Morgunblaðið - 26.11.2022, Page 48

Morgunblaðið - 26.11.2022, Page 48
ÍÞRÓTTIR48 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022 Leikið við Eist- land og Svíþjóð Karlalandslið Íslands í knattspyrnumætir Eistlandi og Svíþjóð í vináttulandsleikjum á Algarve í Portúgal dagana 8. og 11. janúar. Leikirnir eru utan alþjóðlegra leikdaga þannig að þeir leikmenn sem spila í vetrar- deildunum verða væntanlega ekki með. Hins vegar ættu leikmenn liða í Svíþjóð, Noregi, Banda- ríkjunum og jafnvel Danmörku að geta komið í þetta verkefni. Fyrstu mótsleikir Íslands á árinu fara síðan fram í mars. Ljósmynd/Robert Spasovski Þjálfarinn Arnar Þór Viðarsson fer með liðið til Portúgals. Stjarnan upp að hlið Vals með stórsigri á Fram Stjarnan gerði sér lítið fyrir og vann 33:21-stórsigur á ríkjandi Íslandsmeisturum Fram er liðin mættust í 8. umferð úrvals- deildar kvenna í handknattleik, Olísdeildarinnar, í Framhúsinu í Úlfarsárdal í gærkvöldi. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Stjarnan var þó skrefi framar og leiddi með þremur mörkum, 12:9, í leikhléi. Í upphafi síðari hálfleiks skoruðu gestirnir úr Garðabænum fyrstu þrjú mörk hálfleiksins og náðu þannig sex marka forystu, 15:9. Stjarnan gekk í kjölfarið á lagið og 12 marka sigur var niðurstað- an. Stjarnan er í 2. sæti deildar- innar með 14 stig, jafnmörg og topplið Vals sem á þó leik til góða. Fram heldur kyrru fyrir í 4. sæti með 8 stig eftir átta leiki. Helena Rut Örvarsdóttir var markahæst með tíu mörk fyrir Stjörnuna. Eva Björk Davíðs- dóttir bætti við sjö mörkum og Darija Zecevic varði 14 skot í markinu. Hjá Fram var Steinunn Björns- dóttir markahæst með fimm mörk. Hafdís Renötudóttir varði 12 skot í marki liðsins. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon MarkahæstHelena Rut Örvarsdóttir skoraði tíu mörk fyrir Stjörnuna. Slagur um þriðja sæti í Höllinni Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik stefnir á sín fyrstu stig í undankeppni EM þegar það mætir Rúmeníu í Laugardalshöll- inni á morgun, sunnudag, klukk- an 16.30. Liðin tvö standa Spáni og Ungverjalandi nokkuð að baki og töpuðu bæði með miklummun fyrir þeim í vikunni en Rúmenía vann Ísland 65:59 í hörkuleik í fyrri umferðinni. Ísland myndi væntanlega tryggja sér þriðja sæti riðilsins með sjö stiga sigri á morgun. Ljósmynd/FIBA EM 2023 Þóra Kristín Jónsdóttir í leiknum gegn Spáni á fimmtudag. Englendingar sluppu AFP/Glyn Kirk Skoraði FamaraDiedhiou fagnar eftir að hafa skorað eittmarka Senegals gegn Katar. Senegalar eru á leið í úrslitaleik við Ekvador um sæti í 16-liða úrslitum. AFP/Kirill Kudryavtsev BesturMiðvörðurinn HarryMaguire hélt Englendingum á floti gegn bandaríska liðinu í gærkvöld og átti stórleik í vörn þeirra. lNánast öruggir áfram eftir jafntefli gegn BandaríkjunumlMega tapa með þremur mörkuml Íran nægir jafnteflilGestgjafarnir eru þegar úr leik HM Í KATAR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Englendingar eru með sæti í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins í Katar í höndunum eftir marka- laust jafntefli gegn Bandaríkjunum í B-riðlinum í gærkvöld. Stigið sem enska liðið náði án teljandi tilþrifa þýðir að það má tapa leiknum