Morgunblaðið - 26.11.2022, Qupperneq 47
starfandi. Þau búa í norðurbæ
Hafnarfjarðar með kisunni Freyju.
Foreldrar Jóns eru Hjördís Björg
Jónsdóttir, fv. fulltrúi, f. 14.11. 1950,
og Óli Ómar Ólafsson bifreiðar-
stjóri, f. 7.2. 1948, gift í 55 ár, búsett
í Kópavogi.
Dóttir Helenu með Erlendi Hólm
Gylfasyni: Ástríður Rán Erlends-
dóttir, f. 31.7. 1992, d. 12.9. 2014, nemi
og afgreiðslukona. Sonur Ástríðar
með Arngrími Arngrímssyni er
Arngrímur Hólm Arngrímsson, f.
10.12. 2010. Synir Helenu með fyrri
maka, Stefáni Helga Jóhannes-
syni, eru tvíburarnir Askur Máni
Stefánsson sölumaður og Breki
Blær Stefánsson, sjómaður og sjálf-
stætt starfandi, f. 22.8. 1996, báðir
búsettir í Hafnarfirði. Stjúpbörn
Helenu eru 1) Birgir Ómar Jónsson,
f. 11.12. 1989, sölumaður, Reykjavík.
Börn: Emilía Ýr 8 ára og Anna Ýr
2 ára; 2) Rakel Bára Jónsdóttir,
f. 9.7. 1991, nemi, Selfossi. Börn:
Víkingur Davíð 12 ára, Anton Hrafn
5 ára og Sandra María 3 ára; 3) Jón
Kristján Jónsson, f. 9.10. 1993, nemi,
Reykjavík.
Systkini Helenu eru Ægir Snær
Sigmarsson, f. 5.5. 1974, fram-
reiðslumaður, Reykjavík; Hrannar
Már Sigmarsson, f. 5.5. 1974, starfar
við eignaumsjón fjárfestingafélags,
Reykjavík; Reynir Smári Atlason,
f. 30.6. 1985, doktor í umhverfis- og
auðlindafræði, Reykjavík.
Foreldrar Helenu: Ástríður
Sólrún Grímsdóttir, f. 13.3. 1955,
héraðsdómari við héraðsdóm
Reykjaness, búsett í Hafnarfirði, og
Sigmar Jóhannesson, f. 9.6. 1943, d.
26.6. 2006, sjómaður í Þorlákshöfn.
Stjúpfaðir Helenu er Atli Smári
Ingvarsson, f. 9.10. 1943, stoðtækja-
fræðingur, búsettur í Mosfellsbæ.
Helena Rós
Sigmarsdóttir
Sólveig Daníelsdóttir
húsfreyja á Steinsstöðum
Sigmar Sveinn Jóhannsson
bóndi á Steinsstöðum
í Tungusveit, Skagafirði
Jóhannes Sigmarsson
bóndi í Nesjum
Arnheiður Gísladóttir
húsfreyja í Nesjum í Grafningi
Sigmar Jóhannesson
sjómaður í Þorlákshöfn
Árný Valgerður Einarsdóttir
húsfreyja á Torfastöðum
Gísli Snorrason
bóndi á Torfastöðum í Grafningi
Ástríður Guðrún Eggertsdóttir
húsfreyja á Vattarnesi
Þórarinn Víkingur Grímsson
bóndi og útgerðarmaður
í Steinhúsi á Vattarnesi
Grímur Víkingur Þórarinsson
útgerðarmaður í Þorlákshöfn
S. Dagný Magnúsdóttir
húsfreyja í Þorlákshöfn
Þorbjörg Bjarnadóttir
húsfreyja í Marbakka, á
Eskifirði og í Reykjavík
Magnús Jónsson
bóndi og formaður í Marbakka
á Vattarnesi við Reyðarfjörð
Ætt Helenu Rósar Sigmarsdóttur
Ástríður Sólrún Grímsdóttir
héraðsdómari í Hafnarfirði
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022
DÆGRADVÖL 47
Vísnahorn
Ekki bryddir á barða
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Skáld, er keltum skemmtir vel.
Skegg á kjálkum þessi ber.
Hann í skó ég henta tel.
Hákarl stór og grimmur er.
Engin rétt lausn barst en
sjálfur skýrir Guðmundur gátuna
þannig:
Barði skáld hjá írum er.
Er á kjálka Barða skegg.
Barði skónumhentar hér.
Hangir barði á skemmuvegg.
Þá er limra:
Jón hélt við Gunnu í Garði,
sem gifst hafði Nóa á Barði,
hún eignaðist krakka
með Kidda frá Bakka
og kenndi hann Didda á Skarði.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Illa fiskast,ætla þó
enn að leggja net í sjó,
er hér gáta ofur létt,
svo eflaust fæ nú svörin rétt:
Til klæðagerðar hentar hann.
Í húsi megum finna þann.
Eins og selur synda kann.
Á sál og geði hressir mann.
Sturla Friðriksson yrkir um
þann, sem ekki getur lesið mat-
seðil á grísku (ort í Griklklandi í
ágúst 2007):
Ég stöðugt ermeðmér aðmelta
hvort súmanneskja þurfi að svelta
sem ekki kann eta
alfa eða beta,
epsilon, gamma og delta.
Sturla orti um hellisgöngu í
Slóveníu ferð:
Hellagöng virðast hér víða
og viðsjálft að þurfa að skríða
gegnum rottumjótt gat,
svona rétt eftir mat,
en reynandi að hella sér í það.
„Fært í stílinn“ eftir Davíð
Hjálmar Haraldsson:
„Ég hef etið á átjánda bjúga
og ostmeð og smérklípu drjúga
og jafðepli í potti"
sagði Jónas og glotti,
"en nú er ég líklega að ljúga.“
Einar Andrésson frá Bólu kvað:
Auðs þótt beinan akir veg
ævin treinistmeðan
þú flytur á einum eins og ég
allra seinast héðan.
Páll Ólafsson kvað:
Eykur Bleikur sprett á sprett,
spyrnir við af afli,
um harðar urðir líður létt,
logar á hverjum skafli.
„ÞETTA VERÐUR Í FYRSTA SINN SEM HANN
FER ÞETTA Á UNDIR 70 HÖGGUM.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... furunálafreyðibað.
HANN HEFUR ALDREI NÁÐ AÐ
KLÁRA AÐ LESA TÍMARITIÐ
„DOTTAÐ OG DREYMT“
TÓKI LÆKNIR ER
AÐ BJÓÐA FRAM
AÐSTOÐ SÍNA!
EN VIÐ LIFÐUM ORRUSTU
DAGSINS AF ÓSKAÐAÐIR!
MATURINN ER TIL!
DAGURINN ER
EKKI LIÐINN!
„GVÖÐ – GERÐIST ÉG NÚ SEKUR UM
HRÚTVÍKKUN ENN EINA FERÐINA?“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is