyndilega.
Þar fann ég farveg fyrir sorgarúr-
vinnsluna og hitti foreldra sem gáfu
mér von um að geta lifað án þessa
nístandi sársauka í hjartanu sem
yfirtók allt. Ég var komin í stjórn
samtakanna árið 2015.
Það er kraftur í sorginni og ég var
staðráðin í að taka eitthvað jákvætt
með mér úr þessum missi úr því
sem komið var. Mér fannst mikil-
vægt að andlát Ástríðar væri ekki
tilgangslaust.“ Árið 2018 var Helena
kosin formaður samtakanna eftir að
hafa verið gjaldkeri árin á undan.
Birta var svo eitt aðildarfélag-
anna sem stóð að stofnun Sorgar-
miðstöðvar en tilviljun réði því að
stofndagurinn bar upp á sama dag
og dánardagur Ástríðar, þ.e. 12.
september 2019. Á þessum tíma var
Helena einnig komin í stjórn Krýsu-
víkursamtakanna auk þess að stýra
stuðningshópum fyrir aðstandend-
ur sem misst hafa í kjölfar fíknisjúk-
dóms. Hún leiðir enn stuðningshópa
fyrir aðstandendur þeirra sem
misst hafa í kjölfar fíknisjúkdóms
hjá Sorgarmiðstöð auk þess að vera
í stjórn Birtu landssamtaka. „Ég er
einnig ótrúlega stolt af því að hafa
átt þátt í því að koma á sorgarorlofi
fyrir foreldra sem misst hafa barn
undir 18 ára, það er bara byrjunin á
því að styðja við syrgjendur.
Við höfum gert ýmislegt til að
halda minningu Ástríðar á lofti og
sem dæmi má nefna að við komum
á fót Minningarsjóði Ástríðar
Ránar, Týra og Bimbó. Við höfum
komið fram í sjónvarpsþáttum og
heimildarmyndum og sagt söguna
okkar, hlaupið í Reykjavíkurmara-
þoninu og safnað áheitum sem
við höfum látið ganga til ungra
einstaklinga sem hafa farið út af
brautinni, haldið erindi, stutt við
Bergið Headspace stuðningssetur
fyrir ungt fólk og fleira. Svo lifir
minningin hennar Ástríðar alltaf
í litla guttanum hennar sem hefur
fengið mörg skemmtileg karakter-
einkenni frá móður sinni.
Það er svo mikilvægt að uppræta
fordóma gagnvart þeim sem þjást
af fíknisjúkdómi. Það gerum við t.d.
með því að fræða, spyrja og sýna
skilning, setja upp kærleiksgler-
augun og vekja athygli á því hversu
alvarlegur þessi sjúkdómur er.
Við fjölskyldan förum í skíðafrí,
spilum golf, ferðumst eins og við
höfum tök á og minnum okkur á að
lífið er núna. Við eigum líka yndis-
legan vinahóp sem hefur staðið með
okkur og hefur haldið okkur á floti.
Tímamótunum ætlum við hjónin að
eyða með fjölskyldunni og góðum
vinum.“
Fjölskylda
Eiginmaður Helenu er Jón Krist-
ján Ólason, f. 18.5. 1967, sjálfstætt
Reykjavíkurmaraþon 2018 Fjölskyldan og vinir hlupu í minningu Ástríðar
og söfnuðu áheitum til ungmenna sem höfðu villst af brautinni.
Tenerife 2022Helena með börnum, stjúpbörnum og elstu barnabörnum.
Til hamingju með daginn
Stjörnuspá
Hörður Halldórsson
40 ÁRA Hörður er Reykvík-
ingur, ólst upp í Vesturbænum
og býr í Árbænum. Hann er
útskrifaður í lögreglufræði frá
Háskólanum á Akureyri og
stjórnmálafræði frá Háskóla
Íslands. Hörður er lögreglu-
maður á höfuðborgarsvæðinu.
Áhugamál hans eru útivist og
hreyfing, en hann stundar hlaup
og hjólreiðar.
FJÖLSKYLDAMaki Harðar er
Ásdís Eva Lárusdóttir, f. 1989,
læknir í sérnámi, Synir þeirra
eru Kári Steinn, f. 2020, og Elvar
Örn, f. 2022. Foreldrar Harðar
eru hjónin Halldór Eiríksson, f.
1953, vinnur hjá ríkisskattstjóra,
og Svanlaug Vilhjálmsdóttir, f.
1955, grunnskólakennari. Þau
eru búsett í Reykjavík.
Nýr borgari
Reykjavík Elvar Örn Harðarson
fæddist 26. febrúar 2022 á Landspít-
alanum við Hringbraut. Hann vó 4.935
g og var 56 cm langur. Foreldrar hans
eru Hörður Halldórsson og Ásdís Eva
Lárusdóttir.
21. mars - 19. apríl A
Hrútur Þér finnst það skylda þín að
deila vitneskju þinni með öðrum. Ekki
gefast upp þó á móti blási, vindinn lægir
aftur.
20. apríl - 20. maí B
Naut Þú hefur ævinlega ferska sýn á
viðfangsefni þín. Það er gott að byrja
daginn í rólegheitum. Þú ert yfirleitt að
flýta þér of mikið.
21. maí - 20. júní C
Tvíburar Einu gildir hversu rólega
dagurinn fer af stað, það verður meira
en nóg að gera. Góðir vinir segja þér
sannleikann, þó að hann sé sár.
21. júní - 22. júlí D
Krabbi Einhver kann að hræða þig í dag
og draga úr þér kjark. Ef þú efast, skaltu
ráðfæra þig við ráðgjafa. Ekki eyða um
efni fram.
23. júlí - 22. ágúst E
Ljón Það getur reynst nauðsynlegt
að halda fast utan um hlutina til þess
að maður missi ekki frá sér ýmislegt
sem manni er kært. Heppnin eltir þig á
röndum.
23. ágúst - 22. september F
Meyja Einhver ráðgáta heldur fyrir þér
vöku en lausnarinnar er að leita þar
sem síst skyldi. Allt er gott í hófi.
23. september - 22. október G
Vog Rómantík og daður koma við sögu
í dag. Þér finnst ekki leiðinlegt að espa
fólk upp, passaðu samt að gera ekki of
mikið af því.
23. október - 21. nóvember H
Sporðdreki Sýndu öðrum tillitssemi
og umburðarlyndi og þú munt fá þá
framkomu endurgoldna þúsundfalt.
Taktu ekki meira að þér en þú getur
staðið við.
22. nóvember - 21. desember I
Bogmaður Þú kemst ekki lengur hjá
því að gera áætlanir fyrir framtíðina. Þú
sogar að þér fólk sem vill vinna með þér.
22. desember - 19. janúar J
Steingeit Mundu að besta leiðin til
þess að leiðbeina ungviðinu er að sýna
gott fordæmi. Annasamir dagar eru
framundan.
20. janúar - 18. febrúar K
Vatnsberi Svartsýni hvíslar í eyra þér
– eða kannski er það bara innsæið að
vara þig við. Ekki óttast að fara aðrar
leiðir en aðrir.
19. febrúar - 20. mars L
Fiskar Þú lætur ýmislegt í umhverfi
þínu fara í skapið á þér en mátt ekki láta
það bitna á þeim sem standa þér næst.
Málamiðlanir eru af hinu góða.