Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 51
MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022 Skeifan 8 | Kringlan | Glerártorg | casa.is „Ég er yfirleitt með margt í gangi í einu. Einu sinni heyrði ég það heilræði að maður ætti alltaf að einbeita sér að því þar sem hitinn er. Þegar þessar smásögur byrjuðu að draga mig inn passaði ég bara að neita þeim ekki um athyglina,“ segir Örvar Smárason um fyrsta smásagnasafnið sitt sem nefnist Svefngríman og nýverið kom út. Áður hefur hann sent frá sér nóv- elluna Úfin, strokin og ljóðabókina Gamall þrjótur, nýir tímar. Það er óhætt að segja að sögurn- ar átta sem í bókinni birtast vegi skemmtilega salt á milli hins hvers- daglega og fjarstæðukennda. Var það með ráðum gert? „Ég held að það komi til af því að ég var að reyna að skrifa eins hversdagslegar sögur og ég gæti um fólk sem stendur hvergi út úr og býr í nákvæmlega sama heimi og við hin í hversdagsleika okkar. Því hinn hlutinn, þ.e. furðurnar og skringilegheitin, þau koma bara af sjálfu sér. Með því að dvelja með persónum í eins fábrotnum og venjulegum aðstæðum og hugsast getur komst ég miklu nær persón- um en ég hafði ímyndað mér,“ segir Örvar og bendir sem dæmi á að persónur hans fara í sund, nenna ekki að vaska upp og liggja í baði. Á sama tíma fjalla sögurnar um óraunverulega hluti á borð við síð- asta kaffibollann fyrir heimsendi, eðlilegan útlimamissi og gervi- greindarvináttu. Oft úðað frá sér ýmsu efni Er smásagnasafnið búið að vera lengi í smíðum? „Já, ég er búinn að vinna þetta mikið og lengi. Á sama tíma er ég búinn að vera að skrifa mikið annað og semja tónlist, þannig að þetta hefur ekki verið eina verkið mitt á síðustu árum,“ segir Örvar, sem er þekktur fyrir verk sín í tónlist- arheiminum en hann er stofnandi hljómsveitarinnar múm og meðlim- ur FM Belfast frá upphafi auk þess sem hann hefur komið að fjölbreytt- um samstarfsverkefnum og skrifað texta við lög fjölmargra íslenskra hljómsveita og tónlistarmanna. „Eitt af því sem heillar mig við að skrifa er að geta verið einn og gefið mér aðeins lengri tíma til sköpunar, því ég hef í gegnum tíðina stanslaust verið að úða frá mér alls konar efni,“ segir Örvar og bendir á að tónlistarbransinn einkennist af mikilli samvinnu og samsköpun. „Á sama tíma er mikilvægt að fá góðan yfirlestur,“ segir Örvar sem er menntaður í handritaskrifum frá kvikmynaskólanum FAMU í Prag, er með BA-gráðu frá Háskóla Íslands í kvikmyndafræði og út- skrifaðist úr meistaranámi í ritlist vorið 2021. „Smásagnasafnið er að stórum hluta til skrifað meðan ég var í ritlistarnáminu. Það reyndist mér ómetanlegt að fá yfirlestur og endurgjöf frá bæði kennurum og samnemendum. Á sama tíma sköpuðust þar aðstæður sem kröfð- ust þess að ég temdi mér ákveðna vandvirkni, sem var gott.“ Gríma umlykur bókina Fyrr á árinu fékkstu nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir Svefngrímuna, auk þess sem smásagan „Sprettur“ í safninu fékk fyrstu verðlaun á Júlíönuhátíðinni. Hvaða þýðingu hefur það haft fyrir þig að fá svona góðar viðtökur við skrifum þínum? „Það að einhver skuli í fyrsta lagi nenna að lesa þetta og í öðru lagi gefa manni einhvers konar viður- kenningu, það gefur manni mikla orku og ástæðu til að halda áfram þegar maður vill gefast upp.“ Hönnun bókarinnar er mjög óvenju- leg. Hvernig er hún til komin? „Ég er náttúrlega svo ótrúlega heppinn að komast að hjá útgáfunni Angústúru. Strax frá byrjun voru þær tilbúnar að leggja mikinn tíma og hugsun í alla útfærsluna á þessu bókverki. Birna Geirfinnsdóttir hjá Studio Studio á heiðurinn af sjálfri hönnuninni. Á einhverjum tímapunkti datt mér í hug að mig langaði að gera bók sem byrjaði á forsíðunni og endaði á baksíðunni, þannig að textinn væri aðalatriðið. Þá var ákveðinn höfuðverkur að koma upplýsingum um útgáfuna fyrir og þá kom þessi hugmynd um að setja þetta blað utan um bókina, sem verður síðan að þessari grímu,“ segir Örvar og bendir á að hægt sé að sjá texta bókarinnar í gegnum grímuna sem umlykur bók- ina. „Þetta er þunnt lag sem pínu byrgir sýnina og kallast þematískt sterklega á við innihaldið.