gegn Wales í loka- umferðinni með þriggja marka mun og fara samt áfram í sextán liða úrslitin. Miðvörðurinn Harry Maguire var bestur Englendinga og sá til þess að þeir sluppu með eitt stig út úr leiknum. Bandaríkjamenn voru sterkari aðilinn, fengu betri færi og Christ- ian Pulisic það besta þegar hann skaut í þverslá í fyrri hálfleiknum. Þeir urðu að leika til sigurs, þrjú stig hefðu fært þeim undirtökin í riðlinum, en þrátt fyrir góða frammistöðu á mótinu er banda- ríska liðið enn án sigurs og verður að vinna Íran í lokaumferðinni til þess að komast áfram. Íran stendur vel að vígi Íran vann mjög sanngjarnan sig- ur á Wales, 2:0, í hinum leik riðilsins enda þótt mörkin hafi ekki komið fyrr en á níundu og elleftu mínútu í uppbótartímanum. Íranir sýndu hvers vegna þeir eru efsta þjóð Asíu á heimslistanum og nú nægir þeim jafntefli gegn Bandaríkjamönnum í hreinum úrslitaleik liðanna um sæti í sextán liða úrslitunum. Walesbúar verða að vinna Englendinga til að eiga von um að komast áfram en þeir verða án markvarðarins reynda, Wayne Hennessey. Hann var rekinn af velli á 86. mínútu fyrir brot utan vítateigs og verður í banni gegn Englandi. Leikurinn sem hann hefði síst vilja missa af eftir að hafa spil- að allan ferilinn með enskum liðum. Hennessey er þriðji markvörður- inn í sögu HM til að vera rekinn af velli, á eftir Gianluca Pagliuca frá Ítalíu (1994) og Itumeleng Khune frá Suður-Afríku (2010). Holland í bestu stöðunni Eftir jafntefli Hollands og Ekvador, 1:1, í seinni leik A-riðilsins í gær er allt í járnum. Hollendingar standa þó afar vel að vígi. Þeir eiga eftir að mæta Katar og nægir jafntefli til að komast örugglega í sextán liða úrslitin. Viðureign Senegals og Ekvador verður því nánast hreinn úrslitaleikur um hvort liðanna fylgir Hollandi áfram. Það er einfaldlega vart hægt að ímynda sér að Katarar geti gert Hollendingum óleik og sigrað þá í lokaumferðinni. Enner Valencia er liði Ekvador ótrúlega mikilvægur. Hann skoraði þrjú síðustu mörk liðsins síðast þegar það lék á HM og hefur skorað öll þrjú mörk þess á mótinu í Katar. Valencia jafnaði í byrjun síðari hálfleiks í gær, eftir að Cody Gakpo hafði komið Hollendingum yfir þegar aðeins fimm mínútur voru búnar af leiknum. Heimamenn fara heim Katar er önnur gestgjafaþjóðin í sögu heimsmeistarakeppninnar sem kemst ekki áfram úr riðla- keppninni. Áður höfðu aðeins Suð- ur-Afríkumenn orðið þess vafasama heiðurs aðnjótandi árið 2010. Senegalar unnu sannfærandi sigur, 3:1, á Köturum í gær og sýndu að þeir gætu skorað mörk án Sadio Mané. Mohammed Muntari gaf Katar von þegar hann minnkaði muninn í 2:1 seint í leiknum en sex mínútum síðar tók Bamba Dieng af öll tvímæli fyrir Senegala með því að skora þriðja mark þeirra. Olísdeild karla Hörður – Valur........................................ 28:45 Staðan: Valur 11 10 0 1 377:309 20 Afturelding 10 6 2 2 301:275 14 FH 10 6 2 2 291:285 14 Fram 11 5 3 3 328:322 13 ÍBV 10 5 2 3 334:304 12 Stjarnan 10 4 3 3 295:285 11 Selfoss 10 4 1 5 301:311 9 Grótta 9 3 2 4 251:249 8 KA 10 3 2 5 283:297 8 Haukar 10 3 1 6 290:284 7 ÍR 10 2 1 7 281:342 5 Hörður 11 0 1 10 317:386 1 Grill 66-deild karla Fram U – Þór .......................................... 