Morgunblaðið - 26.11.2022, Page 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR ENCANTO
KOMIN Í BÍÓ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
RALPH
FIENNES
NICHOLAS
HOULT
ANYA
TAYLOR-JOY
Painstakingly Prepared.
Brilliantly Executed.
SCREENDAILY IGN VANITYFAIR THEHOLLYWOOD
REPORTER
91%
USA TODAY ENTERTAINMENT
WEEKLY
EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post
84%
Marína Ósk hefur vakið verðskuldaða
athygli að undanförnu í íslenskum
djassheimi og víðar. Hún hefur verið iðin
við tónleikahald og útgáfu einnig, tvær plötur
komu t.d. út 2019, Athvarf og svo hin magnaða
Hjörtun okkar jóla hvar Stína
Ágústsdóttir syngur með.
Ein besta heppnaða jólaplata
hérlend sem ég hef heyrt
lengi lengi („Hjörtun okkar
jóla... er þannig að maður
eiginlega finnur fyrir dökk-
brúnum, skandinavískum við
þegar maður hlustar. Lykt af bökuðum eplum og
greni flæðir úr hátölurunum ...“ Svo reit ég í blað
þetta).
Marína tók hús á mér á dögunum og sagði mér
frá tilurð One Evening in July. Tónlistin þar er
yndislegur frumsaminn djass í anda Chet Baker,
Paul Desmond, Billie Holiday o.fl. Melódískur
söngdjass frá sjötta og sjöunda áratugnum,
ameríska söngbókin opin upp á gátt. Merkilegt
að þetta er þriðja platan á stuttum tíma sem
kemur úr þessari átt – sjá Rebekka Blöndal,
Laufey – en allar nálgast þær þetta á sinn hátt.
Mikael Máni Ásmundsson leikur á gítar á
plötunni og bræðurnir Erik Tengholm og Johan
Tengholm sjá um trompet og kontrabassa. Plat-
an rúllar ljúflega eins og nærri má geta. Opnar
með „Samtal við sólu“, þar sem íslenskan fær
að dansa yfir smekklegum gítarslætti, unaðs-
legum trompetleik og hrynföstum bassa. Sólríkt
lag, eins og nafnið ber með sér, og við tekur
„Einsemd“, ögn dramatískara – eins og nafnið
ber og með sér! „Örlítil einsemd er stundum talin
nauðsynleg/Aðeins í litlu magni þó,“ segir þar.
Lögin eru ýmist á íslensku og ensku og restin
af plötunni rúllar í þessum höfuga, notalega og
umlykjandi gír.
Platan er Marínu kær, eins og hún tjáði mér.
Samin á tímabili þegar hún var að finna sig í
tónlist, í leit að sínu tónlistarlega heimili, getum
við sagt. Hún hóf að semja lög í þeim stíl sem
lýst er í málsgreininni á undan og líka texta með
„viðlíka magni af rómans og rjóma“ eins og hún
orðar það kerknislega.
Marína sagði mér einnig frá því hvernig bæði
textar og melódíur komu oft til hennar þegar
hún var stödd á staðnum sem er á milli svefns og
vöku, þeim töfrastað. Hún tók meira að segja upp
þann sið að sofa með skrifblokkina við hliðina á
rúminu, svona til að festa hugmyndirnar fljótt
og vel.
Platan kom út í endaðan ágúst og rúllar á
helstu streymisveitum, nema hvað. Fleiri form
eru líka í umferð og helst ber að nefna glæsilega
vínylútgáfu. Umslagið smekklega skreytt með
teikningum eftir Rebeccu Santo, er hrjúft og
fornbókalegt viðkomu, listrænn blær í anda
umslaganna frá 4AD og fleiri svalra útgáfa.
„Nærbuxur“ með þunnu, innra plasti til að
vernda, og svo þykk og góð pressa. Mismunandi
gerð af plötumiðum sem eru punkturinn yfir
i-ið (Bjart kvöld á A-hlið á meðan það húmar
að á B-hlið). Og meira til, m.a. taupoki með
myndskreytingu plötunnar!
Marína er iðin við kolann þessa mánuði, alls
kyns hljómleikahald í gangi og nóvember og
desember drekkhlaðnir af slíku stússi. Þá kom
út nýtt lag fyrir stuttu, „Ástarorð í eyra“, sem
hefur hlotið ágæta spilun enda leitun að ljúfari
eyrnaormi.
Upp rann bæði rómans og rjómi
HeilMarína Ósk fer á
kostum á plötu sinni
One Evening in July.
Marína sagði mér líka frá
því hvernig bæði textar og
melódíur komu oft til hennar
þegar hún var stödd á staðnum
sem er á milli svefns og vöku.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Plata djasssöngkonunnar og
tónskáldsins Marínu Óskar,
One Evening in July, markar
þá stund er hún gekk inn í sitt
tónlistarlega heimili, hlamm-
aði sér niður og tók allt það
pláss sem hún þurfti.
Aðventuhátíð
Bústaðakirkju
Aðventuhátíð
Bústaðakirkju
fer fram á
morgun kl. 17.
Fram kemur
sameiginlegur
barnakór úr
Tóngraf og
Tónfoss sem
og Kammerkór
Bústaða-
kirkju, þar sem einsöngvarar
eru Bernedette Hegyi, Edda
Austmann Harðardóttir, Gréta
Hergils Valdimarsdóttir, Jóhann
Friðgeir Valdimarsson ogMart-
einn Snævarr Sigurðsson. Þórir
kantór Bústaðakirkju stjórnar og
leiðir hljómsveit, en með honum
leika Bjarni Sveinbjörnsson á
bassa, Eiríkur Örn Pálsson á
trompet ogMatthías Stefánsson
á fiðlu. Víðir Reynisson flytur
hátíðarræðu.
Jónas Þórir
Undurfögur óreiða
opnuð í Gallerí Fold
Undurfögur óreiða nefnist sýning
semUnnur Ýrr Helgadóttir opnar
í Gallerí Fold í dag kl. 14. Unnur
lauk BA-námi frá Listaháskóla
Íslands árið 2005. „Djarfar lita-
samsetningar og sterk frásögn
einkenna myndir hennar sem
eru oft með súrrealísku ívafi.
Við fyrstu sýn getur verkið virst
fallegt og sakleysislegt, en undir
niðri kraumar dýpri merking,
stundum dökkleit en alltaf hrá
og heiðarleg. Fyrst og fremst eru
verk hennar þó persónuleg og
fjalla um það sem hún er að ganga
í gegnum hverju sinni og viðkem-
ur lífi hennar á einhvern hátt,“
segir í tilkynningu.
Nýtt hlutverk Undirfögur óreiða er
fyrsta sýning Unnar eftir að hún varð
móðir og verkin endurspegla það.