Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 52
MENNING52 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Mikil virðing var ætíð borin fyrir Laxá og fegurð hennar rómuð eins og kom fram í kvæði Guðmundar Friðjónssonar, föðurafa míns, hér áður og endurspeglast í ljóði móður- afa míns, Steingríms Baldvinssonar í Nesi, Vornótt. Hér á eftir eru þrjú af átta erindum: Hvílík dásemdá láði og legi, litaprýði umsjónarhring. Átti að halda að entumdegi alheims fegurstu skrautsýning? Ljósið birtir sitt litaspil, lífið hvað það á fegurst til. Himinn safír, en hafið eldur, hauður smaragðs- og rúbín-skreytt. Eins og kristall er elfar feldur, örþunnt purpuraklæði breitt hafa svifský á svanhvít brjóst, er svali nætur til ferðar bjóst. Enginnmálar þann litaljóma, né lýsa orð þeirri dýrðargnótt. Ánokkur strengur það hrifsvið hljóma? Himinn og jörð eru eitt í nótt. Það er hátíð og heilög stund. Eg er hálfa leið kominn á drottins fund. Áður fyrr var áin mikilvæg lífæð þótt hún væri einnig farartálmi þar til hún var brúuð. Þangað sóttu menn lax og silung í svanga munna og andaregg í hólmana á vorin. Þegar ég var barn var tilhlökkunar- efni að róa út í eyjar, ganga varpið með fjölskyldunni og bera heim fullar fötur af andareggjum, var þó aldrei gengið nærri varpinu. Stein- grímur afi stýrði þessum ferðum af röggsemi, varlega skyldi farið á ánni og gætilega gengið að hreiðrunum, fuglinn mátti ekki styggja meira en nauðsyn krafði. Fengu allir ströng fyrirmæli um að taka aldrei meira en þrjú til fjögur egg úr hverju hreiðri, skilja eftir minnst fjögur og breiða dúninn vel yfir þau. Gómsæt voru glæný andareggin með nýbök- uðu flatbrauði og reyktum silungi hjá ömmu Sigríði sem beið heima á meðan yngra fólkið fór út í eyjarnar. Þá var ekki minkur við Laxá og fuglalífið afar fjölskrúðugt. Minnisstæð eru þessi vor- kvöld þegar náttúran var nývöknuð af vetrar- dvala, silungurinn vakti á lygnum víkum, loftið ómaði af margradda fuglasöng, hrossagaukurinn spilaði á stélfjaðrirnar og hávellan kvað sitt a-álla-álla. „Hvílík dásemd á láði og legi,“ eins og afi minn kvað. Hermóður faðir minn naut þessara ferða, var vanur frá unga aldri að sækja anda- og kríuvarp á Sandi og stunda silungsveiðar. Hann naut þess líka að skreppa með stöng og renna fyrir lax og silung og honum fannst gaman að fara með okkur krakkana á æskuslóð- irnar á Sandi og rifja upp gamlar minningar. Oft fórum við á vorin í kríuvarp út á Sjávarsand. Þá var sandurinn þéttsetinn kríu og leyft að taka annað af tveimur eggjum úr fátæklegu hreiðri kríunnar en hún kemur aldrei upp nema öðrum unganum. Ætíð var valið góðviðris- kvöld til fararinnar og skrönglast á gamla landróver niður yfir hraun og síðan út á sandinn en þangað lágu lélegir troðningar yfir mýrlendi og sandöldur. Að standa á víðáttumikl- um sandinum og hlusta á þungan sjávarniðinn í bland við ærandi kríugargið var líkt og að koma inn í aðra veröld miðað við blítt mófugla- kvakið uppi í dal og ljúfan klið Laxár. Návígið við sjóinn var spennandi, nýstárlegt og ofurlítið ógnvekjandi. Þarna var pabbi á heimavelli, hljóp um sandinn, tíndi egg og lét sér ekki bregða þótt krían steypti sér ofan í höfuðið á honum. Kríuegg var eitt það besta sem hann fékk, að ekki sé talað um kríueggjapönnukökur sem var gamall siður að baka