Fréttablaðið - 02.02.2023, Síða 8
Ástandið er mjög
slæmt. Ég borga 62
prósentum meira í
orkukostnað en ég
gerði á sama tíma í
fyrra.
Kenny Mackay.
Spurningin fyrir frakt-
flugfélögin er: Hvað
gera þau þegar þau geta
ekki lengur hlaðið
farminn sinn að fram-
an?
Eyjólfur Vest-
mann Ingólfs-
son, rekstrar-
stjóri hjá Inter
Continental Avi-
ation
© GRAPHIC NEWSHeimildir: Reuters, NPR, Aviation Week, Boeing Mynd: Atlas Air*Des. 2022
BOEING 747 FLOTI,
2023-2032
Nýjar pantanir
Eldri vélar a ur á leið í notkun
Teknar úr notkun
Teknar úr notkun
á þessum áratug
Enn þá í
notkun
e ir 10 ár
Til að smíða
747-ugvél þarf
5,6 milljón fermetra
samsetningarrými.
Verksmiðja Boeing
í Everett, Washington,
er sú stærsta í heimi.
6. desember 2022:
Framleiðslu hætt á
747-8F fraktugvélum.
31. janúar 2023: Síðasta
ugvélin aent Atlas Air.
1967-2022:
1.574 747-ugvélar
smíðaðar
9 9
14
12
22
25
32
24
17
15
10
1
17
2025 2026 2027 2028 2029 2030 2031 20322023 2024
747-ugvélar
enn í notkun: 448*
269 179
Allra síðasta Boeing-747 ugvélin sem smíðuð verður, hin byltingarkennda
júmbóþota sem gjörbreytti ugsamgöngum, hefur verið aent til
fraktugfélagsins Atlas Air. Eir 55 ár í loinu er saga júmbóþotunnar öll.
Síðasta Boeing-747 aent
helgisteinar@frettabladid.is
BRETLAND Alþjóðagjaldeyrissjóður-
inn hefur greint frá því að Bretland
verði eina þjóðin meðal stærstu
efnahagskerfa heims til að upp-
lifa samdrátt á þessu ári. Að sögn
sjóðsins mun breski efnahagurinn
dragast saman um 0,6 prósent og
mun ástandið halda áfram að hafa
áhrif á heimili landsins.
Í stuttu máli þýðir samdrátturinn
að fyrirtækin þar í landi muni græða
minni peninga og atvinnuleysi
haldi áfram að aukast. Tölurnar í ár
eru mjög ólíkar frá því í fyrra þegar
breski efnahagurinn óx um 4,3
prósent. Talsmenn AGS benda á að
þessi breyting endurspegli hve mikið
Bretar eru háðir jarðgasi sem hefur
gríðarleg áhrif á framfærslukostnað.
Kenny Mackay, skoskur sagnfræð-
ingur og leiðsögumaður, segist borga
töluvert meira fyrir mat, orku og
aðrar nauðsynjavörur en hann gerði
á sama tíma í fyrra. Hann er búsettur
í Edinborg og er einn þeirra Breta
sem finna mikið fyrir afleiðingum
Brexit og stríðsins í Úkraínu.
„Ástandið er mjög slæmt. Ég
borga 62 prósentum meira í orku-
kostnað en ég gerði á sama tíma í
fyrra. Verð á matvælum hefur líka
hækkað upp úr öllu valdi og ég
myndi áætla að ég sé að eyða svona
35 til 40 prósentum meira í mat og
aðrar nauðsynjavörur.“
Breska ríkisstjórnin hefur reynt
að koma til móts við hækkandi
orkukostnað. Til að mynda fengu
27 milljónir heimila í landinu rúm-
lega 70 þúsund króna orkustyrk
sem dreift var milli október 2022 og
mars 2023. Kenny segist hafi notið
góðs af þeim styrk en óljóst er hvað
gerist þegar hann rennur út í apríl.
Hann telur sig samt heppnari en
marga samlandar sína. „Þar sem ég
er fullorðinn launþegi og bý einn
er ég ekki á eins slæmum stað og
þeir sem eru atvinnulausir eða með
börn. Ég bý líka í lítilli íbúð sem er
frekar nýleg, þannig að það lækkar
kostnaðinn töluvert,“ segir hann.
