Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 17.12.2022, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 17.12.2022, Qupperneq 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022 Elsku bróðir minn og besti vinur, Þorgeir, Toggi, hef- ur kvatt þetta líf eftir ótrúlega bar- áttu við erfið veikindi um langt skeið. Það var þriggja ára ald- ursbil milli okkar bræðra en við ólumst upp á góðu heimili á Kirkjuteig 13. Vegna þessa ald- ursmunar var ég, stóri bróðir, í sveit hvert sumar í 11 sumur samfellt en Þorgeir og Sigga Þorgeir Jónsson ✝ Þorgeir Jóns- son prentari fæddist 18. október 1945. Hann lést 1. desember 2022. Útförin fór fram 14. desember 2022. systir voru heima á Kirkjuteig. Hvert okkar systkina átti sinn vina- og fé- lagahóp. Þegar komið var að fram- haldsskóla tengd- umst við bræður nánum böndum sem staðið hafa óslitið síðan. Við bræður vor- um gegnsýrðir af veiðiáhuga og áratugum saman veiddum við saman, sérstaklega í Hvítá við Iðu, og meðfram því í mörgum bestu laxveiðiám lands- ins svo og í vatnaveiði á Arn- arvatnsheiði, Skagaheiði og víð- ar. Fjölskyldur okkar tengdust sterkum böndum, og mjög oft nefnd samtímis; Sigga, Svenni, Toggi, Dröfn. Meðal annars átt- um við sælureit á Húsafelli til margra ára, en við áttum sitt hjólhýsið hvor og dvöldum með fjölskyldum okkar sumarlangt. Tengdumst Húsafellsfjölskyld- um sterkum böndum sem hafa varað alla tíð. Við deildum einnig systkinin sumarbústað foreldra okkar við Iðu og ófáar stundir sem við höfum notið þess að dvelja þar við stórkostlegar að- stæður. Einnig höfum við Toggi og Dröfn átt margar skemmti- legar ferðir saman í orlofshús fyrirtækja og félaga um allt land, oftast miðað við eina viku í senn í byrjun ágúst í kjölfar verslunarmannahelgar. Þá er oft kominn berjatími, sem við bræð- ur notuðum skynsamlega, en konurnar voru duglegri. Nú síðustu þrjú til fjögur ár hafa veikindi Þorgeirs tekið yfir venjulegt líf og reynt mjög á Dröfn og fjölskyldu sem hafa staðið sem klettur og verið svo ótrúlega sterk við Togga og heimilið og reynt að gera lífið aðeins léttara. Þetta hefur verið rússíbanareið fram og til baka; spítalinn, hvíldarinnlagnir, vist- heimili … og þetta meðan Covid- faraldur geisaði. Ég veit að það sem bróðir saknaði mest var að komast ekki í sundið sitt, sem hann fór daglega og hitti sína góðu sundfélaga þar. Síðustu mánuði mátti greinilega sjá hvað honum leið illa, kvalir, máttleysi. Hvað maður gat lítið gert fyrir hann nema bænir um betri tíð. Ég og Sigga mín viljum þakka kærlega fyrir allar samveru- stundir og kveðjum góðan dreng, og vottum elsku Dröfn og fjölskyldu innilega samúð. Sveinn (Svenni) og Sigríður (Sigga). ✝ Inga Þórarins- dóttir fæddist 14. nóvember 1946 á Seyðisfirði. Hún lést á Landspítalanum 1. desember 2022. Inga var dóttir Sigfríðar Hall- grímsdóttur, f. 14.6. 1927, d. 1.2. 2021, og Þórarins Guð- laugs Eyvindssonar, f. 11.10. 1925, en kjörforeldrar Ingu voru Guð- laugur Óskar Stefánsson, f. 12.8. 1916, d. 22.7. 1989, og Laufey Ey- vindsdóttir, f. 19.12. 1917, d. 1.12. 1987. Systir Ingu heitir Guðfinna Guðlaugsdóttir, f. 14.10. 1948, en áður fæddist þeim Guðlaugi og Laufeyju andvana sonur þann 18.6. 1946. Inga og Guðfinna ól- ust upp á Fífilgötu 3 og Helga- fellsbraut 21 í Vestmannaeyjum og eiga þaðan margar dýrmætar og góðar minningar. Inga var einkabarn föður síns Þórarins en sammæðra hálf- laugur, f. 27.10. 