Rökkur - 01.06.1946, Side 22
08
ROKKUR
farartálma nokkurn, sem trufl-
ar það, að liægt sé að senda
myndir eftir öldum Ijósvakans
lengra en augað eygir, eða með
öðrum orðum, ekki lengra en
út í yztu brún sjóndeildar-
liringsins miðað við þann stað,
þar sem sendistöð sjónvarpsins
er til húsa, og mun eg siðar í
þessari stuttu grein minni reyna
að skýra lesendum lítillega frá
nokkurum lielztu atriðum sjón-
várpstækninnar.
Venjulega tala menn og
iiugsa sér sjónvarpið þannig, að
það sé aðeins nokkurra ára
gamalt og þar af leiðandi alveg
nýtt af nálinni, en því er nú
samt ekki svo varið, vegna þess
að sjónvarpið á sér langa og
merkilega sögu og er miklu.
eldra en allflestir hugsa sér, þvi
það má með nokkurum sanni
segja um sjónvarpið, að það
sé „gamall unglingur“, sem
alltaf er að þroskast og breytast
eftir því, sem timinn líður, til
dæmis eru ekki nema svo sem
tiu til tólf ár síðan reglulegar
sjónvarpssendingar hófust frá
Alexandra Palace i London, en
þróunarsaga, vísindarannsókn-
ir og mesti fjöldi tilrauna ým-
issa merkra hugvitsmanna og
vísindastofnana á þessu sviði,
ná miklu lengra aftur í tímann,
eða nánar til tekið allt aftur til
órsins 1873, þegar ljósnæmi
„selenium’s“ var uppgötvað.
Þá brugðust vísindamenn fljótt
við, og hugðust að hagnýta sér
þessa merkilegu uppgötvun, til
þess að hrinda í framkvænid
hinni aldagömlu hugmynd, að
senda myndir frá einum stað
til annars, enda varð sú raunin
á, að með uppgötvun seleniums
var lausn vandamálsins fengin,
þar sem selenium hefir þann
sérstaka eiginleika, að þegar
mismunandi bjart ljós skín á
það, þá framkallast í efninu
mismunandi há- eða lág-spennt
rafmagn, en það er einmitt eitt
aðalatriðið við framkvæmd
sjónvarps, að hægt sé að breyta
mismunandi Ijósstyrkleika
(dökka og ljósa hluti) í tilsvar-
andi spennubreytingar, en að
því verður nánar vikið síðar-
Ein af fyrstu raunhæfum til-
raunum með sjónvarp, voru
gerðar um 1884, eða fyrir rúm-
lega sextíu árum, af Þjóðverj-
anum Nipkow, sem fann upp
liina svokölluðu dreifiskifn
(scanning disc). Sjónvarpstæki
þau, sem nú eru notuð, að und-
anteknum þeim, sem nota hina
nýrri katóðugeisla-lampa og
nýjustu uppgötvunina, Tele-
chrom-lampa, eru að meira eða
minna leyti endurbót og breyt'
ingar á hinum eldri og frum-
stæðu tækjum, að viðbættum
ýmsum tækjum, sem í raun og