Kenny segist mun meðvitaðri um
það hvað hann kaupir. Hann hefur
til dæmis sparað peninga með því
að elda matinn sinn frá grunni í stað
þess að kaupa tilbúna rétti og sækir
sjaldnar bari eða viðburði.
„Ef ég vil til dæmis heimsækja
Ísland aftur þá þyrfti ég að taka
það af sparnaðinum mínum,“ segir
Kenny. n
Segist mun heppnari en margir samlandar hans
Síðasta Boeing 747-þotan
sem smíðuð verður var
afhent í vikunni. Flugvélin
markaði tímamót í f lugsam-
göngum og var hún talin ein
besta f lugvél allra tíma. Sér-
fræðingur segir að fraktflug-
félög muni eiga í erfiðleikum
með að finna staðgengil.
helgisteinar@frettabladid.is
BANDARÍKIN Bandaríski f lugvéla-
framleiðandinn Boeing hefur
af hent síðustu Boeing 747-f lug-
vélina til fraktf lugfélagsins Atlas
Air. Flugvélin er sú síðasta sinnar
tegundar sem smíðuð verður og
markar salan þar með endalok
tímabils júmbóþotunnar.
Þúsundir starfsmanna Boeing
fylgdust með afhendingunni, þar á
meðal nokkrir úr hinu upprunalega
teymi starfsmanna sem hönnuðu
flugvélina á sjöunda áratug seinustu
aldar. Flugvélin markaði mikil tíma-
mót í f lugsamgöngum og átti hún
stóran þátt í að lækka flugfargjöld.
Hún veitti einnig fleirum tækifæri
til að f ljúga á milli heimshluta og
var sterkt tákn bandarískrar f lug-
menningar.
Viðburðinum lauk með óvæntri
heimsókn John Travolta sem sagði
áhorfendum frá því þegar hann
lærði á 747-þotuna á meðan hann
var erindreki ástralska f lugfélags-
ins Qantas Airlines. Leikarinn sagði
námskeiðið hafa verið það erfiðasta
sem til væri fyrir atvinnuflugmann
en sagði einnig þotuna vera eina þá
öruggustu sem hefur verið smíðuð.
Þotan öðlaðist viðurnefnið
„drottning himinsins“ og var hún
fyrsta flugvél sem búin var tveggja-
gangvega farþegarými. Það tók
starfsmenn Boeing um 28 mánuði
að smíða f lugvélina og árið 1970
varð Pan Am fyrsta f lugfélagið til
að kynna hana til starfa.
Framleiðsla þotunnar hefur ætíð
farið fram í verksmiðju Boeing sem
staðsett er í borginni Everett í Wash-
ington-fylki. Verksmiðjan var byggð
árið 1967 til að þjónusta framleiðslu
þotunnar og heldur Boeing því fram
að flugskýlið sem hýsir verksmiðj-
una sé það stærsta í heimi enn þann
dag í dag.
Eftir fimm áratuga framleiðslu
dró hins vegar úr eftirspurninni á
747-þotunni og við tóku sparneytn-
ari tveggja hreyfla breiðþotur frá
bæði Boeing og Airbus. Boeing til-
kynnti svo í júlí 2020 að fyrirtækið
myndi hætta við framleiðslu á fleiri
747-þotum en á þeim tíma var fram-
leiðslan ekki nema um hálf þota á
mánuði.
Starfsmenn sem unnu við fram-
leiðslu vélarinnar voru annað hvort
færðir yfir í aðrar deildir eða sögðu
sjálfviljugir upp störfum. Smíði á
síðustu 747-þotunni kláraðist svo 7.
desember í fyrra og hafði Boeing þá
framleitt 1.574 slíkar þotur.
Eyjólfur Vestmann Ingólfsson,
rekstrarstjóri hjá Inter Continen-
tal Aviation, segir það vera mikinn
skaða fyrir f lugheiminn að missa
Boeing 747-þotuna. „Fyrst missir
heimurinn Bretlandsdrottningu og
f ljótlega eftir það missum við svo
aðra drottningu.“
Hann segir þotuna hafa verið
mikið afrek þegar hún kom fyrst á
markað og hvað varðar fraktflutn-
inga hafi hún mikla yfirburði yfir
tveggja hreyfla f lugvélar. Eyjólfur
bendir líka á að þrátt fyrir áfram-
haldandi notkun eldri 747-véla verði
sífellt erfiðara að nálgast varahluti
í þær.