úr eggjum sem óvart brotnuðu, varla fannst honum nokkur veislumatur komast í hálfkvisti. Þetta voru skemmtilegar ferðir og ekki skemmdi fyrir ef náðist að tína skeljar úr sjávarborðinu til að hafa með heim í búið í Kirkjulaut þar sem við litlu systkinin söfnuðum ýmsum gersemum til að bústangast með. Kirkjulaut var stór og djúpur lautarbolli austan undir kirkju- garðinum þar sem við lékum okkur iðulega frá morgni til kvölds frá vori og langt fram á haust með leggi og skeljar og kjálka úr kúm og kindum. Handa þessum búfénaði heyjuðum við, slógum grasið með gömlum sauðaklippum og rökuð- um saman í sátur með greiðu eða hrífubroti. Mikill fengur var að stórum trékassa utan af píanói sem pabbi færði mömmu einn góðan veðurdag. Kassinn varð hin vistleg- asta stofa þar sem bornar voru á borð drullukökur skreyttar fjólum, baldursbrám, fíflum, sóleyjum og ljósbera og eldaðar dýrindiskrás- ir úr mold og grösum á gamalli kolaeldavél sem búin var að skila hlutverki sínu innanhúss. Mikil alúð var lögð í búskapinn og líkt eftir öllu sem fram fór heima fyrir. Seinna meir þegar ég kom með mín börn heim í Árnes reyndi ég að vekja áhuga þeirra á þessum leikjum en án árangurs. Tímarnir breytast og mennirnir og börnin með. Kvöldið örlagaríka En hvað gerðist þetta kvöld? Við vitum það öll sem vorum á staðnum og enn erum ofar moldu – en hvern- ig getum við lýst því? Við getum það í raun ekki þótt atburðurinn standi okkur ljóslifandi fyrir hugskots- sjónum. Við komum saman þarna á árbakkanum í síðsumarshúminu og það var eins og einn hugur sam- einaðist í ógurlegum krafti. Hljóð- lega þéttist hópurinn á bakkanum og óð hiklaust niður í farveginn til að ráðast á stífluna. Við höfðum aðeins járnkarla, rekur og haka að vopni auk tveggja dráttarvéla með skóflu og sumir unnu verk sitt með berum höndunum. Ævar Kjartansson sem var meðal sprengjumanna sá atburðina þannig fyrir sér 40 árum síðar þegar hann ávarpaði áðurnefnda samkomu við Miðkvísl: Mér fannst ég vera að upplifa sögulega stund, loksins lifði maður það að venjulegt fólk ætlaði að taka örlög sín í eigin hendur. Í mínum persónulega sjónauka á ég mér nokkrar uppáhaldsmyndir: Jóhanna Steingrímsdóttir hús- freyja í Árnesi með vinnuhanska að þeyta hnullungum uppfyrir stíflu- vegginn – Starri í Garði og Kristján í Vogum sem voru fréttaritarar Þjóðviljans og Morgunblaðsins kepptust við að koma saman frétt fyrir sín málgögn fyrir miðnætti. Í gjörvöllu Kalda stríðinu hefur eins góð samvinna fjendanna aldrei sést. Þeir sátu hlið við hlið og notuðu sama penna og sömu gleraugun. – Mér er minnisstætt að Jón Árni Sigfússon sem mér fannst virðuleg- ur bílstjóri sló fótum í rass af gleði þegar hleðslan sprakk og prestur- inn, séra Örn Friðriksson, sveif um svæðið eins og erkiengill og tók myndir í gríð og erg. Manni fannst að Hofsstaðabræður með sína sprengikunnáttu hefðu eins getað verið þrautþjálfaðir skæruliðar. Já, grjóthnullungar og torfhnaus- ar flugu upp á bakkann og dráttar- vélarnar erfiðuðu ofan í vatninu. En þar kom að þær rákust á fyrirstöðu sem ekki yrði unnin með auðveldum hætti, steinsteyptur garður leyndist undir jarðvegsstíflunni. Nú voru góð ráð dýr. Þar komu Hofsstaðabræður við sögu og fleiri snjallir kunnáttu- menn sem höfðu tromp uppi í erminni – dýnamít. En hvernig átti að fara