Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 17.12.2022, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 17.12.2022, Qupperneq 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022 Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið virka daga 9.30–18 laugardaga 11-14 Verið velkomin í sjónmælingu Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Vigdís Häsler, fram- kvæmdastjóri Bænda- samtakanna, skrifaði um margt ágæta grein í Morgunblaðið mið- vikudaginn 14. desem- ber, þar sem hún fer yfir ýmsar áskoranir landbúnaðarins á leið að markmiðinu um kolefnishlutleysi. Hægt er að taka undir margt í greininni, eins og það að landbún- aðurinn, rétt eins og aðrar atvinnu- greinar, þarf að hafa réttu hvatana til að stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda. Ég staldraði hins vegar við eftir- farandi: „Tryggja þarf samkeppn- ishæfni í framleiðslu, þ.e. stöðva verður innflutning á vörum sem ekki eru gerðar sömu framleiðslukröfur til út frá umhverfissjónarmiðum.“ (Leturbreyting mín.) Nú er ekki hægt annað en að hrósa talsmönnum landbúnaðarins fyrir hugkvæmni í því að hugsa upp sífellt nýj- ar réttlætingar fyrir verndarstefnu og sam- keppnishömlum – en fæst bendir til að þessi krafa hafi verið hugsuð til enda. Umhverfis- og lofts- lagsvæn framleiðsla hefur samkeppnis- forskot, sem mun aukast eftir því sem vit- und neytenda um mik- ilvægi slíkra fram- leiðsluhátta eykst. Við verðum að vona að tillaga Vigdísar verði ekki útflutningsvara, því að þá gætu ýmis lönd sem gera miklu bet- ur en Ísland í þeim efnum gert kröfu um að innflutningur á íslenzkum matvörum yrði bannaður. Svo dæmi sé tekið, er sauð- fjárrækt á Nýja Sjálandi nálægt því að vera kolefnishlutlaus en íslenzk sauðfjárrækt er mjög langt frá því. Fræðimenn við Landbúnaðarhá- skóla Íslands hafa þannig reiknað út að losun við framleiðslu á einu kílói af íslenzku lambakjöti sé svipuð og af flugferð frá Íslandi til meginlands Evrópu. Viljum við að önnur ríki loki á útflutning Íslands á lambakjöti á meðan munurinn er þeim í hag? Með sama hætti gætu þeir sem vilja vernda illa rekinn sjávarútveg í samkeppnislöndum Íslands eflaust kokkað upp einhverjar loftslagsrétt- lætingar fyrir því að banna innflutn- ing á fiski frá Íslandi. Væri það gott fyrir íslenzkan þjóðarhag? Eigum við kannski að fara með hugmyndina alla leið og banna ís- lenzkar landbúnaðarafurðir ef inn- flutt vara er umhverfisvænni? Eða snýst hugmyndin kannski ekki um umhverfisvernd, heldur samkeppn- isvernd? Íslenzkur landbúnaður á ekki að vera svo hræddur við samkeppni að hann telji að það eigi að banna hana. Hann á þvert á móti að taka henni fagnandi og reyna að gera betur – og skapa sér þannig með tímanum betri samkeppnisstöðu. Ísland sem matvælaútflutnings- land á mikið undir því að alþjóða- viðskipti með mat séu sem frjálsust og að alls konar hömlur á þeim við- skiptum í þágu sérhagsmuna séu sem minnstar. Getum við ekki bara stefnt að því að róa öllum árum að kolefnishlutleysi í þágu loftslagsins, en sleppt því að spilla í leiðinni við- skiptafrelsinu, sem hefur skilað okk- ur svo miklum hagsbótum? Ólafur Stephensen Ólaf ur Stephensen »Eigum við kannski að fara með hug- myndina alla leið og banna íslenzkar land- búnaðarafurðir ef inn- flutt vara er umhverf- isvænni? Höfundur er framkvæmdastjóri Fé- lags atvinnurekenda. Stöðvum útflutning á vondum hugmyndum Ég sit við gluggann minn og horfi yfir Hringbrautina og sé ljósin í gluggunum hjá sóknarbörnunum mínum, og ég velti fyrir mér hvernig þau lifi. Lifa þau fallega? Eru þau ham- ingjusöm? Gráta þau eða brosa, tala þau eða þegja? Hvernig líður þeim? Stundum koma þau og segja mér hvernig þeim líður. Þá líður þeim oftast illa. Sundum segja þau mér ekkert þótt þau komi og ég sé að þau eru ekki hrygg, jafnvel glöð. Þau hafa sum ástæðu til að vera hrygg. Ég veit það og veit um margar ástæður hryggðar. Sumt batnar með tímanum, annað varir við og sum þeirra trúa því að ólán- ið elti þau. Mjög mörg hafa hins vegar ríkar ástæður til þess að vera glöð og sum eru það jafnan. Hlátrasköllin glymja í kringum þau. Svo eru líka mörg með einhvern kökk fyrir brjóstinu sem