20:27 Olísdeild kvenna Fram – Stjarnan ...................................... 21:33 Staðan: Valur 7 7 0 0 203:157 14 Stjarnan 8 7 0 1 245:187 14 ÍBV 7 5 0 2 190:175 10 Fram 8 4 0 4 213:195 8 KA/Þór 7 2 0 5 170:195 4 Haukar 7 2 0 5 192:204 4 Selfoss 7 1 0 6 183:213 2 HK 7 1 0 6 158:228 2 Frakkland Nimes – Aix ............................................. 31:33  Kristján Örn Kristjánsson lék ekki með Aix vegna meiðsla. Séléstat – Istres .................................... 32:39  Grétar Ari Guðjónsson varði 6 skot í marki Séléstat. Danmörk Fredericia – Lemvig.............................. 25:21  Einar Þorsteinn Ólafsson komst ekki á blað hjá Fredericia. Guðmundur Þ. Guð- mundsson þjálfar liðið.  Daníel Freyr Andrésson varði 3 skot í marki Lemvig. Svíþjóð Skövde – Önnered................................. 28:28  Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 7 mörk fyrir Skövde. Redbergslid – Sävehof......................... 27:29  Tryggvi Þórisson skoraði 1 mark fyrir Sävehof. HM í Katar A-RIÐILL: Katar - Senegal........................................... 1:3 Mohammed Muntari 78. – Boulaye Dia 41., Famara Diedhiou 48., Bamba Dieng 84. Holland – Ekvador...................................... 1:1 Cody Gakpo 6. – Enner Valencia 50. Staðan: Ekvador 2 1 1 0 3:1 4 Holland 2 1 1 0 3:1 4 Senegal 2 1 0 1 3:3 3 Katar 2 0 0 2 1:5 0 Í lokaumferðinni leikur Holland við Katar og Senegal við Ekvador. B-RIÐILL: Wales – Íran ............................................... 0:2 Rouzbeh Cheshmi 90+9., Ramin Rezaei- an 90+11. Rautt spjald: Wayne Hennessey (Wales) 86. England – Bandaríkin ............................. 0:0 Staðan: England 2 1 1 0 6:2 4 Íran 2 1 0 1 4:6 3 Bandaríkin 2 0 2 0 1:1 2 Wales 2 0 1 1 1:3 1 Í lokaumferðinni leikur England viðWales og Bandaríkin við Íran. MARKAHÆSTIRÁHM: Enner Valencia, Ekvador .............................. 3 Olivier Giroud, Frakklandi ........................... 2 Richarlison, Brasilíu ...................................... 2 Bukayo Saka, Englandi ................................. 2 Mehdi Taremi, Íran........................................ 2 Ferran Torres, Spáni ..................................... 2 Cody Gakpo, Hollandi.................................... 2 LEIKIRUMHELGINA: L10 D Túnis – Ástralía L13 C Pólland – Sádi-Arabía L16 D Frakkland – Danmörk L19 C Argentína – Mexíkó S10 E Japan – Kostaríka S13 F Belgía – Marokkó S16 F Króatía – Kanada S19 E Spánn – Þýskaland Holland Fortuna Sittard – VVAlkmaar ............ 4:0  Hildur Antonsdóttir kom inn á hjá Fort- una á 73. mínútu. Lið hennar er í þriðja sæti deildarinnar. KÖRFUKNATTLEIKUR Undankeppni EM kvenna: Laugardalshöll: Ísland – Rúmenía ..... S16.30 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: KA-heimilið: KA/Þór – ÍBV...................... L15 Selfoss: Selfoss – HK ................................. L16 Ásvellir: Haukar – Valur ........................... L16 Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Eyjar: ÍBV – KA.......................................... S14 Seltjarnarnes: Grótta – Selfoss ............... S18 Úlfarsárdalur: Fram – Stjarnan......... S19.40

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.