Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 17.12.2022, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 17.12.2022, Qupperneq 16
FRÉTTIR Innlent16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022 Opið alla daga til jóla: Virka daga 11-18, laugardaga 11-17, sunnudaga 13-17. Mjúk og notaleg náttföt úr náttúruefninu Modal í jólapakkann Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 Vefverslun selena.is Þú pantar og sækir vöruna í verslun, fallega innpakkaða og tilbúna undir jólatréð, eða færð vöruna senda heim að dyrum. „Starfið á vélunum er skemmtilegt og skapandi. Verkin þarf að taka með útsjónarsemi og lesa í aðstæður. Meta hvernig best hentar að ryðja úr hlössum, búa til vegi, jafna kanta eða ýta upp mönum. Sumum finnst þetta starf nálgast að vera list,“ segir Sig- urður Guðmundsson jarðýtustjóri. Hann býr í Flóanum fyrir austan fjall og minntist þess með góðum vinum nú í september síðastliðnum að 60 ár voru liðin frá því hann hóf jarðýt- uferil sinn. Sigurður sem stendur á áttræðu vinnur enn fullan vinnudag hjá Borgarverki hf. sem er verktaki við gatnagerð í Björkurstykki, sem er nýjasta íbúðahverfið á Selfossi. Verkefnið er spennandi, eða svo finnst Sigurði sem slær ekki af. Kúpla saman og lyfta tönn Segja má að síðasti hluti 20. aldar hafi verið landnámstími í sveitum landsins. Víðfeðm lönd voru brotin til ræktunar og til þess þurfti stórvirkar vinnuvélar og verkhaga menn. „Þetta höfðaði til mín. Leikföng mín í sandinum heima voru ekki bílar, heldur trékubbar með tönn,“ segir Sigurður – jafn- an kallaður Denni. „Faðir minn, Guðmundur Sigurðsson, var bóndi og áhugasamur ræktunarmaður og kunningi Sigfúsar Öfjörð sem var jarðýutukóngur á Suðurlandi. Svo fór haustið 1962 að Sigfús kom heim í sveitina og bauð mér vinnu, sem ég þáði. Var settur á ýtu og kennt hvernig ætti að setja vélina í gír, kúpla saman og lyfta tönninni. Flóknari var undirbúningurinn ekki og ferillinn var hafinn.“ Fyrsta ýtan sem Denni starfaði á var International TD9, sjö tonna vél með 38 hestöfl. Verkefnin voru fram- an af einkum og helst í tenglum við jarðrækt. Ágæti framræslu votlendis er umdeilt í dag en fyrr á árum voru grafnar þúsundir kílómetra af skurðum á Íslandi, þar sem mýrum var breytt í tún. Moldarhraukar úr skurðum voru jafnaðir út með ýtunni og í slíkum verkum var Denni víða á bæjum fyrir Ræktunarsam- band Flóa og Skeiða. Hluta þeirrar starfsemi tók Borgarverk síðar yfir og hefur viðmælandi okkar starfað þar sl. átta ár. Maður í moldinni „Ég var oft og víða úti í sveitunum í því að jafna út þúfur og flög. Fór yfir með ýtunni; tönnin fremst og herfi í eftirdragi. Svona voru stór stykki tekin og ekkert óvænt gerðist, þó trú margra sé að í jarðvinnu þurfi að taka tillit til álfa, huldufólks og annars sem ekki sést. Þó gerðist eitt sinn, fyrir 50 árum eða svo, að ég kom að bæ í Flóanum þar sem bóndinn sagði að ég skyldi sneiða hjá nibbu í stykkinu sem brjóta ætti og láta hana óhreyfða,” segir Denni og heldur áfram: „Ég fylgdi þeim skilaboðum, en fyrir slysni fór herfið þar yfir. Svo segir ekki meira af því fyrr en næsta vor, þá fundust þar mannabein; kuml úr heiðnum sið. Þetta hafði þó engin eftirmál, svo sem að maðurinn í moldinni vitjaði mín síðar. En svo hef ég líka víða verið á ýtu í vegavinnu, svo sem norður í Skagafirði, á Vest- fjörðum og í Öræfasveit.“ Á langri starfsævi hefur Denni unnið á jarðýtum af ýmsum stærð- um og gerðum; svo sem Caterpillar af ýmsum stærðum og nú Komatsu. Sú vél er 21 tonn og nýtist vel. Stafræn nákvæmni „Mér hefur alltaf líkað best að vinna á ýtum sem eru heldur af minni gerðinni. Slíkar henta vel og öðrum tækjum betur í allskonar moldarvinnu, til dæmis eins og við golfvöllinn á Selfossi þar sem ég hef verið mikið síðustu árin. Stóra breytingin í daglegri vinnu á ýtu er annars sú að nú er allt unnið eftir stafrænum teikningum sem settar eru í tölvuskjá í tölvunni. Vinnan fer mjög nákvæmlega eftir þeim, þar sem teikningin og staða verksins á rauntíma fylgjast að. Skekkju- mörkin eru aðeins tveir sentimetrar svo þetta er allt mjög nákvæmt og flott,“ segir Denni, sem er sjálfs síns herra og býr í Sviðugörðum í Flóa, ekki langt frá Selfossi. Sækir þaðan til vinnu, en er heima með lítið fjárbú og stundar skógrækt. Hefur gróðursett í alls um fjóra hektara, þar sem öspin er í aðalhlutverki og dafnar vel. lDenni í SviðugörðumlÁttræður og slær ekki aflRyð- ur úr hlössumog býr til vegilLíkar vel á 21 tonnsKomatsu Á jarðýtunni í 60 ár Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Morgunblaðið/Óttar Geirsson Jarðvinna Sumum finnst þetta starf nálgast að vera list, segir Sigurður Guðmundsson, hér á ýtunni austur á Selfossi nú í vikunni. Sótt í íslenska sérþekkingu lSamvinnaum jarðhitanýtingu Sérfræðingar frá Orkustofnun og pólsku vísindaakademíunni MEERI PAAS fóru í heimsókn til valinna staða í Póllandi 14.