Morgunblaðið - 17.12.2022, Síða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022
RALPH
FIENNES
NICHOLAS
HOULT
ANYA
TAYLOR-JOY
Painstakingly Prepared.
Brilliantly Executed.
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR ENCANTO
KOMIN Í BÍÓ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
USA TODAY ENTERTAINMENT
WEEKLY
EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post
SCREENDAILY IGN VANITYFAIR THEHOLLYWOOD
REPORTER
84%
91%
71%
Nána i upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
USA TODAY ENTERTAINMENT
WEEKLY
EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post
REEL VIEWS EMPIRE AV CLUBNEW york post indie wire
entertainment weekly the atlantic chicaco sun-times the playlist
82%
þá, ef þessi nýja, Christmas with
Cliff, er ekki bara best. Hinar búa
yfir vissri poppslikju, Cliff enn að
reyna að halda sér í bransanum
en nú þarf hann ekki að sanna
neitt lengur eða reyna. Ákveðinn
heilagleiki yfir, röddin svona meira
og minna farin, en það bara eykur
á krúttlegheitin. Chris Isaak á þá
jólaplötu, Everybody Knows It‘s
Christmas, sem er hans önnur.
Árið 2004 kom út hin ágæta
Christmas og höggvið er í svip-
aðan knérunn hér, ballöðukennt,
brilljantínsmurt rokk og ról að
hætti sjötta áratugarins og þessi
einstaka dulúð sem fylgir Isaak,
þessu undri sem er hvað þekkt-
ast fyrir þennan eina smell sinn,
„Wicked Game“.
Tvær plötur vöktu sérstaka
athygli mína. Gloria Estefan
stendur að plötunni Estefan
Family Christmas ásamt dóttur
sinni, Emily, og barnabarni, Sasha
Estefan-Coppola. Það er mjög
skemmtilegur andi yfir plötunni,
smá rómanskir/„latin“ straum-
ar og plötuumslagið nikkar til
svipaðra platna frá sjöunda og
áttunda áratugnum er Jacksons,
Osmonds og Sinatra-fjölskyldan
hlóðu í svipaða gripi. Þá er hin
stórkostlega Macy Gray, sem sló
í gegn 1999 með plötunni On How
Life Is, með plötu sem hún kallar
Christmas with You. Einstök rödd
Gray, sem lýsir sér helst í inn-
blásnum rámleika, er sett undir
fönkaða, hipphopp-legna tónlist
og óeðlilegheitin skila sigri („Blue
Christmas“ í bossa nova-útgáfu!?).
Æ, það er hressandi að hrista upp
í þessu öllu saman endrum og eins.
Nefni líka, áður en ég kveð, þrjár
íslenskar plötur sem komu út í
ár. Lón gaf út Fimm mínútur í jól,
Rakel Páls Með jólin í hjarta mér
og Baggalútur Jólasjór. Og þessu
fagna ég, við Frónbúar höfum
verið að fá ca. 2-4 nýjar íslenskar
jólaplötur á ári og um að gera að
bæta á þennan lager.
Hafið það gleðilegt og gott, kæru
lesendur, í aðdraganda jóla og ekki
gleyma að hlusta á tónlist. Hún er
best.
hljóðritanir, en Cliff er kominn
á níræðisaldur, 82 ára. Um er að
ræða þriðju jólaplötu okkar manns
en áður hafa komið Together
with Cliff Richard (1991) og Cliff
at Christmas (2003). Svei mér
Já, þegar stærsta fréttin í
þessum efnum er jólaplata
með Backstreet Boys,
strákasveitinni amerísku, sem var
risastór en er það ekki lengur, þá
er ljóst að fátt er um fína drætti.
En bíðum samt aðeins. Líkt og
Take That þá hafa Backstreet
Boys notið farsællar endurkomu,
eru eðlilega ekki eins miklir risar
og fyrir tuttugu árum, en eru
engu að síður að keyra sæmilegan
feril í dag, njóta vinsælda, jafnvel
virðingar. Platan er eins og við
mátti búast, sírópslegið ofurpopp
og væmnin og ósmekklegheitin
botnuð sem aldrei fyrr. Hey, þetta
er Ameríka! Draumaverksmiðjan
og allt það. Skjannahvítt nútíma
doo-wop og allur pakkinn.
Best að færa sig á aðeins skap-
legri mið. Alicia Keys, sá mikli
meistari, er með jólaplötu sem
kallast Santa Baby. Smekklegt r
og b og sálartónlist, minnir mig
dálítið á ágæta plötu John Legend
frá 2019 sem heitir að sjálfsögðu
A Legendary Christmas (má líka
til með að minnast á endurút-
gáfu jólaplötunnar The Spirit of
Christmas sem Ray Charles gaf út
1985 en hún hefur verið ófáanleg
um langa hríð). Fleiri söngkonur
eiga plötu í skónum þetta árið.
Joss Stone, breska sálarsöng-
konukraftaverkið, er með plötu
og ekki hljómaði hún vel í fyrsta
rennsli. Undarlegur rembingur
og fals. Einnig eru plötur í ár frá
eitís-popparanum Debbie Gibson
og Andreu Corr, sem syngur með
Corrs-systkinunum írsku. Þær
bíða rannsóknar. Athugið nefni-
lega, að sumt sem hljómar alveg
ágætlega á pappír spilast síðan
ekkert sérstaklega vel. Ég minnist
þess t.d. að jólaplötur Gwen
Stefani (2017) og Kylie Minogue
(2015) eru bara allt í lagi, ekki mik-
ið meira, á meðan plötur Noruh
Jones (2021) og Kacey Musgraves
(2016) eru snilld!
Reyndar hlýtur sá stærsti þetta
árið að teljast Cliff Richard, ein
skærasta poppstjarna sem skinið
hefur í Bretlandi. Hann er sem
sagt með nýja jólaplötu, nýjar
„Ég vild' að alla daga væru jól …“
Það er mjög
skemmtilegur
andi yfir plötunni,
smá rómanskir/„latin“
straumar og plötu-
umslagið nikkar til
svipaðra platna frá
sjöunda og áttunda
áratugnum.
Venju samkvæmt
mun ég nú ræða um
nokkrar nýútkomnar
jólaplötur, erlendar
sem innlendar. Heimt-
ur voru hins vegar
tiltölulega dræmar í
ár verður að viður-
kennast.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddse
arnareggert@arnareggert
n
.i
Grallarar Backstreet
Boys þrammameð
blásaklaust grenitré.