1973, sambýlis- kona Kristín Sigurðardóttir, f. 1977. Þeirra dóttir er Helga Lilja, f. 16.2. 2011. 4) Kristinn, f. 10.2. 1978, d. 22.3. 2017, giftur Mar- gréti A. Jónsdóttur, f. 1978. Þeirra dætur eru Sigríður Anna, f. 16.8. 2003, og Inga Guðrún, f. 18.3. 2008. 5) Hildur, f. 29.9. 1984, sambýlismaður Gregory John Dixon, f. 1985. Þeirra dóttir er Helena Christine, f. 15.4. 2014. Fyrir átti Hildur dóttur með Guðna Guðjónssyni, f. 1985, Emil- íu, f. 5.7. 2007. Inga lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1966 og þaðan lá leið hennar í Kennaraháskólann í Reykjavík og útskrifaðist hún þaðan 1968. Inga hóf störf sem kennari strax eftir útskrift við Barnaskóla og Hamarsskóla Vestmannaeyja og kenndi þar til hún lét af störfum árið 2017 þá rúmlega sjötug að aldri. Inga hafði yndi af fallegri tónlist og söng í Kór Landakirkju í áratugi. Einnig gekk hún í Re- bekkustúkuna Vilborgu í Odd- fellowreglunni og var félagi þar allt til hinsta dags. Útför Ingu fer fram frá Landa- kirkju í Vestmannaeyjum í dag, 17. desember 2022, og hefst at- höfnin klukkan 13. systkini Ingu eru Bjarndís Harð- ardóttir, f. 16.11. 1948, d. 10.12. 2021, Valur Harðarson, f. 11.3. 1954, d. 24.10. 2018, Hjörtur Harð- arson, f. 23.10. 1955, Hallgrímur Harð- arson, f. 4.7. 1958, og Helena Harð- ardóttir, f. 19.4. 1964. Hinn 16. október 1971 giftist Inga Ólafi Magnúsi Kristinssyni, f. 2.12. 1939, d. 4.1. 2018. For- eldrar hans voru Kristinn Magn- ússon, f. 1908, d. 1984, og Helga Jóhannesdóttir, f. 1907, d. 1993. Börn Ingu og Ólafs eru: 1) Helga, f. 20.8. 1970, barnsfaðir Örn Guð- mundsson, f. 1969, d. 2022. Þeirra synir eru Ásgeir, f. 12.7. 1989, og Ólafur Ingi, f. 8.8. 1993. 2) Lilja, f. 17.2. 1972, gift Gunnari Sigurðs- syni, f. 1970. Þeirra synir eru Gauti Þór, f. 4.2. 2002, og Krist- inn Gunnar, f. 22.9. 2005. 3) Guð- Elsku mamma, Góða nótt Guð geymi þig og alla í heiminum sömuleiðis Þín Hildur. Elsku mamma okkar. Það er erfitt að trúa því að þú sért farin frá okkur. Þrátt fyrir gríðarlegan söknuð og sorg finn- um við huggun í því að nú ert þú komin til pabba og Kidda sem þú saknaðir svo óendanlega mikið. Það er skrýtið að koma heim á Höfðaveginn og hafa þig ekki til að taka brosandi á móti okkur í dyrunum, spennt að fá barna- börnin í heimsókn sem þú vildir allt fyrir gera og varst þeim svo óendanlega góð. Minningar þeirra um ömmu sína eru ómet- anlegar og munu ylja þeim í sökn- uðinum. Hvíl í friði, elsku mamma, við munum sakna þín. Helga, Lilja, Guðlaugur (Gulli) og Hildur. Ég man það eins og það hafi gerst í gær þegar ég hitti mömmu hans Kidda fyrst, hana Ingu Þór- arinsdóttur. Ég var 19 ára stelpa að fara til Vestmannaeyja í fyrsta skipti en á döfinni var m.a. að hitta fjölskyldu kærasta míns. Eðlilega var ég aðeins kvíðin að hitta fólkið en sá kvíði reyndist með öllu óþarfur. Þau hjónin tóku mér opnum örmum og streymdi hlýjan frá Ingu. Mér varð ljóst að ef við Kiddi myndum festa ráð okkar fengi ég yndislega tengda- móður í henni. Inga reynist mér afskaplega vel alla tíð. Mér er sérstaklega minnis- stætt þegar hún kom og var hjá okkur Kidda og sinnti nöfnu sinni um nokkurt skeið, sem þá var nokkurra mánaða, vegna þess að ég átti erfitt með umönnun henn- ar eftir aðgerð. Mikið óskaplega var ég þakklát