-18. nóvember 2022. Það var liður í uppbyggingar- og þjálfunarverkefni í jarðhita á milli Íslands og Póllands á vegum Uppbyggingarsjóðs EES. Vaxandi eftirspurn hefur verið eftir ráðgjöf Orkustofnunar frá löndum í Aust- ur-Evrópu vegna uppbyggingar á hitaveitum og jarðhitanotkunar. Baldur Pétursson, verkefnisstjóri fjölþjóðlegra verkefna hjá Orku- stofnun, segir að þetta starf sé í samræmi við áherslur íslenskra stjórnvalda um að Ísland deili þekkingu sinni á orkumálum með þjóðum Evrópu. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kom inn á það í ávarpi sem hann hélt í Brussel 1. desember sl. í tengslum við for- mennsku Íslands í samstarfi EFTA- ríkja. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Noreg og Liechten- stein. Umfjöllunarefnið var græn orkuskipti og innleiðing umhverfis- vænna og orkusparandi leiða. Nú var farið til borgarinnar Konin og bæjarins Chochołów vegna möguleika þeirra á aukinni jarðhitanotkun í hitaveitum. Konin hefur markað þá stefnu að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og færa sig yfir í endurnýjanlega orkugjafa. Koninborg hefur orðið fyrir áhrifum loftslagsbreytinga vegna loftslags- skilyrða auk mengunar frá kolum. Þar hafa komið staðbundin flóð, lítil úrkoma og ein mesta hækkun lofthita í Póllandi. Þar eru lítil gróin svæði og lítil varðveisla regnvatns. Þetta myndar hitaeyjar í þéttbýli og hækkar hitastig. Jarðhiti nýttur í Póllandi Jarðhitahola var boruð í Konin fyrir nokkrum árum og er verið að bora aðra til niðurdælingar, sam- kvæmt frétt Orkustofnunar. Einnig er jarðvarmastöð í smíðum til að auka notkun á jarðhita til húshitun- ar. Varmi til húshitunar í Konin kemur frá þremur orkuverum sem byggja á brennslu lífmassa eins og timburs og brennslu sorps. Þriðja stöðin er lítil kolavarmastöð sem er tengd sjálfstæðu dreifikerfi. Einnig hefur verið ákveðið að flýta lokun stórs 1,2 GW kolaorkuvers sem nýtt hefur verið til raforkuframleiðslu til 2024 í stað 2030. Það mun draga úr losun á 7 milljónum tonna af gróðurhúsagasinu CO2 á ári. Fundað var með borgarstjóranum í Konin, stjórn hitaveitu borgar- innar og fulltrúum fyrirtækja sem koma að jarðhitaverkefninu. Í bænum Chochołów var fundað með stjórn og starfsfólki baðstaðar sem tekur á móti nokkrum þúsund- um gesta á hverjum degi. Starfsem- in byggist á jarðhita frá borholu sem var boruð fyrir um 30 árum. Nú er verið að ljúka við borun annarrar holu til niðurdælingar eða nýtingar ef ástæða þykir til. Einnig var rætt við fulltrúa sveitarfélaga og aðila að verkefninu Hydro- Geo-Solar sem er fjármagnað af Uppbyggingarsjóði EES og Noregi. Verkefnið er um aukna nýtingu á endurnýjanlegum orkugjöfum eins og rafmagnsframleiðslu með jarð- hita auk fjölþættrar annarrar nýt- ingar jarðhita og sólarorku. Einnig leggja Chochołówskie-varma- böðin til víðtækari notkun á orkumöguleikum jarðhitans eins og til hitaveitu. Tillögum og ráðleggingum frá sérfræðingahópnum verður skilað í skýrslu sem gert er ráð fyrir að verði unnin á næstu mánuðum. Þar verður sviðsmynda- og valkosta- greining ásamt tillögum þar sem byggt verður m.a. á þekkingu, reynslu og tækni frá Íslandi og Póllandi. Í Konin og Chochołów hafa verkefni frá Uppbyggingarsjóði EES nýst vel til aukinnar nýtingar á jarðhita sem og til verkefna er varða umhverfis- og loftslagsmál, sem aðilar meta mikils. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ljósmyndari/Baldur Pétursson Chochołów Þúsundir gesta sækja þennan baðstað á hverjum degi. Vatnið er jarðhitavatn og er verið að bora nýja jarðhitaholu í bænum. Eingreiðsla til lífeyrisþega er á leiðinni Alls munu 24.900 manns fá eingreiðslu þegar Trygginga- stofnun afgreiðir eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlíf- eyrisþega. Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis síðast- liðinn miðvikudag með 58 at- kvæðum. Fimm þingmenn voru fjarverandi þegar málið var afgreitt. Allt kapp hefur verið lagt á að greiðslan berist svo fljótt sem auðið er til viðtak- enda. Eingreiðsluna fá þau sem eiga rétt á greiðslu örorku- eða endurhæfingarlífeyris á árinu 2022 og er hún 60.300 kr. Hafi lífeyris- þegi fengið greitt hluta úr ári er eingreiðslan í hlutfalli við greiðslu- réttindi viðkomandi á árinu. Þá telst greiðslan ekki til tekna lífeyris- þega og leiðir ekki til skerðingar annars. Mannlíf Góður glaðningur er væntanlegur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.