Morgunblaðið - 17.12.2022, Side 4
FRÉTTIR
Innlent4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022
Holtagörðum | Sími 568 0708 | www.fako.is
Mikið úrval
af fallegum
matarstellum
Eyjólfur oftast
í ræðustólinn
lAlls hafa 88 tekið til máls á haustþingi
Nú þegar Alþingi Íslendinga, 153.
löggjafarþingið, er á lokametrunum
fyrir jólahlé er rétt að skoða hvaða
alþingismenn hafa veriðmálglaðastir
á haustþinginu.
Þar trónir á
toppnum nýr
maður, Eyjólf-
ur Ármanns-
son, þingmaður
Flokks fólksins
fyrir Norðvestur-
kjördæmi. Eyjólf-
ur er því ræðu-
kóngur Alþingis
á haustþinginu.
Staðan var sú
í gærmorgun að Eyjólfur hafði flutt
309 ræður, athugasemdir og andsvör,
og talað í samtals 1.005 mínútur.
Það gera tæplega 17 klukkustundir
samanlagt, sem hann hefur staðið í
ræðustól Alþingis, síðan þingið hófst
í september.
Björn Leví talað næstmest
Næstur Eyjólfi kemur margfaldur
ræðukóngur frá fyrri þingum, Pírat-
inn Björn Leví Gunnarsson. Hann
hefur flutt 307 ræður/athugasemd-
ir og talað í samtals 881 mínútu. Í
næstu sætum koma Gísli Rafn Ólafs-
son Pírati (231/636), Guðmundur Ingi
Kristinsson, Flokki fólksins (152/592),
Andrés Ingi Jónsson Pírati (204/580),
Inga Sæland, Flokki fólksins (143/557)
og Jóhann Páll Jóhannsson, Samfylk-
ingu (171/460).
Sá ráðherra semmest hefur talað er
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
(184/475) og þarnæst Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra (102/292).
Þegar ræðulistinn er skoðaður
vekur athygli hve Lenya Rún Taha
Karim, varaþingmaður Pírata, hefur
verið öflug í umræðunni. Hún hefur
flutt 97 ræður og athugasemdir og
talað í 282 mínútur. Hún hefur komið
oftar í ræðustól Alþingis en margir
kjörnir þingmenn.
Það sem af er 153. löggjafarþinginu
höfðu þingmenn flutt 2.512 ræður og
gert 3.000 athugasemdir. Þeir höfðu
því farið í ræðustólinn oftar en 5.500
sinnum og talað samtals í 256 klukku-
stundir tæpar.
Fjölmargir varaþingmenn hafa tekið
sæti á Alþingi á haustþinginu. Alls
hafa 88 tekið til máls það sem af er,
en kjörnir þingmenn eru sem kunnugt
er 63 talsins.
Eyjólfur
Ármannsson
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
normannsþin sem fluttur er inn frá
Danmörku. „Við eigum fullt til og
erum alveg tilbúin í helgina.“
Aðsóknin segir hann að hafi verið
svipuð og síðustu ár en ljóst sé að
þessa síðustu helgi í aðventu muni
margir leggja leið sína á jólatrjáa-
söluna.
Verðbólgan síðustu misseri hefur
haft áhrif á jólatré eins og annað.
„Við hækkuðum trén eitthvað
aðeins frá í fyrra, en viðskiptavinir
okkar vita að hjá okkur er pen-
ingurinn að fara í gott málefni,“
segir Viktor en salan er ein helsta
fjáröflunarleið sveitarinnar.
Hann minnist einmitt á að með-
limir úr Flugbjörgunarsveitinni
hafi verið í útkalli í gær á meðan
aðrir hafi staðið vaktina í jólatrjáa-
sölunni.
Jólaandinn er kominn yfir við-
skiptavini. „Það eru allir rosahress-
ir og finna sinn nýja fjölskyldumeð-
lim, sem er jólatréð, yfir jólin. Það
skiptir máli að gera þetta rétt, velja
rétt og hafa allt fullkomið.“
Hann segist ekki finna sérstak-
lega fyrir því að fleiri kjósi gervitré
en áður. „Hingað koma allir þessir
sem vilja jólalyktina og alvörutré.“
Sveitin tekur á móti viðskiptavin-
um með jólatónlist og piparkökum
alla helgina en opið verður kl. 12-22
um helgina og kl. 10-22 virku dag-
ana fram að jólum. Þá verður einnig
opið frá kl. 9 til 13 á aðfangadag ef
einhverjir skyldu vera seinir á ferð.