fyrir þá aðstoð og hennar góða félagsskap. Það var alltaf jafn yndislegt að koma á Höfðaveginn þar sem oft var margt um manninn og góðar minningar skapaðar í kringum eldamennsku, bakstur og borðs- pil og auðvitað mikið punt þegar lagt var á borðið. Hún var ynd- isleg amma, og lagði sig alla fram til þess að dætur okkar Kidda ættu skemmtilegar og spennandi stundir í Vestmannaeyjum, slíkt var dekrið. Þessarar góðu konu, Ingu Þórarinsdóttur, er og verð- ur sárt saknað. Ég samhryggist, elsku Helga, Lilja, Gulli og Hild- ur, og bið þess að mamma ykkar sé komin í faðminn á pabba ykkar og Kidda. Margrét Arnheiður Jónsdóttir. Í dag kveðjum við kæra frænku og vinkonu, Ingu Þórar- insdóttur. Hennar verður saknað mikið og aðventan í ár er ekki jafn björt og áður í kjölfar fráfalls hennar. Inga var hluti af fjölskyldu sem var ákaflega samhent í einu og öllu. Oft var grínast með að fjöl- skyldan væri eins og baunabelg- ur, allir saman í einum hóp. Þessi samlíking á vel við því mæður okkar Ingu og fjölskyldur voru mjög nánar og mikill samgangur á milli. Inga var alin upp í Vestmanna- eyjum, gekk í Menntaskólann á Akureyri og tók síðan kennara- próf. Hún starfaði við kennslu alla sína starfsævi og tók þátt í fé- lagsstörfum eins og hún hafði tíma til með fjölskyldunni. Hún söng í Kirkjukór Landakirkju í mörg ár og tók þátt í starfi Odd- fellowstúkunnar Vilborgar í Vest- mannaeyjum. Inga og eiginmaður hennar Ólafur M. Kristinsson eignuðust fimm börn. Heimilið var stórt og mikið líf á því. Inga var nátengd börnum sínum og reyndi að eyða eins miklum tíma og hún gat með þeim og á síðustu árum, eftir frá- fall Ólafs, voru börnin dugleg að koma til Vestmannaeyja og eyða tíma með móður sinni. Allar há- tíðir var fullt hús af börnum og barnabörnum og Inga naut þess að hafa fjölskylduna sína hjá sér. Barnabörnin níu voru ömmu sinni dýrmæt og alltaf velkomin í heim- sókn. Inga missti son sinn, Kristin, og mann sinn, Ólaf, með tiltölu- lega stuttu millibili og var það henni þungbær missir. Hún barð- ist við erfiðan sjúkdóm síðasta ár- ið og tókst á við veikindi sín af yf- irvegun til þess síðasta með stuðningi fjölskyldu sinnar. Inga hefði án efa viljað taka þátt í lífi barna og barnabarna mikið leng- ur en hún hafði tækifæri til en þau eiga eftir góðar minningar um móður og ömmu. Lilja Þorsteins og fjölskylda. Inga vinkona mín og sam- starfskona til margra áratuga er fallin frá svo allt of snemma og óvænt þrátt fyrir veikindi. Við kynntumst sem samstarfskenn- arar í Barnaskóla Vestmannaeyja og síðan þróaðist samstarfið í vin- áttu okkar og svo barnanna okk- ar. Inga bjó á Höfðavegi 39 og þar var alltaf líf og fjör með stóra barnahópnum þeirra Óla og vin- um barnanna en alltaf virtist vera nóg rými fyrir alla og ekki talið nákvæmlega þegar sest var við matarborðið hvort þar væru ein- hverjir aukameðlimir. Þau voru samhent í þessu Inga og Óli og krakkarnir fundu að þarna voru þau velkomin. En Inga lét sig líka aðra varða og vil ég þakka fyrir þá umhyggju og væntumþykju sem hún sýndi mér og börnunum mínum. Alltaf fann maður sig velkominn á Höfðaveginn eins og maður væri í fjölskyldunni. Inga hafði mjög gaman af tónlist og oftar en ekki var sett plata á fóninn með söng heimssöngvara eins og Callas, Carreras eða Pavarotti til yndis- auka. Inga var mjög umhyggjusöm móðir og var í afar