Rökkur - 01.06.1946, Blaðsíða 52

Rökkur - 01.06.1946, Blaðsíða 52
Greifinn af Monte Christo eftir Alexandre Dumas er óumdeilt frægasta skemmtisaga heims. Sagan er í þýðingu minni yfir 900 bls. í sama broti og Rökk- ur og sett með sama letri. Sagan er í átta bindum og er verð hennar 35 krónur. Einstök bindi eru einnig fáanleg. Mörg bindanna hafa verið endur- prentuð eftir að verð á pappír og prentun hækkaði, en þrátt fyrir það verður bókin seld áfram á sama verði. Sagan er send burðargjaldsfrítt, ef peningar fylgja pöntun, en gegn póstkröfu kostar hún 40 kr. — Pantanir sendist til undirritaðs þýðanda bókar- innar, Axel Thorsteinson, Rauðarárstíg 36 Reykjavík (eða pósthólf 956). Röhhur alþýðlegt tímarit, stofnað í Winnipeg 1922, kemur framvegis út sem ársfjórðungsrit. Verð 10 krónur árgangurinn, ef innheimt gegn póstkröfu 11 krónur. Frá þeim, sem eigi hafa sent áskriftarárgjald á tíxn- anum frá nýári til 15. apríl, verður gjaldið innheimt með póstkröfum, sem sendar eru út 1. maí ár hvert. I ár kemur út fylgirit með Rökkri, skáldsaga, þýdd úr ensku, 12 arka bók, sem verður send í maíbyrj- un öllum þeim, sem þá hafa greitt árganginn 1946, og þar næst eftir hver mánaðamót þeim, sem áskrift- argjald hefir borizt frá mánuðinn á undan. Afgreiðsla Rökkurs er á Rauðarárstíg 36 (pósthólf 956), opin kl. 1—3 daglega.

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.