Morgunblaðið - 26.11.2022, Side 50

Morgunblaðið - 26.11.2022, Side 50
MENNING50 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022 Við erum Aluu nýji þjónustuaðilinn þinn Ert þú að leita að ræstingaþjónustu og fullnægjandi lausnum fyrir fyrirtækið þitt? Við bjóðum upp á sérlausnir í ræstingum og lausnir fyrir fyrirtæki og einstaklinga á höfuðborgarsvæðinu.  Hótel  Gististaði  Skrifstofur  Vinnustaða lausnir  Sameignir  Djúpþrif og flutningsþrif  Þjálfað og reynslumikið starfsfólk  Sólarhrings bakvakt Ármúli 21, 108 Reykjavík aluu.is info@aluu.is +354 539 8613 Við erum Alltaf til Taks til að gefa þér lausan tíma Fagna útgáfuafmæli Annarrar Mósebókar Hljómsveitin Moses Hightower fagnar því að í ár eru 10 ár liðin frá því platan Önnur Mósebók kom út hjá Record Records. „Segja má að platan hafi hitt í mark, því auk hressilegrar sölu og einróma lofs gagnrýnenda var hún valin plata ársins 2012 af Frétta- blaðinu, komst á Kraumslistann, fékk Menningarverðlaun DV og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir lagasmíðar og textagerð auk tilnefninga fyrir plötu, lag, söngvara og upptökustjóra ársins,“ segir í tilkynningu frá sveitinni. Til að fagna útgáfuafmælinu heldur Moses Hightower tvenna tónleika í Norður- ljósum Hörpu í kvöld, kl. 18 og kl. 21, en þegar er uppselt á seinni tón- leikana. Sveitin heldur einnig tónleika á Græna hattinum á Akureyri annað kvöld kl. 21. Á tónleikunum verður platan í heild og aðrir smellir leiknir af Moses í sparifötunum. Kampakátir Moses Hightower. Arnar Ásgeirsson með sýningu í Y gallery Import - export, forever logistic nefnist sýning sem Arnar Ásgeirs- son opnar í Y gallery í Hamraborg 12, í húsnæði gömlu Olís bensín- stöðvarinnar, í dag kl. 15. „Á sýningunni í gömlu bensínstöðinni leikur Arnar Ásgeirsson við fagur- fræði Hamraborgarinnar og raðar saman verkum sem sækja inn- blástur til nærumhverfisins. Verk- in á sýningunni fjalla um myndmál verslunar á hversdagslegum varningi, innflutning og útflutning; og það sem úreldist. Það eru ekki aðeins hlutirnir í kringum okkur sem hreyfast til og frá, heldur erum við sjálf farþegar á stöðugri ferð tímans. Á eilífum flótta undan síðasta söludegi,“ segir í tilkynn- ingu frá sýningarstað. Far Arnar Ásgeirsson skoðar hvernig við erum sjálf farþegar tímans. Hús Iðnaðarbankans við Lækjar- götu reis á árunum 1959-1962 en rúmum fimm áratugum síðar var það jafnað við jörðu. Anna María Bogadóttir arkitekt skrásetti niður- rif byggingarinnar, sem hún segir mjög táknrænt, bæði með kvikmynd og á bók. Verkin bera hvort um sig titilinn Jarðsetning. „Upphaflega fékk ég leyfi til þess að vera með kveðjuathöfn eða Jarðsöng. Það var haustið 2017 í aðdraganda niðurrifsins. Það var fyrsta skref- ið í þessu ferli. Við hlustuðum á bygginguna og hún ljóm- aði og ómaði í hinsta sinn. Svo hófst niðurrifið skömmu síðar. Þá var ég orðin tengd byggingunni og fannst mikilvægt að fylgja henni til enda,“ segir Anna María. Hún fékk kvikmyndagerðarmann- inn Loga Hilmarsson, sem hafði tekið jarðsönginn upp, í lið með sér við að skrásetja niðurrifið. Næstu mánuði fylgdust þau með fram- kvæmdinni í samstarfi við Andrés Lyngberg sem stýrði henni fyrir hönd ABLtaks. Varpar ljósi á endalokin „Niðurrifið var magnað sjónar- spil.“ Nú hvílir byggingin á nokkrum urðunarstöðum í ná- grenni við höfuðborgina og segir Anna ótrúlegt magn efna hafa verið urðað. Hún bendir á hvernig við erum vön viðburðum í kringum það þegar byggingar eru reistar. Líkön eru kynnt við mikla viðhöfn, fyrstu skóflustungum er fagnað og haldin eru reisugilli. Við veitum því hins vegar litla athygli þegar byggingar eru jafnaðar við jörðu. „Það var markmiðið að varpa ljósi á endalok þess sem við erum að kasta frá okk- ur. Mig langaði að veita endalokun- um athygli og þakka fyrir.