Rökkur - 01.06.1946, Síða 16

Rökkur - 01.06.1946, Síða 16
62 RÖKKUR á hann, undrandi og hrædd): Nonni! JOHN. (Sprettur upp og horfir á liana): Þú! (Stendur svo stundarkorn. Sezt svo aftur og leggur klútinn á enni sér): Þú, Ása! Eg fer að skilja (Gremjulega): Gestir! Þú komst með Rúnu. (Hörkulega): Hvers vegna? ÁSA. (Stillilega): Til þess að hjálpa þér, Nonni. JOHN. (Beiskjulega): Hver segir, að eg sé hjálpar þurfi. Eg hefi ekki beðið um neina hjálp. Og sízt mundi eg þig biðja. Æ, þau hefði átt að láta kyrrt liggja og eg að fara mína leið. Menn geta ekki breytt rás ör- laganna. Það hefði verið betra að við hefðum ekki hitzt aftur. ÁSA. (Lágt): Ertu nú viss um það? JOHN: Já. Af því, að það, sem í huga mínum var, er þar bezt geymt, unz yfir lýkur. (Stendur upp og horfir á hana): Það er bezt, að þú farir eða eg. ÁSA: Hvers vegna? Eg kom til þess að sættast við þig, reyna að hjálpa þér. Eg átti í baráttu við sjálfa mig, áður en eg á- kvað að koma, því máttu trúa. Þú þarft ekki að hlífa mér, ef þú ert mér gramur, eg bið ekki um það. En getum við ekki ræðst við í hreinskilni, og skil- ið svo, ef — JOHN. (Æstur): Hvers vegna? Þú spurðir: Hvers vegna? Gott og vel. Eg skal vera hreinskilinn við þig, fyrst þú ferð fram á það, það er af því að eg hata þig, hata þig. (Hann er kominn í mikla hugaræsingu og lætur ásakanirnar dynja á lienni eins og hálftrylltur mað- ur lætur svipuhögg dynja á varnarlausri skepnu): Eg er ekki sá, sem þú skildir við forð- um, ástfangni unglingurinn, sem trúði á guð og mennina og ættjörðina og á þig, setti þig ofar öllu, treysti þér takmarka- laust, og hætti á allt þín vegna. Sldlurðu það, — það var í raun- inni bara vegna þess, að eg þótt- ist viss um, að þú mundir aldrei bregðast, þú mundir allt af elska mig, að eg hætti fúslega á allt. Það var eitt, að eins eitt, sem eg var svo viss uin, að eg mundi aldrei missa: þig. En þú kaust að hverfa úr li-fi mínu, án þess að segja eitt orð. Óviss- an lá eins og farg á mér og þeg- ar eg hugsaði um þetta fram og aftur, framtíðarvonirnar, land- ið, sem við ætluðum að taka og ryðja, þegar eg kæmi heim, og mér varð ljóst, að þú hafðir vfirgefið mig, þá varð eg beislc- ari og beiskari í lund. Beiskjan varð að gremju og gremjan að hatri. Allt, sem illt er, náði þá sterkari tökum á mér. Þar, seni

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.