Morgunblaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 52
MENNING52
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022
Tvær sýningar verða opnaðar í dag í Listasafni
Reykjanesbæjar, annars vegar viðamikil sýning
á verkum Guðrúnar Gunnarsdóttur, Línur,
flækjur og allskonar, og hins vegar You Are Here/
Jestes tutaj/Du er her/Þú ert hér, sýning Venu
Naskrecka og Michael Richardt. Báðar verða
opnaðar kl. 14.
Guðrún er þekkt fyrir fjölbreytileg verk sín
og er list hennar lýst sem þráðlist af sýningar-
stjóra, Aðalsteini Ingólfssyni. Skrifar hann að
sú list sé „ótvírætt þrívíddarlist í klassískum
skilningi, þótt listakonan gangi í berhögg við
ýmsar siðvenjur sem fylgt hafa slíkri list frá
örófi alda“ og hirði ekki um að setja verk sín
á stalla og þar með bæði að upphefja þau og
staðsetja utan seilingar. „Þess í stað fá þau að
leika lausum hala í námunda við okkur, hanga
ofan úr lofti, fikra sig ofur varlega upp og niður
veggi, eða mynda smágerðar lífrænar einingar
niður við fótskör. Og í stað þess að kalla á
athygli, eins og stallsettir skúlptúrar óneitan-
lega gera, eru verk Guðrúnar gerð til að birtast
okkur eins og fyrir tilviljun, jafnvel koma
þægilega á óvart, ekki ósvipað og ljóðlínur með
óvæntu niðurlagi,“ skrifar Aðalsteinn og þó svo
Guðrún hafni sumum forsendum hins klassíska
skúlptúrs taki hún heilshugar undir dálæti
klassískra þrívíddarlistamanna á eðlisþáttum
efnisins og hafi t.d. látið þyngdaraflið gjarnan
stjórna framvindunni þegar hún einskorðaði sig
við ullarband eða mjúklegan hör.
Löngu tilbúin
Þegar Guðrún ræðir við blaðamann í síma á
þriðjudegi, 22. nóvember, eru enn margir dagar
í opnun en sýningin þó tilbúin og uppsett.
Blaðamaður segir það nú ekki venjuna að
myndlistarmenn séu með sýningu tilbúna
mörgum dögum fyrir opnun. Guðrún svarar
því kímin að þetta sé vani hjá safninu, að hafa
sýningar tilbúnar svo snemma svo hægt sé að
mynda þær fyrir bækling.
Elsta verkið á sýningunni er frá árinu 1977 og
nýjustu verkin frá þessu ári, 2022. Guðrún seg-
ir myndlistarferil sinn hafa hafist um 1975 eða
‘76 en verkið frá ‘77 sé það fyrsta stóra sem hún
hafi gert. Myndlistarnám stundaði hún aðallega
í Danmörku og á verkstæði því hún ætlaði sér
að verða vefari og var það vissulega framan
af ferlinum, í um 15 ár, eins og hún segir sjálf
frá. „Svo var ég alltaf að leita að einhverju sem
hentaði mínu skapferli og hugsun. Maður er
náttúrlega svolítið ferkantaður þegar maður er
að vefa, það er ekki hægt að leika sér neitt rosa-
lega mikið. Þannig að ég datt niður á vírinn,
ég hafði alltaf svo mikinn áhuga á þræðinum
sem slíkum, þræðinum sem línu, og það bara
opnuðust himnar fyrir mér,“ segir Guðrún frá.
Hún hafi verið á norrænni vinnustofu í Bergen
þegar þessi hugmynd kviknaði. „Ég fór að nota
vír þar í verkin mín og hef eiginlega haldið því
áfram síðan.“
Guðrún lýsir verkunum sínum sem þrívíddar-
teikningum. „Ég hengi yfirleitt verkin mín upp
á vegg en þau eru í raun skúlptúrar á vegg,
þrívíddarteikning,“ útskýrir hún. Og þráðurinn
getur verið margvíslegur hjá þráðlistakonunni,
ekki aðeins vír heldur líka ullarþráður, pappírs-
þráður og pappír sem er rifinn, klipptur og
settur saman aftur. „Ég nota mína eigin tækni,“
segir Guðrún. Nú sér blaðamaður fyrir sér alls
konar þræði og flækjur á vinnustofu Guðrúnar
og segir hún að jú, nóg sé af flækjum en það séu
þó skipulagðar flækjur.
Sýningarstjóri sýningarinnar er Aðalsteinn
Ingólfsson, sem fyrr segir og segir Guðrún að
hann hafi verið mjög eftirlátssamur og leyft
henni svolítið að stjórna. „Ég var búin að hugsa
þetta dálítið vel, hvaða verk ég myndi vilja sýna
og reyndi líka að hugsa salinn þannig að það
væri gaman og spennandi að ganga í gegnum líf
einhvers, næstum því,“ segir Guðrún. Ákveðin
verk tengi hún líka við ákveðin tímabil í sínu lífi.
Það er litadýrð í mörgum verkum Guðrúnar
og segist hún stundum nota gifsbönd sem hún
svo máli. Í nokkrum eldri verkummegi sjá jap-
anska pappírsþræði sem hún hafi ýmisst litað
í akrýlbaði eða vatnslitað. „Yfirleitt eru verkin
mín samsett úr nokkrum verkum þannig að
þau verða að einu stóru þegar búið er að hengja
þau upp,“ útskýrir Guðrún og að þrívíddin
verði sífellt stærri hluti af verkum hennar.
