Rökkur - 01.06.1946, Side 8

Rökkur - 01.06.1946, Side 8
54 RÖKKUR um gólf, mjög æstur): Hverju skiptir það allt? HELGA. (í dyrunum): Viltu þá ekki meira kaffi, Nonni minn? JOHN. (Staðnæmist. Hlær kuldalega): Nei. (Tekur pela upp úr vasa sínum og sýpur á.) Nei, bara þetta. Bara eitur, eit- ur. Nú fer eg upp. Komdu Sig- urjón. SIGURJÓN. (Til Helgu): Eg veit, hvað þig tekur þetta sárt, en — liann er vart með sjálf- um sér. HELGA: Það er allt á yfir- borðinu. Honum þykir vænt um okkur öll — inst inni. Það kem- ur í ljós, ef hann finnur sjálfan sig aftur. Farðu nú upp með iionum og vertu hjá lionum, blessuðum drengnum. SIGURJÓN. (Kinkar kolli): Góða nótt, Helga. (XJt). HELGA: Góða nótt, Sigurjón. (Hún gengur að dyrunum á litla herberginu, opnar þær og litur inn. Hún kveikir á snerli við dyrnar og fer svo inn í lier- bergið, en lokar ekki á eftir sér. Meðan á þessu stendur heyrist gengið um frammi og inn í eld- húsið. Helgi kemur inn, búinn vinnufötum. Hann sest við skrifborð sitt. Helga kemur inn aftur). HELGA: Þú kemur þá sein- astur inn frá störfum, eins og vant er, góði minn. HELGI: Og eg á sumt ógert enn. Nú fara þeir i fyrramálið, piltarnir, og þeir munu þurfa að fá sitt. HELGA: Nú verður hér kyrr- látara, Helgi. HELGI: Við skulum að minnsta kosti vona það. Er Nonni farinn upp? HELGA: Þeir eru farnir upp fjrrir örstuttri stundu. HELGI: Eg er glaður yfir því hans vegna, að uppskeruann- irnar eru um garð gengnar. Eg get ekki áfelst piltana, að vísu, fyrir það, hvernig hér hefir gengið til að þessu sinni. Nonni á sjálfur mesta sök á drykkju- skapnum. Eg veit varla hvað getur bjargað honum. Þetta er eitraður drykkur sem þeir hella í sig. Að minnsta kosti þolir Nonni hann ekki til lengdar, svo á sig kominn sem hann er. Hér verður endir á að verða, Helga, hans vegna ekki siður en okkar, og vegna heimilisins. HELGA: Við sjáum nú hvað gerist, ef —• HELGI: Hann verður að hætta að drekka — eða fara. HELGA: Við megum ekki hregðast honum núna. Við verðum að bíða. Nú kemur Rúna — og heldurðu ekki, að þetta geti lagast? Eg hefi beðið svo heitt fyrir honum, að eg J

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.