góðu og miklu sambandi við börnin sín og svo síðar barnabörnin. Það var því mikill harmur þegar Kiddi sonur hennar lést svo óvænt aðeins 39 ára gamall og svo missti hún Óla tæpu ári síðar. En Inga hélt vel utan um hópinn sinn og ræktaði sambandið vel og börnin og barnabörnin voru dugleg að koma til Eyja og eiga samvistir við hana. Þau sýndu líka mömmu sinni einstaka umhyggju í þeim erfiðu veikindum sem hún gekk í gegnum. Þakklæti er mér efst í huga þegar ég hugsa til Ingu, þakklæti fyrir allar þær góðu stundir sem við og fjölskyldurnar áttum sam- an. Elsku Helga, Lilja, Gulli, Hild- ur, tengdabörn og barnabörn, megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur og styrkja og munið að Inga lifir áfram í ykkur, megi minningin um yndislega mömmu og ömmu létta ykkur sorgina. Hjálmfríður. Inga Þórarinsdóttir Okkar ástkæra SILJA KJARTANSDÓTTIR, Stakkahlíð 17a, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 25. nóvember. Útför hennar fer fram frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn 19. desember klukkan 15. Gísli Óskarsson Kjartan Magnússon Magnús Ingi Kjartansson Erla María Sveinsdóttir María Ósk Beck Jakub Biegaj Hildur Petersen Halldór Kolbeinsson Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs sonar okkar og bróður, ÁRNA SÆVARS GYLFASONAR, Austurbrún 6a, Reykjavík. Gylfi Ómar Héðinsson Svava Árnadóttir Hörður Már Gylfason Björk Ólafsdóttir Inga Rut Gylfadóttir og systkinabörn Innilegar þakkir fyrir samúðarkveðjur vegna andláts og útfarar okkar ástkæru AUÐAR INGVARSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sóltúns 3-B og alls starfsfólks þar fyrir kærleiksríka umönnun. Sveinbjörg Egilsdóttir Rögnvaldur Ólafsson Jón Egilsson Helga Egilsdóttir Guðmundur Björnsson ömmubörn, makar og langömmubörn Okkar ástkæri GÍSLI ÖRN GUNNARSSON, Hafnarbraut 35, Höfn í Hornafirði, lést á Landspítalanum 12. desember. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju fimmtudaginn 22. desember klukkan 13. Streymi frá útförinni má finna á hafnarkirkja.is. Halldóra Sigurbjörg Stefánsdóttir Gunnhildur Lilja Gísladóttir Valgeir Þór Steinarsson Halldór Bragi Gíslason Eydís Dóra Einarsdóttir Sigurrós Guðbjörg Gíslad. Arnar Már Hall Guðmundsson Hafdís Stefanía Eiríksdóttir Björn Þór Imsland barnabörn og barnabarnabörn Ástkær maki minn, móðir, tengdamóðir og amma okkar, ÓLÖF HEIÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR, lést 28. nóvember á Landspítalanum við Hringbraut. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 19. desember klukkan 13. Kristján Már Gunnarsson Margrét Björg Jakobsdóttir Justin Lloyd Carter Jakob Tristan Carter Atlas Krummi Carter Viktoria Kría Carter Kæru ættingjar og vinir. Við þökkum ykkur af alúð fyrir fallegar kveðjur og hluttekningu vegna fráfalls okkar yndislega föður, tengdaföður, afa og langafa, INGIMARS EINARSSONAR leigubílstjóra, Sóltúni 2, áður Laugarnesvegi 87. Gleðilega hátíð með ljósi og friði. Guðrún Katrín, Jóhanna Sigrún og fjölskyldur Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN ÞORLEIFSSON vélstjóri, áður til heimilis að Lækjargötu 4, Reykjavík, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 15. desember. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 22. desember klukkan 13. Börn, tengdabörn og afabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.