vill ekki fara þó að lengst af megi láta sem hann sé ekki þarna. Þau þarna fyrir inn- an gluggana hafa mikla þörf fyrir eyra sem hlustar og skiln- ingsrík orð. Ég vildi að ég hefði þúsund eyru og ætti viturt hjarta svo ég gæti reynst sóknarbörnum mínum betur. Ég reyni eins og ég get, en ég sé heldur ekki inn um gluggana. Jólin eru í nánd. Þau koma á sínum tíma og hann er bráðum og styttist óðum. Þá verður allt að vera í lagi. Þá verður allt í lagi. Það skal. Það verður að hafa fyrir því, en það skal! Aðventan er sérkennilegur tími og hefur nafn með rentu. Aðventa þýðir koma. Það er eitthvað að koma yfir okkur sem vekur í senn eftirvæntingu og kvíða. Það er eins með jólin og sumarfríið að það verður að vera gaman og allir góðir við alla. Flestum tekst það en væntingarnar eru svo uppspenntar, einkum hjá börnunum. Manni kem- ur í hug hvort þau hafi gott af þessari spennu sem auglýsendur ala á í heilar sex vikur. Auðvitað hafa þau ekki gott af þessum ágangi og væru jafnsæl með kerti og spil ef ekki væri látið svona með þau. Svo eru uppgrip hjá mörgum því sjaldan er meira unnið, það eru próf og áramót nálgast. Margt að gera og svo sáralítill tími eftir af sólarhringnum til þess að gera allt sem þarf heima. Það verður því enginn tími til þess að hugsa og all- ir hrífast með inn í þessa hringiðu jólakapphlaupsins sem er enn magnaðri en Reykjavíkurmaraþon- ið sem er annars mesta þvaga sem sést og guðsmildi að enginn skuli troðast undir. Það troðast hins veg- ar alltaf einhverjir undir í jóla- kapphlaupinu og það er svo sorg- legt og úr takti við jólin. En þetta þarf ekki að vera svona og þú getur ráðið miklu um það. Þú þarft alls ekki að uppfylla neitt lögmál í þessu efni. Ekki annað en það sem ævinlega gildir mestu. Þú þarft að elska náunga þinn. Þú þarft að elska Guð líka en það ger- ir þú að mestu með því að elska náunga þinn. Og hver er náungi minn? heyri ég einhvern spyrja snúðugt eins og lögfræðingurinn gerði. Þá sagði Jesús honum söguna af miskunn- sama Vesturbæingnum og hún er svona: Einu sinni voru tveir menn. Ann- ar var ungur en hinn var gamall. Þessi ungi var níu ára en sá gamli sjötíu og níu ára. Þeir voru á ferð niður í bæ. Það var rétt fyrir jól og ys og þys á öllum. Þeir gengu yfir Ingólfstorg en þar var enginn sem yrti á þá. Allir á hraðri ferð og með stress í augum. Þeir voru báðir að leita að gjöf handa ættingja sem þeim fannst hvorum um sig vera sér nákominn. Þeir gengu inn í Eymundsson með stuttu millibili, ætluðu að kaupa bók. Þeir reikuðu um og skoðuðu á söluborðunum. Þeir ráku báðir augu í bók um skip og siglingar og seildust samtímis eftir sömu bók- inni, hvor úr sinni áttinni. Þeir sáu hönd hvor annars og litu upp og horfðust í augu eitt svona fjarska langt augnablik eins og þeir gera sem finnst þeir ættu að þekkja hvor annan en gera það ekki. Sá yngri brosti og þá brosti sá gamli líka en dauflega og lét hinum eftir bókina og tók þá sem var næst í staflanum. Þegar þeir komu heim til sín hugsuðu þeir lengi hvor um annan, því það var ekki annað að gera. Sá gamli einn á Vesturgötu 7, sá ungi líka einn í annarri götu. Foreldrar hans voru báðir úti að vinna, það er að segja mamma hans og stjúpi. Pabbi bjó með ann- arri konu og þeir hittust svo sjald- an. Gamli maðurinn var oftast einn, fékk ekki margar heimsóknir og sárlega sjaldan af þessum eina syni sem hann átti og ekki annað barna. Það var maður austur í bæ sem fékk tvö eintök af sömu bókinni um jólin. Það var bók um skip og sigl- ingar. Hann var lögfræðingur og hafði áhuga á skipum. Og Jesús spurði: Hver reyndist þessum tveimur mönnum náungi. Lögfræðingurinn gat engu svar- að. Gleymum ekki hvert öðru og gef- um öllum tíma í jólagjöf og gefum hann með eins löngum afborgunum og við getum, jafnt og þétt. Við megum ekki vinna of mikið ef það á að takast. PS. Ef þú skyldir ekki finna mis- kunnsama Vesturbæinginn sem átti að vera í sögunni, þá kemur þú bara til sögu sjálf/ur. Jakob Ágúst Hjálmarsson Jakob Ágúst Hjálmarsson »Hugsun frá prests- skaparárunum í Dómkirkjunni. Höfundur er fv. sóknarprestur. jakob.hjalmarsson@simnet.is Aðventa Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.