Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2022, Qupperneq 22
HÖNNUN
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.10. 2022
A
uður flúrar á Íslenzku húð-
flúrstofunni og mynd-
skreytir barnabækur í hjá-
verkum. Eiginmaður hennar er
húsgagnasmiður og vinnur hjá
Minjavernd. Saman eiga þau tvö
börn, tíu ára dóttur og fjögurra ára
son.
Fullkomin staðsetning
Íbúðin er undir súð og ákaflega hlý-
leg og falleg en á þessum tveimur
árum hafa hjónin gert hana að sinni.
„Hún var frekar illa farin eftir að
hafa verið í útleigu, og bauð upp á
möguleikann að auka verðmætið
mjög mikið með smá snýtingu.
Staðsetningin heillaði okkur líka.
Það er einhvern veginn allt sem við
þurfum í svo mikilli nálægð. Stutt í
vinnuna og margir fjölskyldu-
meðlimir og vinir í göngufjarlægð,“
segir Auður.
Mánuðinn sem þau fengu íbúðina
afhenta mátti Auður ekki vinna
vegna faraldursins og gat því verið í
fullri vinnu í framkvæmdum. „Það
þurfti svo sem ekki að gera mikið en
við pússuðum og olíubárum gólfið,
tókum niður tvo veggi og settum upp
einn til að bæta við aukaherbergi
fyrir unglinginn. Svo fengum við
gefins gult klósett sem við settum
upp,“ segir Auður.
Héldu í upprunalega útlitið
Auður segir þau hafa gert sitt besta
til að halda í upprunalegt útlit íbúð-
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hansahillan kemur úr ýms-
um áttum, en meirihlutinn
frá ömmum og öfum.
Vildi bara
kaupa íbúð
með baðkari
Uppáhaldsstaður Auðar Ýrar Elísabetardóttur á
fallegu heimili hennar Hlíðunum í Reykjavík er
baðkarið en Auður setti þau skilyrði þegar hún
og eiginmaður hennar Marínó Sigurðsson voru í
fasteignaleit að það væri baðkar í henni. Íbúðina
keyptu þau haustið 2020 í miðjum heimsfaraldri,
sem var eftir á að hyggja ekki mjög sniðugt að
sögn Auðar því hún er húðflúrari og var tekju-
laus í þrjá mánuði vegna lokana.
Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is
Tekkskrifborðið
smíðaði Marínó, eig-
inmaður Auðar.
Auður Ýr Elísabetardóttir hef-
ur búið sér og fjölskyldu sinni
ákaflega hlýlegt og fallegt
heimili í Hlíðunum í Reykjavík.
Auður valdi flesta
litina á veggi íbúð-
arinnar.