Morgunblaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 50
MENNING50
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022
Við erum Aluu
nýji þjónustuaðilinn þinn
Ert þú að leita að ræstingaþjónustu
og fullnægjandi lausnum fyrir fyrirtækið þitt?
Við bjóðum upp á sérlausnir í
ræstingum og lausnir fyrir
fyrirtæki og einstaklinga á
höfuðborgarsvæðinu.
Hótel
Gististaði
Skrifstofur
Vinnustaða lausnir
Sameignir
Djúpþrif og flutningsþrif
Þjálfað og reynslumikið starfsfólk
Sólarhrings bakvakt
Ármúli 21, 108 Reykjavík aluu.is info@aluu.is +354 539 8613
Við erum Alltaf til Taks
til að gefa þér lausan tíma
Fagna útgáfuafmæli Annarrar Mósebókar
Hljómsveitin Moses Hightower fagnar
því að í ár eru 10 ár liðin frá því platan
Önnur Mósebók kom út hjá Record
Records. „Segja má að platan hafi
hitt í mark, því auk hressilegrar sölu
og einróma lofs gagnrýnenda var
hún valin plata ársins 2012 af Frétta-
blaðinu, komst á Kraumslistann,
fékk Menningarverðlaun DV og hlaut
Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir
lagasmíðar og textagerð auk tilnefninga fyrir plötu, lag, söngvara og
upptökustjóra ársins,“ segir í tilkynningu frá sveitinni. Til að fagna
útgáfuafmælinu heldur Moses Hightower tvenna tónleika í Norður-
ljósum Hörpu í kvöld, kl. 18 og kl. 21, en þegar er uppselt á seinni tón-
leikana. Sveitin heldur einnig tónleika á Græna hattinum á Akureyri
annað kvöld kl. 21. Á tónleikunum verður platan í heild og aðrir smellir
leiknir af Moses í sparifötunum.
Kampakátir Moses Hightower.
Arnar Ásgeirsson með sýningu í Y gallery
Import - export, forever logistic
nefnist sýning sem Arnar Ásgeirs-
son opnar í Y gallery í Hamraborg
12, í húsnæði gömlu Olís bensín-
stöðvarinnar, í dag kl. 15. „Á
sýningunni í gömlu bensínstöðinni
leikur Arnar Ásgeirsson við fagur-
fræði Hamraborgarinnar og raðar
saman verkum sem sækja inn-
blástur til nærumhverfisins. Verk-
in á sýningunni fjalla um myndmál
verslunar á hversdagslegum
varningi, innflutning og útflutning;
og það sem úreldist. Það eru ekki
aðeins hlutirnir í kringum okkur
sem hreyfast til og frá, heldur
erum við sjálf farþegar á stöðugri
ferð tímans. Á eilífum flótta undan
síðasta söludegi,“ segir í tilkynn-
ingu frá sýningarstað.
Far Arnar Ásgeirsson skoðar hvernig
við erum sjálf farþegar tímans.
Hús Iðnaðarbankans við Lækjar-
götu reis á árunum 1959-1962 en
rúmum fimm áratugum síðar var
það jafnað við jörðu. Anna María
Bogadóttir arkitekt skrásetti niður-
rif byggingarinnar, sem hún segir
mjög táknrænt, bæði með kvikmynd
og á bók. Verkin bera hvort um sig
titilinn Jarðsetning.
„Upphaflega fékk ég leyfi til þess
að vera með kveðjuathöfn eða
Jarðsöng. Það
var haustið 2017
í aðdraganda
niðurrifsins. Það
var fyrsta skref-
ið í þessu ferli.
Við hlustuðum
á bygginguna
og hún ljóm-
aði og ómaði í
hinsta sinn. Svo
hófst niðurrifið
skömmu síðar.
Þá var ég orðin tengd byggingunni
og fannst mikilvægt að fylgja henni
til enda,“ segir Anna María.
Hún fékk kvikmyndagerðarmann-
inn Loga Hilmarsson, sem hafði
tekið jarðsönginn upp, í lið með sér
við að skrásetja niðurrifið. Næstu
mánuði fylgdust þau með fram-
kvæmdinni í samstarfi við Andrés
Lyngberg sem stýrði henni fyrir
hönd ABLtaks.
Varpar ljósi á endalokin
„Niðurrifið var magnað sjónar-
spil.“ Nú hvílir byggingin á
nokkrum urðunarstöðum í ná-
grenni við höfuðborgina og segir
Anna ótrúlegt magn efna hafa verið
urðað.
Hún bendir á hvernig við erum
vön viðburðum í kringum það þegar
byggingar eru reistar. Líkön eru
kynnt við mikla viðhöfn, fyrstu
skóflustungum er fagnað og haldin
eru reisugilli. Við veitum því hins
vegar litla athygli þegar byggingar
eru jafnaðar við jörðu. „Það var
markmiðið að varpa ljósi á endalok
þess sem við erum að kasta frá okk-
ur. Mig langaði að veita endalokun-
um athygli og þakka fyrir.“
Anna segir bygginguna, sem reist
var eftir teikningum Halldórs H.
Jónssonar, hafa einkennst af ákveðn-
um glamúr en þó hafi hún verið stíl-
hrein og áhersla lögð á notagildi. Hvít-
pússaðir fletir, sverar súlur, glerjaðar
framhliðar og voldugur hringstigi hafi
meðal annars einkennt hönnunina.
