Morgunblaðið - 26.11.2022, Page 51

Morgunblaðið - 26.11.2022, Page 51
MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR ENCANTO KOMIN Í BÍÓ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI RALPH FIENNES NICHOLAS HOULT ANYA TAYLOR-JOY Painstakingly Prepared. Brilliantly Executed. SCREENDAILY IGN VANITYFAIR THEHOLLYWOOD REPORTER 91% USA TODAY ENTERTAINMENT WEEKLY EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post 84% Marína Ósk hefur vakið verðskuldaða athygli að undanförnu í íslenskum djassheimi og víðar. Hún hefur verið iðin við tónleikahald og útgáfu einnig, tvær plötur komu t.d. út 2019, Athvarf og svo hin magnaða Hjörtun okkar jóla hvar Stína Ágústsdóttir syngur með. Ein besta heppnaða jólaplata hérlend sem ég hef heyrt lengi lengi („Hjörtun okkar jóla... er þannig að maður eiginlega finnur fyrir dökk- brúnum, skandinavískum við þegar maður hlustar. Lykt af bökuðum eplum og greni flæðir úr hátölurunum ...“ Svo reit ég í blað þetta). Marína tók hús á mér á dögunum og sagði mér frá tilurð One Evening in July. Tónlistin þar er yndislegur frumsaminn djass í anda Chet Baker, Paul Desmond, Billie Holiday o.fl. Melódískur söngdjass frá sjötta og sjöunda áratugnum, ameríska söngbókin opin upp á gátt. Merkilegt að þetta er þriðja platan á stuttum tíma sem kemur úr þessari átt – sjá Rebekka Blöndal, Laufey – en allar nálgast þær þetta á sinn hátt. Mikael Máni Ásmundsson leikur á gítar á plötunni og bræðurnir Erik Tengholm og Johan Tengholm sjá um trompet og kontrabassa. Plat- an rúllar ljúflega eins og nærri má geta. Opnar með „Samtal við sólu“, þar sem íslenskan fær að dansa yfir smekklegum gítarslætti, unaðs- legum trompetleik og hrynföstum bassa. Sólríkt lag, eins og nafnið ber með sér, og við tekur „Einsemd“, ögn dramatískara – eins og nafnið ber og með sér! „Örlítil einsemd er stundum talin nauðsynleg/Aðeins í litlu magni þó,“ segir þar. Lögin eru ýmist á íslensku og ensku og restin af plötunni rúllar í þessum höfuga, notalega og umlykjandi gír. Platan er Marínu kær, eins og hún tjáði mér. Samin á tímabili þegar hún var að finna sig í tónlist, í leit að sínu tónlistarlega heimili, getum við sagt. Hún hóf að semja lög í þeim stíl sem lýst er í málsgreininni á undan og líka texta með „viðlíka magni af rómans og rjóma“ eins og hún orðar það kerknislega. Marína sagði mér einnig frá því hvernig bæði textar og melódíur komu oft til hennar þegar hún var stödd á staðnum sem er á milli svefns og vöku, þeim töfrastað. Hún tók meira að segja upp þann sið að sofa með skrifblokkina við hliðina á rúminu, svona til að festa hugmyndirnar fljótt og vel. Platan kom út í endaðan ágúst og rúllar á helstu streymisveitum, nema hvað. Fleiri form eru líka í umferð og helst ber að nefna glæsilega vínylútgáfu. Umslagið smekklega skreytt með teikningum eftir Rebeccu Santo, er hrjúft og fornbókalegt viðkomu, listrænn blær í anda umslaganna frá 4AD og fleiri svalra útgáfa. „Nærbuxur“ með þunnu, innra plasti til að vernda, og svo þykk og góð pressa. Mismunandi gerð af plötumiðum sem eru punkturinn yfir i-ið (Bjart kvöld á A-hlið á meðan það húmar að á B-hlið). Og meira til, m.a. taupoki með myndskreytingu plötunnar! Marína er iðin við kolann þessa mánuði, alls kyns hljómleikahald í gangi og nóvember og desember drekkhlaðnir af slíku stússi. Þá kom út nýtt lag fyrir stuttu, „Ástarorð í eyra“, sem hefur hlotið ágæta spilun enda leitun að ljúfari eyrnaormi. Upp rann bæði rómans og rjómi HeilMarína Ósk fer á kostum á plötu sinni One Evening in July. Marína sagði mér líka frá því hvernig bæði textar og melódíur komu oft til hennar þegar hún var stödd á staðnum sem er á milli svefns og vöku. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Plata djasssöngkonunnar og tónskáldsins Marínu Óskar, One Evening in July, markar þá stund er hún gekk inn í sitt tónlistarlega heimili, hlamm- aði sér niður og tók allt það pláss sem hún þurfti. Aðventuhátíð Bústaðakirkju Aðventuhátíð Bústaðakirkju fer fram á morgun kl. 17. Fram kemur sameiginlegur barnakór úr Tóngraf og Tónfoss sem og Kammerkór Bústaða- kirkju, þar sem einsöngvarar eru Bernedette Hegyi, Edda Austmann Harðardóttir, Gréta Hergils Valdimarsdóttir, Jóhann Friðgeir Valdimarsson ogMart- einn Snævarr Sigurðsson. Þórir kantór Bústaðakirkju stjórnar og leiðir hljómsveit, en með honum leika Bjarni Sveinbjörnsson á bassa, Eiríkur Örn Pálsson á trompet ogMatthías Stefánsson á fiðlu. Víðir Reynisson flytur hátíðarræðu. Jónas Þórir Undurfögur óreiða opnuð í Gallerí Fold Undurfögur óreiða nefnist sýning semUnnur Ýrr Helgadóttir opnar í Gallerí Fold í dag kl. 14. Unnur lauk BA-námi frá Listaháskóla Íslands árið 2005. „Djarfar lita- samsetningar og sterk frásögn einkenna myndir hennar sem eru oft með súrrealísku ívafi. Við fyrstu sýn getur verkið virst fallegt og sakleysislegt, en undir niðri kraumar dýpri merking, stundum dökkleit en alltaf hrá og heiðarleg. Fyrst og fremst eru verk hennar þó persónuleg og fjalla um það sem hún er að ganga í gegnum hverju sinni og viðkem- ur lífi hennar á einhvern hátt,“ segir í tilkynningu. Nýtt hlutverk Undirfögur óreiða er fyrsta sýning Unnar eftir að hún varð móðir og verkin endurspegla það.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.