Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 17.12.2022, Side 29

Morgunblaðið - 17.12.2022, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022 UMRÆÐAN 29 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Anna Sigurðardóttir Sorgin og jólin Hvort sem það eru fyrstu jólin eftir ástvinamissi, eða mörg ár síðan við upplifðum missi, finna flestir meira fyrir sorg og söknuði yfir hátíðarnar. Margir alast upp við þá hefð að fjölskylda og vinir komi saman í desember og byrjun janúar til að halda jól eða fagna öðrum hátíðardögum. Þessi árstími getur verið sérstaklega erfiður þegar við söknum einhvers. Sumir upplifa að það er stutt í tárin og þeir verða viðkvæmari, aðrir finna fyrir auknum pirringi og reiði, enn aðrir eru kvíðn- ir eða áhyggjufullir yfir því hvernig þeimmuni líða eða hvort þeir komist í gegnum þetta tímabil. Það sem er þó mikilvægt að minna sig á er að all- ar þessar tilfinningar eru eðlilegar og að flestir þeir sem hafa misst ástvin upplifa þessa líðan. Endurhugsumhefðirnar Fyrir þá sem eru að syrgja og hafa áhyggjur af hátíðunum fram undan gæti gagnast að hugsa um hvernig og með hverjum þeir vilja nýta og njóta næstu vikna. Engin þörf er að finna fyrir pressu með að halda jólin eins og venjulega ef okkur finnst það ekki rétt. Það er alltaf hægt að taka upp fyrri hefðir og helgisiði seinna ef okkur langar til þess. Fyrir öðrum gæti það verið mikil huggun að halda í hefðirnar og halda jólin eins og venjulega. Að ylja sér á góðumminningum tengt ástvini. Upplifun fólks af ástvinamissi getur verið mismunandi, því er það mikil- vægt að hlusta á eigin þarfir þegar við skipuleggjum jólin. Gefum okkur leyfi til að gera það sem við viljum og hentar okkur að gera. Tökumeinn dag í einu Tökum einn dag í einu og hvílum okkur svo við ofgerum okkur ekki. Munum að allar tilfinningar taka orku, hvort sem það er sorg, gleði eða önnur tilfinning. Það er því ekki alltaf hægt að sjá fyrir hvernig okkur mun líða frá degi til dags. Verum meðvituð um líðan okkar og orku og skipuleggjum rólegar og endur- nærandi stundir á milli verkefna. Til dæmis með því að fara í göngutúr, gefa sér stund í ró með heitt kakó, hlusta á tónlist eða lesa bók. Sýnum okkur samkennd Minnum okkur jafn- framt á að það er í lagi að vera ekki í lagi og að óþarfi er að hafa sam- viskubit yfir einhverju sem við teljum að við „ættum“ eða „ættum ekki“ að finna eða gera. Að gráta getur verið hjálplegt og er nauðsynlegur þáttur sorgarinnar. Sumir óttast að ef þeir byrja að gráta þá muni þeir aldrei hætta, en það eru óþarfa áhyggjur því allar tilfinningar líða hjá. Grátur virðist jafnframt losa um tilfinningalega spennu sem safnast upp í líkamanum. Það er því gott ráð að gráta ef þörf er á. Munumeftir börnunum Mikilvægt er að muna eftir að spyrja börn eða yngri ástvini hvort og hvernig þau vilji taka þátt í hátíðinni og hvort þau vilji minnast þeirra sem hafa látist á einhvern sérstaka hátt. Tjáumokkur Þegar við höfum ákveðið hvernig við viljum hafa hátíðarnar gæti verið gagnlegt að ræða það við þá sem eru okkur nákomnir. Að eiga samtöl við vini og fjölskyldu um hvernig okkur líður og áform okkar auðveldar þeim að styðja við okkur í gegnum þetta tímabil. Leitumaðstoðar Fyrir þá sem upplifa mikla vanlíðan tengda ástvinamissi getur verið gagn- legt að fá stuðning og leiðsögn hjá fagfólki, s.s. prestum, félagsráðgjöf- um eða sálfræðingum, sem sérhæfa sig í sorgarúrvinnslu og áföllum. Anna Sigurðardóttir Höfundur er sálfræðingur og eigandi Samkenndar heilsuseturs. Munum að allar tilfinningar taka orku, hvort sem það er sorg, gleði eða önnur tilfinning. Merkir Íslendingar Jón H. Björnsson Jón Hallgrímur Björnsson fæddist 19. desember 1922 í Reykjavík. Foreldrar Jóns voru Ingibjörg Jónheiður Árnadóttir, f. 1896, d. 1980, og Björn Björnsson, f. 1886, d. 1939. Jón lauk prófi frá Garð- yrkjuskóla ríkisins 1944 og lauk í Bandaríkjunum námi í skrúðgarðyrkju, B.Sc.-námi í landslagsarkitektúr og M.Sc.