Gjörningalistamenn
Ekki má gleyma hinni sýningunni, You Are
Here/Jestes tutaj/Du er her/Þú ert hér en á henni
koma saman gjörningalistamennirnir Vena
Naskrecka og Michael Richardt. Naskrecka er
fædd í í Póllandi og býr og starfar í Reykjanes-
bæ og Richardt er danskur og hefur frá
árinu 2011 unnið með gjörningapersónu sína
Iridescence, birtingarmynd ljóss og litbrigða.
Sýning þeirra mun verða „vitnisburður um
hvar þau eru stödd á þessum ákveðna tíma-
punkti og skrásetning á því sem þeim er nú
hugleikið“, eins og því er lýst í tilkynningu.
„Þau eru hér og nú, erlendir ríkisborgar-
ar á Íslandi, að setja mark sitt á Listasafn
Reykjanesbæjar þar sem þau ríkja í ákveðinn
tíma,“ segir þar. Naskrecka vinnur að myndlist
á þverfaglegan hátt, með gjörningum, skúlptúr,
fundnum hlutum og myndbandi, og byggjast
viðfangsefni hennar meðal annars á heimspeki,
taugavísindum, fötlunarfræði og tækni. Hún
miðlar þeim með líkama sínum, lítur á hann
sem boðleið fyrir sjónræn, tilfinningaleg og
vitsmunaleg samskipti.
Richardt hefur unnið sem dansari fyrir We
Go, komið fram á Copenhagen Jazz Festival
í Danmörku og sem leikari í leiksýningunni
Polishing Icelandmeð Reykjavík Ensemble í
Tjarnarbíói. Sýningarstjóri er Helga Arnbjörg
Pálsdóttir listfræðingur.
lUmfangsmikil einkasýningGuðrúnarGunnarsdóttur þráðlistamanns verður opnuð í Listasafni
Reykjanesbæjar í daglVerk frá 1977 til 2022lListaverkin eru „eru í raun skúlptúrar á vegg“
„Datt niður á vírinn“
Ljósmynd/Vigfús Birgisson
Yfirlit Guðrún undir einu verka sinna á sýningunni Línur, flækjur og allskonar.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Mógil flytur Aðventu á aðventunni
Hljómsveitin Mógil leikur á tvennum
tónleikum á Norðurlandi um helgina og
lýkur tónleikaferð sinni með tónleikum
í Gunnarshúsi í Reykjavík í vikunni.
„Hljómsveitin mun flytja tónlist af
disknumAðventa sem gefinn var út
af hinu virta útgáfufélagi Winter &
Winter í Þýskalandi 2019. Tónlistin og
textarnir eru undir áhrifum hinn-
ar sígildu skáldsöguAðventu eftir
rithöfundinn Gunnar Gunnarsson og á tónleikunummun Orri Huginn
Ágústsson leikari lesa valinn texta úr bókinni,“ segir í tilkynningu.
Fyrstu tónleikarnir verða í Reykjahlíðarkirkju í Mývatnssveit í dag,
laugardag, kl. 16. Á morgun leikur sveitin í Akureyrarkirkju kl. 16.
Fimmtudaginn 1. desember kl. 20 í stofunni hans Gunnars Gunnarsson-
ar á Dyngjuvegi. Mógil skipa Heiða Árnadóttir söngkona, Hilmar Jens-
son á gítar, Kristín Þóra Haraldsdóttir á víólu og Eiríkur Orri Ólafsson
á trompet. Miðar fást á vefnum tix.is.
Hljómsveit Mógil á góðri stundu.
Bach á aðventunni í Hallgrímskirkju
Bach á aðventunni er yfirskrift
fyrstu tónleikanna í aðventu og
jólatónleikaröð Hallgrímskirkju
þetta árið sem haldnir verða á
morgun, sunnudag, kl. 17.
„Öll verkin á tónleikunum eru
eftir J.S. Bach og er aðalverkefnið
kantatan Nun komm, der Heiden
Heiland fyrir kór, einsöngvara
og hljómsveit. Kantatan verður
einnig flutt í Kantötuguðsþjón-
ustu í kirkjunni kl. 11 fyrr um
daginn. Auk þess flytur kórinn
mótettuna Lobet den Herrn, alle
Heiden, Elfa Rún Kristinsdóttir
leikur einleik í Fiðlukonsert í
a-moll, og Björn Steinar Sólbergs-
son leikur þrjá sálmaforleiki yfir
sálmalagið Nú kemur heimsins
hjálparráð,“ segir í tilkynningu.
Flytjendur auk Kórs Hall-
grímskirkju eru Barokkbandið
Brák, einsöngvararnir Harpa
Ósk Björnsdóttir sópran, Eggert
Reginn Óskarsson tenór og
Fjölnir Ólafsson barítón, Elfa
Rún Kristinsdóttir fiðluleikari og
Björn Steinar Sólbergsson orgel-
leikari. Stjórnandi er Steinar
Logi Helgason.
Tónlist Kór Hallgrímskirkju syngur
verk eftir Johann Sebastian Bach.
CROISETTE.HOME kynnir í einkasölu fallega 139.6 fm. íbúð á fjórðu hæð með
lyftu í fallegu fjölbýli í við Tröllakór í Kópavogi. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, stutt
er í íþrótta og tómstundariðju, Hörðuvallaskóla, leikskóla, og alla helstu þjónustu.
Íbúðinni fylgir geymsla í sameign og stæði í bílskýli.
Allar nánari upplýsingar veita
Karl Lúðvíksson Lfs. í Síma 663 6700 eða kalli@croisette.is og Eva Margrét
Ásmundsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala í Síma 822 8196 eða eva@croisette.is.
Fjölbýlishús // 4 herb. // 139 m2 // kr. 84.900.000
Tröllakór 9-11, 201 Kópavogur
S. 569 9090 | Hafnarstræti 19 , 101 Reykjavík | croisettehome.is