„Spurningin fyrir fraktflugfélögin
er: Hvað gera þau þegar þau geta
ekki lengur hlaðið farminn sinn
að framan? Þar sem 747-fraktþotur
opnuðust að framan þurfti ekki að
snúa pallettunum við og eins var
hægt að koma fyrir lengri varningi
eins og rútum. Þú gerir það ekkert
á þessum minni breiðþotum,“ segir
Eyjólfur. n
Boeing kveður drottningu himinsins
Boeing 747-þotan átti stóran þátt í að lækka flugfargjöld og var sterkt tákn
bandarískrar flugmenningar. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
helgisteinar@frettabladid.is
TYRKLAND Tayyip Erdogan, forseti
Tyrklands, segist líta jákvæðum
augum á aðildarumsókn Finnlands
að Atlantshafsbandalaginu. Aftur á
móti er hann ekki eins uppörvandi
þegar kemur að umsókn Svía.
Bæði Svíar og Finnar sóttu um
aðild að NATO eftir innrás Rússa
í Úkraínu. Þjóðirnar mættu hins
vegar óvæntri andspyrnu Tyrkja.
„Afstaða okkar gagnvart Finnum
er jákvæð, en afstaða okkar gagn-
vart Svíum er það ekki. Á þessu stigi
ættu Svíar ekki einu að reyna. Við
munum ekki samþykkja umsókn
þeirra á meðan þeir leyfa fólki að
brenna Kóraninn,“ sagði Erdogan í
ræðu sinni til AK-flokksins á tyrk-
neska þinginu.
Utanríkisráðherra Finnlands,
Pekka Haavisto, segir Finna stað-
ráðna í að sækja um aðild samhliða
Svíum. Af 30 meðlimum bandalags-
ins eiga aðeins Tyrkir og Ungverjar
eftir að samþykkja umsókn þeirra.
Ungversk stjórnvöld segjast afgreiða
málið á næstu vikum. n
Á móti Svíum
en styður Finna
Tyrklandsforseti hefur sýnt Svíum
mikla andstöðu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Kenny Mackay á ferð um Suðurlandið fyrir tíma Brexit og efnahagskreppu.
MYND/AÐSEND
benediktarnar@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Vestur-
landi leitar enn að Modestas Ant-
anavicius sem hefur verið týndur
frá 7. janúar þrátt fyrir leit lögreglu-
manna og björgunarsveitarmanna.
Engar nýjar vísbendingar hafa
borist
„Modestas sást síðast 7. janúar
á laugardegi, þannig að við erum
farin að nálgast mánuð. Við höfum
verið að leita á landi, sjó, ströndum
og í skúrum og höfum biðlað til
fólks að kíkja í bústaði og annað,“
segir Ásmundur Kr. Ásmundsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn á Vestur-
landi.
„Hann fór ekki á bílnum sínum
og var ekki með síma á sér. Maður
vonaði kannski að einhver hefði
tekið hann upp í bíl og keyrt hann
eitthvað, en við höfum ekki fengið
neinar nýjar vísbendingar um það.“
Veðurskilyrði hafa mikil áhrif á
leitina. „Um leið og veðrið breytist
og snjóa leysir þá erum við komnir
af stað. Auðvitað erum við alltaf
að vona að maðurinn sé einhvers
staðar innandyra. En ef hann væri
ekki innandyra þá er þetta orðið
ansi langt um liðið og erfitt að eiga
við,“ segir Ásmundur.
Hann hefur sjálfur verið í sam-
skiptum við fjölskyldu Modestas.
Málið sé afar þungbært fyrir þau
en hann biður alla sem vita um
ferðir hans að hafa samband við
lögreglu.n
Modestas týndur
í nær fjórar vikur
Modestas Antana vicius hefur verið
týndur síðan 7. janúar.
8 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 2. FEBRÚAR 2023
FIMMTUDAGUR