- námi í garðplöntuuppeldi. Þegar Jón kom heim til Íslands vorið 1952 kenndi hann við Garðyrkjuskólann. Hann stofnaði Alaska gróðrarstöð- ina árið 1953 og starfrækti samhliða teiknistofu og lagði þar grundvöll að garðskipulagi hér á landi. Jón öðlaðist fyrstur manna starfsheitið landslagsarkitekt hér á landi. Eftir hann liggur mikill fjöldi verka og má m.a. nefna Hallar- garðinn. Jón hélt víða fyrirlestra og erindi í útvarp sem tengdust fagsviði hans og ritaði greinar í blöð og tímarit. Hann hlaut margvíslegar viðurkenningar fyrir frumkvöðlastarf sitt. Jón giftist 1974 Elínu Þor- steinsdóttur, f. 6.8. 1939, bús. í Reykjavík. Sonur þeirra er Björn Þór og stjúpbörn Jóns eru Elísa Ólöf og Þorsteinn. Jón lést 15. júlí 2009. K ínverskar drottningar- fórnir – eru þær eitthvað frábrugðnar öðrum drottningarfórnum? Áreiðanlega ekki, en greinarhöf- undur hefur samt alltaf tekið góða og gilda skýringu sem ágætur fé- lagi minn bar fram fyrstur manna; að munurinn lægi í því að á undan drottningarfórn Kínverjanna mætti stundum greina bjölluhljóm. Sá tónn var sannarlega gefinn strax í fyrstu umferð ólympíumóts- ins í Buenos Aires 1978 en þá töpuðu Íslendingar nokkuð óvænt fyrir Kínverjum sem voru að tefla á sínu fyrsta ólympíumóti. Hollendingurinn Jan Hein Donner var eitthvað að sniglast í kringum borð okkar og lét ummæli falla sem voru eitthvað á þá leið eftir tap Guðmundar Sigurjónssonar á 1. borði að það væri útilokað fyrir stórmeistara að tapa fyrir skák- manni frá Kína. Hvort hann taldi sig með því hafa fengið einhvers konar uppreisn eftir að hafa tapað fyrir Guðmundi á Ólympíumótinu í Lugano '68 skal ósagt látið. Hitt er svo annað mál að nokkrum dögum síðar horfðu þeir Jan Timman og Max Euwe forseti FIDE furðu lostnir á „orðhákinn mikla“ fá upp þessa stöðu í viðureign Hol- lendinga og Kínverja: Ólympíumótið í Buenos Aires 1978; 8. umferð: Liu Wenzhe – Donner 16. Dxg6+ Kxg6 17. Bh5+ Kh7 18. Bf7+ Bh6 19. g6+ Kg7 20. Bxh6+ – og svartur gafst upp því mátið er óverjandi, 20. ... Kh8 21. Bg7+! Kxg7 22. Hh7 mát. Með þessari skák óx orðspor Kínverja á leikfléttusviðinu. Við lærðum okkar lexíu og unnum Kínverja örugglega á ólympíumót- unum árin 1980, 1984 og 1988. En fremsti stórmeistari Rúmena, Gheorghiu, virtist hafa staðið af sér allar atlögur í Luzern fjórum árum síðar en gáði ekki að sér: Óympíumótið í Luzern 1982; – Sjá stöðumynd 2 – Gheorghiu – LiuWenzhe Eftir einfalda liðskipan, 24. Bd2, er ljóst að sókn svarts hefur runnið út í sandinn. En hvað er að því að hirða f5-peðið? 24. Dxf5?? Dg1+! – og Gheorghiu gafst upp því að 25. Kxg1 er svarað með 25. ... He1 mát! Í dag er enginn ágreiningur um að Liren Ding, sem á næsta ári mun tefla um heimsmeistaratitil- inn við Jan Nepomniachchi, á eina glæsilegustu fórnarskák sem um getur í skáksögunni. Drottningar- fórnin í byrjun tafls var í raun aðeins forleikur þess sem á eftir kom en þá rak hver fórnin aðra: Flokkakeppni í Kina 2017: Jinshin Bai – Liren Ding Nimzo-indversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Rf3 0-0 5. Bg5 c5 6. e3 cxd4 7. Dxd4 Rc6 8. Dd3 h6 9. Bh4 d5 10. Hd1 g5 11. Bg3 Re4 12. Rd2 Rc5 13.Dc2 d4 14. Rf3 e5 15. Rxe5 15. ... dxc3! Drottningarfórnin er alltof freist- andi til þess að hægt sé að sleppa henni. Tryggt er að svartur fái hrók og léttan fyrir drottninguna. 16. Hxd8 cxb2+ 17. Ke2? Betra var 17. Hd2 sem svartur getur svarað með 17. ... Hd8 en hvítur getur þá varist með 18. Bd3. 17. ... Hxd8 18. Dxb2 Ra4 19.Dc2 Rc3+ 20. Kf3 Hd4! Þessi glæsilegi leikur skýrir sig sjálfur. Hótunin er 21. ... g4+ og mátar. Ekki gengur 21. exd4 vegna 21. ... Rxd4+ og drottningin fellur. 21. h3 h5 22. Bh2 g4+ 23. Kg3 Hd2 24. Db3 Re4+ 25. Kh4 Be7+ 26. Kxh5 Kg7 27. Bf4 Bf5 28. Bh6+ Kh7 29. Dxb7 Hxf2 Hótar 30. ... Rg3 mát. 30. Bg5 Hh8! 31. Rxf7 Bg6+ 32. Kxg4 Re5+! Glæsilegur lokahnykkur. Hvítur gafst upp. Mátið kemur eftir 33. Rxe5 Bf5+ 34. Kh5 Kg7+ 35. Bh6+ Hxh6 mát. Kínverskar drottningarfórnir Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is ÞrennaHjörvar Steinn Grétars- son varð Íslands- meistari í atskák á Selfossi um síðustu helgi og er því handhafi þriggja Íslands- meistaratitla. Við upphaf Íslandsmótsins sem hlaðvarpið Chess After Dark skipulagði lék helsti styrktar- aðilinn, Tómas Þóroddsson, fyrsta leikinn fyrir Hjörvar.Ljósmynd/Birkir Karl Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.