„Þessi bygging var hluti af heild-
stæðu skipulagi. Öll timburhúsin
sem standa þarna í kring í dag áttu
að víkja og allt átti að draga dám af
alþjóðlegum módernisma. En það
var líka andstaða við þetta skipulag
og minna varð úr áætluðu niðurrifi.
Þessi bygging var alla tíð umdeild
en hugmyndafræðin sem hún ber
með sér kom samt sterk inn í sam-
félagið og hefur verið ríkjandi.
Byggingin er táknmynd fram-
farahyggju eftirstríðsáranna sem
ruddi burt því sem fyrir var. Þá
var ríkjandi trúin á að uppsprettur
jarðarinnar væru ótakmarkaðar
ríkjandi og hraðinn að aukast. Fyrir
mér varð þessi bygging fórnarlamb
eigin hugmyndafræði.“.
Öllu tjaldað til
„Önnur ástæða fyrir því að mér
finnst þessi bygging táknræn er að
þetta er banki iðnaðarins. Iðnaðar-
bankinn er stofnaður 1953 og hann
átti að efla handiðnað og ekki síður
verksmiðjuiðnað. Öllu var tjald-
að til við gerð þessa stórhýsis og
því dæmi um vandað handverk í
íslenskum iðnaði.
Það var margt táknrænt í enda-
lokum þessarar byggingar varðandi
kerfislegt hrun og svo er þetta líka
bankahrun. Hún kjarnar svo ótrú-
lega margt í okkar samtíma sem við
þurfum að kveðja og kveðja fallega.
Í sjálfu sér hefði ég viljað láta
þessa byggingu standa. Hún er
hluti af sögunni og vistvænustu
byggingarnar eru auðvitað þær
sem þegar standa. Í verkinu nota
ég þessa byggingu sem tákn um hið
byggða almennt og að hlúa þurfi
betur að auði jarðarinnar.“ Með
niðurrifi byggingarinnar séum við
að kveðja ákveðna hugmyndafræði.
Það að gera bókverk um niður-
rifið og jarðsetninguna segir Anna
að hafi sprottið í kjölfarið og voru
skrifin fyrst um sinn hluti af því að
vinna myndina. Þegar tökum lauk
fór hún að hugsa hvernig hægt væri
að ramma myndina inn.
„Ég var einnig að skrifa um þetta
fræðilega en fann ekki minn takt í
verkinu í hefðbundnum fræðileg-
um farvegi. Svo fór ég í ritlistar-
búðir til Guðrúnar Evu Mínervu-
dóttur og komst þá á sporið með
að nálgast þetta út frá mér sem
manneskju. Ég hóf að skrifa um
mína tilvist í hinu byggða, tengt
lífi banka og bygginga almennt.“
Úr varð að hún leyfði myndinni
að vera hrein sjónræn frásögn og
raddirnar fengu pláss í bókinni.
Börn velferðarsamfélagsins
Anna segir Iðnaðarbankahúsið
mikilvæga byggingu en hún hafi
þó ekki verið hennar uppáhalds-
bygging. Því hafi hluti af ferlinu
verið að átta sig á því af hverju hún
var svona upptekin af þessu niður-
rifi. „Ég komst að því að ég er barn
þessa formfasta velferðarsamfé-
lags, hluti af módernískri arfleifð
líkt og byggingin.“
Í bókinni, sem gefin er út
af Angústúru í samstarfi við
Úrbanistan og hönnuð af Snæfríði
Þorsteins, mætast saga þessa húss,
persónuleg frásögn og vangaveltur
um hvaðan við sem samfélag erum
að koma og hvert við stefnum.
Þótt Anna hafi ekki áður skrifað
á sama hátt og í Jarðsetningu segist
hún talsvert hafa nýtt bókmennt-
ir við kennslu í arkitektúr við
Listaháskóla Íslands. Hún hafi
unnið með tengsl bókmennta og
arkitektúrs og frásagnir sem felast
í byggingarlist.
„Ég lærði menningarfræði og
bókmenntir, ég kem úr heimi
hugvísinda og flétta honum inn í
mína arkitektúrpraxís. Mikilvægur
hluti af arkitektúr er að teikna upp
sögur sem við eigum eftir að lifa í,“
segir hún og bætir við að arkitekt-
ar þurfi að vera í samtali og miðla
þekkingu sinni til þess að fleiri
öðlist færni til að lesa og meta
verðmæti í umhverfinu.
Kvikmyndin Jarðsetning verður
sýnd í Bíó Paradís á morgun,
sunnudaginn 27. nóvember, kl.
14:45 og aftur á miðvikudag 30.
nóvember kl. 14.
lAnnaMaríaBogadóttir skrásetti niðurrif Iðnaðarbankahússins við Lækjargötumeð kvikmynd
og bóklSegir bygginguna táknmynd ákveðins hugsunarháttar sem samfélagið verði að kveðja
Fórnarlamb eigin hugmyndafræði
Stilla/Jarðsetning
Sjónarspil „Niðurrifið var magnað sjónarspil,“ segir Anna María sem skrásetti endalok Iðnaðarbankahússins.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Anna María
Bogadóttir