“ Anna segir bygginguna, sem reist var eftir teikningum Halldórs H. Jónssonar, hafa einkennst af ákveðn- um glamúr en þó hafi hún verið stíl- hrein og áhersla lögð á notagildi. Hvít- pússaðir fletir, sverar súlur, glerjaðar framhliðar og voldugur hringstigi hafi meðal annars einkennt hönnunina. „Þessi bygging var hluti af heild- stæðu skipulagi. Öll timburhúsin sem standa þarna í kring í dag áttu að víkja og allt átti að draga dám af alþjóðlegum módernisma. En það var líka andstaða við þetta skipulag og minna varð úr áætluðu niðurrifi. Þessi bygging var alla tíð umdeild en hugmyndafræðin sem hún ber með sér kom samt sterk inn í sam- félagið og hefur verið ríkjandi. Byggingin er táknmynd fram- farahyggju eftirstríðsáranna sem ruddi burt því sem fyrir var. Þá var ríkjandi trúin á að uppsprettur jarðarinnar væru ótakmarkaðar ríkjandi og hraðinn að aukast. Fyrir mér varð þessi bygging fórnarlamb eigin hugmyndafræði.“. Öllu tjaldað til „Önnur ástæða fyrir því að mér finnst þessi bygging táknræn er að þetta er banki iðnaðarins. Iðnaðar- bankinn er stofnaður 1953 og hann átti að efla handiðnað og ekki síður verksmiðjuiðnað. Öllu var tjald- að til við gerð þessa stórhýsis og því dæmi um vandað handverk í íslenskum iðnaði. Það var margt táknrænt í enda- lokum þessarar byggingar varðandi kerfislegt hrun og svo er þetta líka bankahrun. Hún kjarnar svo ótrú- lega margt í okkar samtíma sem við þurfum að kveðja og kveðja fallega. Í sjálfu sér hefði ég viljað láta þessa byggingu standa. Hún er hluti af sögunni og vistvænustu byggingarnar eru auðvitað þær sem þegar standa. Í verkinu nota ég þessa byggingu sem tákn um hið byggða almennt og að hlúa þurfi betur að auði jarðarinnar.“ Með niðurrifi byggingarinnar séum við að kveðja ákveðna hugmyndafræði. Það að gera bókverk um niður- rifið og jarðsetninguna segir Anna að hafi sprottið í kjölfarið og voru skrifin fyrst um sinn hluti af því að vinna myndina. Þegar tökum lauk fór hún að hugsa hvernig hægt væri að ramma myndina inn. „Ég var einnig að skrifa um þetta fræðilega en fann ekki minn takt í verkinu í hefðbundnum fræðileg- um farvegi. Svo fór ég í ritlistar- búðir til Guðrúnar Evu Mínervu- dóttur og komst þá á sporið með að nálgast þetta út frá mér sem manneskju. Ég hóf að skrifa um mína tilvist í hinu byggða, tengt lífi banka og bygginga almennt.“ Úr varð að hún leyfði myndinni að vera hrein sjónræn frásögn og raddirnar fengu pláss í bókinni. Börn velferðarsamfélagsins Anna segir Iðnaðarbankahúsið mikilvæga byggingu en hún hafi þó ekki verið hennar uppáhalds- bygging. Því hafi hluti af ferlinu verið að átta sig á því af hverju hún var svona upptekin af þessu niður- rifi. „Ég komst að því að ég er barn þessa formfasta velferðarsamfé- lags, hluti af módernískri arfleifð líkt og byggingin.“ Í bókinni, sem gefin er út af Angústúru í samstarfi við Úrbanistan og hönnuð af Snæfríði Þorsteins, mætast saga þessa húss, persónuleg frásögn og vangaveltur um hvaðan við sem samfélag erum að koma og hvert við stefnum. Þótt Anna hafi ekki áður skrifað á sama hátt og í Jarðsetningu segist hún talsvert hafa nýtt bókmennt- ir við kennslu í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Hún hafi unnið með tengsl bókmennta og arkitektúrs og frásagnir sem felast í byggingarlist. „Ég lærði menningarfræði og bókmenntir, ég kem úr heimi hugvísinda og flétta honum inn í mína arkitektúrpraxís. Mikilvægur hluti af arkitektúr er að teikna upp sögur sem við eigum eftir að lifa í,“ segir hún og bætir við að arkitekt- ar þurfi að vera í samtali og miðla þekkingu sinni til þess að fleiri öðlist færni til að lesa og meta verðmæti í umhverfinu. Kvikmyndin Jarðsetning verður sýnd í Bíó Paradís á morgun, sunnudaginn 27. nóvember, kl. 14:45 og aftur á miðvikudag 30. nóvember kl. 14. lAnnaMaríaBogadóttir skrásetti niðurrif Iðnaðarbankahússins við Lækjargötumeð kvikmynd og bóklSegir bygginguna táknmynd ákveðins hugsunarháttar sem samfélagið verði að kveðja Fórnarlamb eigin hugmyndafræði Stilla/Jarðsetning Sjónarspil „Niðurrifið var magnað sjónarspil,“ segir Anna María sem skrásetti endalok Iðnaðarbankahússins. Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Anna María Bogadóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.