Morgunblaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 22
FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022
ELTAK sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
17. desember 2022
Gjaldmiðill Gengi
Dollari 142.08
Sterlingspund 175.07
Kanadadalur 104.48
Dönsk króna 20.286
Norsk króna 14.508
Sænsk króna 13.847
Svissn. franki 153.01
Japanskt jen 1.0402
SDR 189.11
Evra 150.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.7133
Algalíf vill
á markað
Líftæknifyrir-
tækið Algalíf
mun hefja
undirbúning
fyrir skráningu
fyrirtækisins
á hlutabréfa-
markað árið
2025. Þetta var
samþykkt á
stjórnarfundi í
vikunni. Þá var
Baldur Stefánsson, sem nýlega
lét af störfum hjá Kviku banka og
stofnaði félagið Hamrar Capital
Partners, kjörinn stjórnarfor-
maður Algalífs í vikunni en Hamr-
ar Capital Partners munu halda
utan um undirbúning skráningar-
innar og veita eigendumAlgalífs
sértæka ráðgjöf í ferlinu.
Orri
Björnsson
Hafna umræðu
í borgarstjórn
lLjósleiðarinnmunauka við skuldir
Meirihluti forsætisnefndar Reykja-
víkurborgar hafnaði í gær tillögu
Mörtu Guðjónsdóttur, fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í nefndinni,
um að setja umræðu um málefni
Ljósleiðarans, dótturfélags Orku-
veitu Reykjavíkur (OR), á dagskrá
borgarstjórnarfundar sem haldinn
verður á þriðjudag. Fulltrúar Sam-
fylkingar, Viðreisnar, Framsóknar
og Pírata, sem eru þeir flokkar sem
mynda meirihluta, lögðust allir
gegn tillögunni.
Sem kunnugt er stefnir Ljós-
leiðarinn að því að kaupa grunn-
net Sýnar fyrir um þrjá milljarða
króna og hefja í kjölfarið aukna
uppbyggingu víðs vegar um land.
Kaupin munu fara fram með auk-
inni skuldsetningu Ljósleiðarans,
en félagið skuldar nú þegar yfir
14 milljarða króna. Þá hafa verið
áhöld um það hvort aukin umsvif fé-
lagsins séu í samræmi við eigenda-
stefnu OR.
Meirihlutinn bar fyrir sig að um-
ræða um málið væri ótímabær að
svo stöddu og í bókun meirihlutans
kemur fram að rétt sé að ræða mál-
ið á nýju ári eða þegar „aðstæður
bjóða“ eins og það er orðað. Þessu
mótmælti Marta og lagði fram aðra
bókun þar sem fram kemur að með
því að hafna því að setja málefni
fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar
á dagskrá borgarstjórnar hafi
leyndarhyggja meirihlutans náð
nýjum hæðum og ekki séu fordæmi
fyrir því í sögu borgarinnar. Þá
segir jafnframt í bókuninni að með
því að hafna því að taka málið til
umræðu sé komið í veg fyrir að
borgarfulltrúar geti sinn lögboðnu
starfi sínu og það stangist á við
sveitarstjórnarlög.
Forsvarsmenn Ljósleiðarans og
Orkuveitunnar hafa neitað að tjá
sig um málið við fjölmiðla. Þá hefur
lítið sem ekkert verið fjallað um
viðskiptin innan borgarkerfisins. Þó
er rýnihópur að störfum sem mun
meta hvort og þá hvernig hugað
verði að hlutafjáraukningu Ljós-
leiðarans með þátttöku einkaaðila.
Sú hlutafjáraukning mun þó ekki
koma til áður en gengið verður frá
kaupunum á kerfum Sýnar, sem
verða sem fyrr segir fjármögnuð
með frekari lántöku.
Í tilkynningu frá Sýn til Kaup-
hallarinnar í fyrrdag kom fram að
viðræður stæðu enn yfir á milli
Ljósleiðarans og Sýnar um einstök
útfærsluatriði kaup- og þjónustu-
samnings. Stefnt er að því að klára
viðskiptin á þriðjudag í næstu
viku, 20. desember. Fyrrnefndur
rýnihópur hefur haldið þrjá fundi
nú í desember og ekki er stefnt að
því að halda fund aftur fyrr en á
nýju ári.
Gísli Freyr Valdórsson
gislifreyr@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Reykjavík Þórdís Lóa Þórhallsdótt-
ir er formaður forsætisnefndar.
Sambíóin í Kringlunni opnuðu dyr
sínar aftur í gærmorgun eftir fram-
kvæmdir sem staðið hafa yfir undan-
farnamánuði. Veitingasala bíósins er
nú í sama rými og Kúmen og munu
gestir mathallarinnar geta nýtt sér
veitingasölu bíósins til jafns við aðra
veitingastaði. „Ásýnd svæðisins er
gjörbreytt og þetta er ný upplifun,”
segir Alfreð Ásberg Árnason fram-
kvæmdastjóri Sambíóanna.
Strax í morgunsárið voru skóla-
sýningar, enmikið er um að skólahóp-
ar skelli sér í bíó á þessum árstíma
áður en farið er í jólafrí. Stórmyndin
Avatar gegnir veigamiklu hlutverki
þessa dagana en hún er sýnd næstum
allan sólarhringinn að sögn Alfreðs.
Breytingar verða gerðar á tíman-
um sem opið er og munu sýningar í
Kringlunni hefjast fyrr á daginn, sem
á eftir að henta fjölskyldufólki vel.
Sömuleiðis verður aftur boðið upp á
óperusýningar fráMetropolitan, sem
hafa legið í dvala síðan fyrir faraldur.
Lítilsháttar breytingar voru gerð-
ar á sölunum sjálfum, en búið er að
hliðra til inngöngum. Í janúar verður
hins vegar opnaður nýr lúxussalur
sem að sögn Alfreðs mun hafa algjöra
sérstöðu.
„Aðrir lúxussalir eru með þægindi,
en sá nýi mun skara fram úr hvað
varðar bæði þægindi og tæknileg
gæði. Salurinn mun búa yfir At-
mos-hljóðkerfi og stórum skjá og því
til viðbótar verður töluvert meiri halli
ámilli sæta en gengur og gerist,“ segir
hann. Hvað varðar þægindin þámunu
til viðbótar við hefðbundin lúxussæti
verða bekkir sem hægt er að liggja í
fremst, en aftast verða „parasæti“,
þar sem pör geta legið þétt saman
og notið sýningarinnar. Sérstakur
panell verður á milli parasæta til að
tryggja næði.
Breytingarnar á Sambíóunum eru
gerðar samhliða miklum tímamótum
í Kringlunni. Í lok nóvember var hinu
goðsagnakennda Stjörnutorgi lokað
og við tók mathöllin Kúmen.
„Þetta er orðinn mjög sterkur
skemmtanapunktur í Kringlunni;
bíóið, Kúmen og Borgarleikhúsið. Svo
bætist bráðum við nýttÆvintýraland
í Kringlunni, þetta vinnur allt mjög
vel saman,“ segir Alfreð að lokum.
lNýr lúxussalur opnaður í janúarlÁsýndin önnur en áður
Kringlubíó uppfært
og fært til nútímans
Björn Leví Óskarsson
blo@mbl.is
Ljósmynd/Elísabet Blöndal
Bíósýningar Skólakrakkar voru fyrstu gestir bíósins strax í morgunsárið. Bíóferð er með síðustu verkum fyrir frí.