Mikið líf er þessa dagana hjá
Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur
sem rekur að vanda jólatrjáasölu
við Flugvallaveg 7. Þar ómar
jólatónlistin og búist er við stríðum
straumi viðskiptavina um helgina.
Viktor Örn Guðlaugsson, um-
sjónarmaður sölunnar, segir marga
hafa sótt í íslenskar trjátegundir
frá því salan var opnuð í byrjun des-
ember enda hefur sveitin átt góðan
lager í ár af íslenskum trjám. Boðið
hefur verið upp á íslenska stafa-
furu, blágreni og rauðgreni í ár. En
nú segir hann fólk mæta í stórum
stíl til þess að kaupa hinn klassíska
lJólatrjáasalan gengur vel hjá Flugbjörgunarsveitinni
Íslensku jólatrén
hafa runnið út
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
JólinViktor Örn hefur umsjón með jólatrjáasölunni í ár. Hann segir von vera á fjölda viðskiptavina um helgina.
Þingfundum 153. löggjafarþings
var frestað í gær og hófst þar með
jólafrí alþingismanna. Þingið var
að störfum frá 13. september til 16.
desember 2022. Lengsta umræðan
á þinginu var um fjárlög 2023 en
hún stóð samtals í 62 klukkustundir
og níu mínútur.
Hinn 12. september kynnti Bjarni
Benediktsson fjármála- og efna-
hagsráðherra fjárlagafrumvarp
fyrir árið 2023. Heildarútgjöld
ríkisins á árinu 2023 voru áætl-
uð 1.296,5 milljarðar króna. 28.
nóvember lagði Bjarni fram tillögur
að breytingum við aðra umræðu
fjárlagafrumvarpsins í fjárlaga-
nefnd Alþingis, þar sem gert er ráð
fyrir auknum framlögum til nokk-
urra veigamikilla málaflokka. Lagt
var til rúmlega 12 milljarða króna
viðbótarframlag í heilbrigðismál og
að framlög til félags-, húsnæðis- og
tryggingamála hækkuðu um 3,7
milljarða króna. Þá var lagt til að
framlög til löggæslu yrðu aukin um
2,5 milljarða króna.
Í þessari viku var á þinginu einna
mest áberandi umræðan um aukna
styrki til fjölmiðla á landsbyggðinni
sem framleiða sjónvarpsefni, sem
að því er virtist voru eyrnamerktir
sjónvarpsstöðinni N4. Fullyrt er
að svo sé ekki. Þinglokasamningar
náðust á mikðvikudaginn og var þar
helst fréttnæmt að útlendingafrum-
varp Jóns Gunnarssonar dóms-
málaráðherra verður frestað fram
yfir áramót.
Tölulegar upplýsingar
Í tilkynningu frá skrifstofu Al-
þingis komu fram tölulegar upplýs-
ingar um störf þingsins frá því það
hófst í september. Þingfundir voru
samtals 52 og stóðu í tæpar 296
klukkustundir en þingfundardagar
voru 46. Lengsti þingfundurinn stóð
í 14 klukkustundir og 35 mínútur
en meðallengd þingfunda var fimm
klukkustundir og 35 mínútur.
Af 150 frumvörpum urðu alls 26
að lögum og 124 voru óútrædd. Af
121 þingsályktunartillögu voru sex
samþykktar og 115 tillögur voru
óútræddar.
Þá voru sex skriflegar skýrslur
lagðar fram en tíu beiðnir um skýr-
slur komu fram. Þrjár munnlegar
skýrslur ráðherra voru fluttar. Fyr-
irspurnir á þingskjölum voru sam-
tals 298. Fyrirspurnir til munnlegs
svars voru 29 og var 12 svarað. 269
skriflegar fyrirspurnir voru lagðar
fram og var 127 þeirra svarað, 142
biðu svars er þingi var frestað.
Þingmál til meðferðar í þinginu
voru 587 og tala þingskjala 867.
Óundirbúnar fyrirspurnir til ráð-
herra voru 131. Sérstakar umræður
voru 17. anton@mbl.is
Alþingismenn
samþykktu fjár-
lög og fóru í frí
lJólafrí hafið áAlþingi
lÞingfundir voru 52 í heildina
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þing Birgir Ármannsson forseti Al-
þingis sleit þingfundi í gærkvöldi.