“ Talandi um innihald þá má að lýsa sögunum sem harmrænum og sárs- aukafullum, en á sama tíma búa þær yfir húmorískum undirtón. Er þetta vandratað einstigi? „Ég held að ég gæti aldrei skrifað án þess að hafa einhvern húmor með. Að mínu mati haldast húmorinn og hrollvekjan oft þétt í hendur,“ segir Örvar og nefnir í því samhengi smásögur Shirley Jackson. „Þetta eru ekki hrollvekj- ur fullar af hryllingi heldur frekar ókennileika og furðulegheitum í aðstæðunum.“ lSvefngrímannefnist fyrsta smásagnasafnið semÖrvar Smárason sendir frá sérl„Ég var að reyna að skrifa eins hversdagslegar sögur og ég gæti“ „Furðurnar koma af sjálfu sér“ Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Ljósmynd/Saga Sig Örvar „Aðmínumati haldast húmorinn og hrollvekjan oft þétt í hendur.“ Syngjum jólin inn í Hallgrímskirkju „Syngjum jólin inn“ er yfirskrift dagskrár sem haldin er í Hall- grímskirkju á morgun, sunnudag, kl. 17. „Þar gefst kirkjugestum kostur á að undirbúa jólahátíð- ina með því að syngja marga af ástsælustu jólasálmunum auk þess að hlýða á fallegan kórsöng og lestra,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum. Fram koma Kór Hallgríms- kirkju, Kór Breiðholtskirkju, Kór Neskirkju, Björn Steinar Sólbergsson, Steinar Logi Helga- son, Steingrímur Þórhallsson og ÖrnMagnússon. „Kórarnir munu syngja bæði hver í sínu lag en mynda einnig saman glæsilegan 100 manna kór.“ Prestar safnað- anna, þ.e. sr. Irma Sjöfn Óskars- dóttir, sr. Jón Ómar Gunnarsson, sr. Sigurður Árni Þórðarson og sr. Skúli Sigurður Ólafsson, taka þátt í tónleikunummeð lestrum úr ritningunni. Söfnuðurinn tekur undir í almennum söng og biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, blessar söfnuðinn í lok tónleikanna. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin meðan húsrúm leyfir. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Roði Hallgrímskirkja í ljósaskiptum. Jólin koma gefin út í pólskri þýðingu Jólin koma eftir Jóhannes úr Kötlummeð teikningum TryggvaMagn- ússonar kom fyrst út haustið 1932 og fagnar því 90 ára útgáfuafmæli í ár. Í tilefni tímamótanna hefur bókin verið gefin út á pólsku í þýðingu Nina Słowinska undir heitinu Ida swieta. Samhliða hefur verið sett upp sýning til heiðurs bókinni á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, en safnið eignaðist 1989 frumeintök teikninganna í Jólin koma og eru þær varðveittar í handritasafni. Nordic Affect býður Heim í Mengi í dag Tónlistarhópurinn Nordic Affect býður gestum og gangandi að líta inn í Mengi í dag, laugardag, og njóta jólatónleikannaHeim. Að- gangur er ókeypis og er dagskráin flutt tvisvar, kl. 16 og kl. 18. „Dagskráin er innblásin af hug- takinu „að halda heim um jólin”. Hópurinn spinnur út frá því 21. aldar jólatónleika, sem býður hlustendum inn í tónheim barokk- hljóðfæranna, sem einkennist af nánd um leið og þau flytja verk sem standa hjarta þeirra nærri hvort heldur jólalög frá barokk- tímanum eða þjóðlög,“ segir í tilkynningu frá hópnum. Sérstak- ir gestir eru IanWilson blokk- flautuleikari og Eyjólfur Eyjólfs- son, söngvari og langspilsleikari. Samhljómur Fiðla og langspil. Upplestur höfunda á Gljúfrasteini Að vanda lesa höfundar upp úr nýjum bókum á Gljúfrasteini á aðventunni. Á morgun, á fjórða sunnudag í aðventu, kl. 15 les Elín Edda Þorsteinsdóttir upp úr ljóðabók sinniNúningur; Gerður Kristný upp úr ljóðabók sinniUrta og Guðni Elísson upp úr skáldsögu sinni Brimhólar auk þess sem meistaranemar í ritlist lesa upp úr bókinni Takk fyrir komuna. Dag- skráin, sem hefst kl. 15, stendur í klukkutíma. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin. Guðni Elísson Gerður Kristný
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.