að því að sprengja stein- steyptan vegg? Það reið á að ljúka verkinu með hraði áður en fregnir bærust út um aðgerðir á vettvangi. Menn réðu ráðum sínum, Mývetn- ingar og Aðaldælir, og svo vildi til að Völundur bróðir minn hafði nýlega lesið bókina Hetjurnar frá Navarone eftir Alistair MacLean þar sem höfundurinn lýsir aðferðum við að sprengja stíflu. Hvar væri best að koma dýnamítinu fyrir svo það ynni sem skjótast sitt verk. Eftir þessum leiðbeiningum fóru þeir Hofsstaða- bræður þegar þeir þrýstu dýnamít- inu upp að veggnum og tengdu við þráðinn sem lá að hvellhettunum. Svo skemmtilega vildi til að Laxár- virkjunarmenn lögðu dýnamítið til sjálfir, það geymdu þeir í hraungjót- um skammt frá til að nota við að sprengja klakastíflur í kvíslinni á vetrum og var það því aðgengilegt hverjum sem vildi. Þegar sprengi- efninu hafði verið komið fyrir var nær aldimmt orðið, ekki sást hik á neinum en loftið var þrungið spennu þegar sprengingar glumdu við og mold og grjót þeyttist yfir svæðið. Eins og einn sprengjumanna, öldruð kona, hafði á orði þá breyttist hljómur árinnar í einu vetfangi og varð glaðværari. Og áin söng „ég er frjáls, ég er frjáls“. Orrustunni var lokið með sigri. Herfylkingin fagnaði ákaft á bakkanum. Upp úr miðnætti var verkinu lokið og hver hélt til síns heima nokkuð þreyttur en sigur- reifur og glaður í hjarta. Hér höfðu orðið tíðindi sem vöktu athygli alþjóðar og fjölmiðla og tæknirisinn hafði opnað annað augað. Mývetningar grétu. Þeir þó mest sem fjarri voru þessum stórmerkj- um, svo sem Þráinn Skútustaða- skólastjóri. Allir gengu vel fram í bardaganum. Mönnum kom saman um, að klerkurinn hefði þó verið skotdjarfastur. Mun hans framganga lengi í minnum höfð. Þeir sveitungar höfðu skamma viðdvöl þar við Kvíslina, stormuðu heim á næstu bæi og lýstu vígum á hendur sér. Einn fyrir alla og allir fyrir einn. Öllum mátti ljóst vera að þar yrði við ramman reip að draga um eftirmálin. Þannig var komist að orði í grínblaðinu Speglinum um haustið. Og mikið rétt, séra Örn á Skútu- stöðum skaut föstum skotum af myndavél sinni á vettvangi og eru ljósmyndir hans ómetanleg heimild um atburðinn þótt þær beri þess því miður merki að skuggsýnt var orðið. Tilvísunum er sleppt. Bókarkafli Í bókinni Ástin á Laxá segir Hildur Hermóðsdóttir frá aðkomu Hermóðs Guð- mundssonar í Árnesi að því þegar Þingeyingar tóku til sinna ráða til verndar náttúrunni Enginnmálar þann litaljóma Ljósmynd/Úr einkasafni HugsjónirHjónin Hermóður Guðmundsson og Jóhanna Á. Steingríms- dóttir í Árnesi í einum hólma Laxár að vori með Sigríði dóttur sína. Gefðu mánaðar áskrift af Morgunblaðinu án endurgjalds og kynntu vinum þínum og vandamönnum það besta í íslenskri blaðamennsku. Gefðu gjöf Hvernig gef ég gjöf? Áskrifendum Morgunblaðsins býðst að gefa hverjum sem er áskrift af Morgunblaðinu í einn mánuð svo framarlega sem engin áskrift er á heimilinu. Viðtakandi gjafarinnar fer inn á mbl.is/gjof og fyllir út umbeðnar upplýsingar ásamt kennitölu áskrifanda. Hver áskrifandi getur gefið eina áskrift að gjöf Ef blaðið hefur ekki borist innan fjögurra daga frá því að kynning hefur verið samþykkt vinsamlega hafið samband við þjónustuver Morgunblaðsins í síma 569 1100. Tilboðið gildir til 15. janúar 2023.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.