Fréttablaðið - 02.02.2023, Blaðsíða 2
Starfsmannamál þjóð-
kirkjunnar falli utan
starfssviðs umboðs-
manns Alþingis.
Þetta er auðvitað
leiðinlegt. Þau byrjuðu
sterkt og kölluðust á
við okkur í góðu.
Þórður Ólafur
Þórðarson,
safnstjóri
Reðasafnsins
Heklureitur rýmdur fyrir íbúðakjarna
Niðurrif bygginga á Heklureitnum í Reykjavík er í fullum gangi. Reiturinn er kenndur við starfsemi bílaumboðsins Heklu en samkvæmt áætlunum fram-
kvæmdaaðila á þar að rísa íbúabyggð. Deiliskipulag gerir ráð fyrir samtals 436 íbúðum á svæðinu ásamt verslun og þjónustu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Frá sýningunni Muff Busters á Píkusafninu árið 2019. MYND/PÍKUSAFNIÐ
Píkusafninu í Lundúnum
var lokað í gær eftir aðeins
fjögurra ára starfsemi.
Framkvæmdastjóri Reða-
safnsins segir sína starfsemi
aldrei hafa verið sterkari og
að limum fjölgi.
kristinnhaukur@frettabladid.is
MENNING Píkusafninu í Lundúnum
var lokað í gær. Safnið hafði verið í
vandræðum í nokkurn tíma, bæði
vegna Covid-lokana sem og hús-
næðismála.
Þórður Ólafur Þórðarson, safn-
stjóri Reðasafnsins í Reykjavík,
harmar lokunina en Reðasafnið var
ein af fyrirmyndum Píkusafnsins.
„Þetta er auðvitað leiðinlegt.
Þau byrjuðu sterkt og kölluðust
á við okkur í góðu. Þetta er mjög
miður,“ segir Þórður. Hann hafði
heyrt af vandræðum Píkusafnsins
í nokkurn tíma. Ekkert formlegt
samstarf var á milli safnanna en
þau fylgdust með hvort öðru, svo
sem á samfélagsmiðlum.
Florence Schechter heitir konan
sem stofnaði Píkusafnið, eða Vag-
ina Museum, árið 2017 en fyrsta
sýningin var opnuð í Camden-
hverfinu í nóvember árið 2019.
Schechter fannst vanta safn fyrir
píkur eftir að hafa heyrt af íslenska
Reðasa f ninu og f jár mag naði
opnunina á netinu með hópfjár-
mögnun.
Samkvæmt Schecter var megin-
tilgangur safnsins að afsanna goð-
sagnir um píkuna, upphefja hana
og fylla upp í þögnina sem um hana
ríkir. Einnig var tilgangurinn að
styrkja ýmiss konar verkefni á sviði
kynheilbrigðis og starfa með fagað-
ilum í heilbrigðisþjónustu. Þá var
safnið í samstarfi við ýmiss konar
samtök og hreyfingar femínista og
gerði nokkur hlaðvörp.
Covid-lokanir komu illa við Píku-
safnið eins og marga aðra menn-
ingarstarfsemi. Húsnæðismálin
reyndust safninu líka erfið og gat
safnið ekki endurnýjað leiguna í
Camden árið 2022, þar sem safnið
hafði borgað ódýrari leigu en á
almennum markaði. Í marsmánuði
það ár flutti safnið starfsemi sína á
nýjan stað, í hverfinu Bethnal Green
í austurhluta borgarinnar. Á einu ári
heimsóttu 40 þúsund manns safnið.
Í gær var síðasti opnunardagurinn.
Aðra sögu er að segja af Reða-
safninu sem er nú á sínu 26. starfs-
ári. Það var um tíma á Húsavík og á
Laugavegi í Reykjavík en hefur verið
á Hafnartorgi síðan árið 2020.
„Reðasafninu hefur aldrei gengið
betur en nú. Ég held að þetta stefni í
ansi gott ár hjá okkur,“ segir Þórður
aðspurður um gengi safnsins.
Hann segist vera gríðarlega
ánægður með húsnæðið á Hafnar-
torgi. Það henti einkar vel fyrir starf-
semina. Í sumar var stór stund þegar
afsteypa listakonunnar Cynthiu
Albritton af getnaðarlim rokkarans
Jimi Hendrix var afhjúpuð á safninu.
„Hendrix er að trekkja að. Það
var góð auglýsing fyrir okkur og
við höfum aldrei fengið jafnmikla
athygli. Fólk er að senda okkur gripi
og af og til limi,“ segir Þórður. „Hend-
rix var mikil blessun.“ n
Reðasafnið harmar lokun
Píkusafnsins í Lúndunum
„Það er svo gott að tala við
einhvern sem hefur farið í
gegnum svipaða reynslu“
lifidernuna.is
Kolluna upp
fyrir öll sem berjast
við krabbamein og
aðstandendur!
gar@frettabladid.is
BRETLAND Um fimm hundruð þús-
und manns í Bretlandi lögðu niður
störf í gær til að þrýsta á um kjara-
bætur. Var ríflega helmingur ríkis-
rekinna skóla annað hvort lokaður
að hluta eða að fullu vegna þessa.
Um var að ræða stærstu verk-
fallsaðgerð í áratug að sögn BBC. Er
þetta í fyrsta sinn síðan 2016 sem
kennarar fara í verkfall í landinu.
Fjölmargir aðrir opinberir starfs-
menn voru einnig í verkfalli, þar á
meðal lestarstjórar og strætisvagna-
stjórar og fyrirlesarar við háskóla.
Gillian Keegan menntamálaráð-
herra sagði samræður í gangi við
stéttarfélög um ágreiningsatriði. n
Hálf milljón
manns í verkfalli
helenaros@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Kvörtun séra Gunnars
Sigurjónssonar, fyrrverandi sóknar-
prests í Digranes- og Hjallapresta-
kalli, vegna meints vanhæfis Agnes-
ar M. Sigurðardóttur biskups verður
ekki tekin til efnislegrar skoðunar
hjá umboðsmanni Alþingis.
Í bréfi á vef umboðsmanns segir
að starfsmannamál þjóðkirkjunnar
falli alfarið utan starfssviðs hans í
kjölfar breytinga á lagalegri stöðu
kirkjunnar.
Fréttablaðið greindi frá kvörtun
Gunnars til umboðsmanns Alþingis
í lok janúar. Gunnar var sendur í
leyfi frá störfum vegna ásakana sex
kvenna um kynferðislega áreitni,
kynbundið ofbeldi og einelti innan
kirkjunnar í desember 2021 á
meðan óháða teymi þjóðkirkjunnar
var með mál hans til skoðunar.
Eftir að hafa verið framlengt í að
minnsta kosti þrígang rann leyfið út
1. september síðastliðinn og í sama
mánuði tilkynnti Biskupsstofa að
Gunnar myndi ekki snúa aftur til
starfa.
Kvörtun Gunnars snéri að hæfi
Agnesar í máli hans, hvernig hún
hefði komið fram í málinu og talað
í fjölmiðlum.
Umboðsmaður Alþingis segir að
prestar séu ekki lengur embættis-
menn eða opinberir starfsmenn
samkvæmt lögum. Því falli kvörtun
Gunnars utan síns starfssviðs. n
Umboðsmaður
vísar kvörtun
séra Gunnars frá
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís-
lands. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
2 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 2. FEBRÚAR 2023
FIMMTUDAGUR