Fréttablaðið - 02.02.2023, Blaðsíða 11
Áform Mílu gera ráð
fyrir að fjárfestingar
félagsins aukist um
60 prósent strax á
þessu ári.
Nýráðinn forstjóri Mílu segist
bæði stoltur og spenntur yfir
því að fá að leiða fyrirtækið
inn í nýja tíma í fjarskiptum
á Íslandi. Yfirstandandi ár
verður algjört metár hjá Mílu
því fyrirtækið hyggst fjár-
festa fyrir um fimm milljarða
króna í grunnkerfunum.
Áhrifanna mun gæta um allt
land.
„Míla er að stíga inn í nýja og spenn-
andi tíma, nú þegar kaup Ardian og
lífeyrissjóðanna á félaginu eru loks-
ins gengin í gegn. Þessi breytta staða
rennir gríðarlega sterkum stoðum
undir fyrirtækið því fjárfestinga-
getan hefur stóraukist,“ segir Erik
Figueras Torras sem tók við starfi
forstjóra Mílu í byrjun desember
síðastliðins.
Hann segir fyrstu vikurnar í starfi
hafa verið erilsamar en skemmti-
legar. Erik er öllum hnútum kunn-
ugur í íslensku fjarskiptaumhverfi
og segir það sannarlega hafa hjálpað
mikið til. Hann segist oft spurður að
því hvað komi til með að breytast
með eigendaskiptum félagsins.
„Svarið er einfaldlega að það er
heilmikið í farvatninu. Margt af því
hefur ekki verið svo sýnilegt fram til
þessa en það mun breytast hratt. Í
fyrsta lagi mun Míla bæta verulega
í fjárfestingar félagsins og styrkja
kerfin. Það mun gerast strax á þessu
ári. Við erum að tala um liðlega 60
prósenta aukningu frá fyrri árum og
tölur sem hlaupa á milljörðum. Yfir-
standandi ár verður algjört metár
því við erum að fjárfesta fyrir lið-
lega fimm milljarða króna.
En hvaða áhrif munu þessar fjár-
festingar hafa? Mun venjulegt fólk
finna fyrir þessari aukningu og upp-
byggingu kerfanna?
„Alveg klárt mál. Í raun þýðir
þetta að Míla mun færa Ísland inn í
nýja tíma hvað tækniþróun varðar.
Áhrifanna mun gæta á öllum sviðum
því góð og öflug fjarskipti spila sífellt
stærri rullu í öllu sem við gerum og
hefur snertifleti við alla grunnþjón-
ustu sem við þurfum á að halda.“
Míla margfaldar fjárfestingu um allt land
Erik Figueras
Torras segir að
fólk eigi að geta
notið bestu
fáanlegu fjar-
skipta á Íslandi.
Hvort sem það
búi í Garðabæ
eða á Kópaskeri.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Guðmundur
Gunnarsson
ggunnars@
frettabladid.is
Hver er Erik Figueras Torras?
n Erik fæddist í Barcelona og er
fjarskiptaverkfræðingur að
mennt.
n Áður en Erik settist í forstjóra-
stólinn hjá Mílu var hann
framkvæmdastjóri tækni-
sviðs hjá Símanum. Hann hóf
fyrst störf hjá Símanum árið
1998, þá sem tæknimaður.
n Erik hefur unnið fyrir tækni-
risana Siemens og Philips og
búið í Þýskalandi, Bandaríkj-
unum og Frakklandi.
n Erik og Björk, eiginkona hans,
eiga tvær dætur og einn
þýskan fjárhund.
n Hann segist vera orðinn
hálfgerð menningarblanda
eftir veruna í ólíkum löndum.
Hann segist hugsa á kata-
lónsku, skrifa á ensku en
allir draumarnir séu samt á
íslensku.
Ég hugsa á katalónsku,
skrifa á ensku en allir
mínir draumar eru á
íslensku.
Þessi innspýting f jármagns
mun svo ekki bara leiða til þess að
tækninni f leygi fram heldur mun
öryggið líka aukast um allt land, að
sögn Eriks.
„Ísland stendur mjög framarlega í
fjarskiptum og tækniþróun en það
hefur vantað dálítið upp á að þessi
þróun nái til alls landsins. Þessu
viljum við breyta og taka stór skref
fram á við á landsvísu. Við viljum
leiðrétta þennan halla sem hefur
myndast á milli mismunandi lands-
hluta og bæta lífskjör allra á Íslandi.
Þessu mun fólk taka eftir. Ég hef þá
sýn að það eigi ekki að skipta máli
hvort fólk búi í Garðabæ eða á Kópa-
skeri. Tæknin og fjarskiptin eiga að
vera þau sömu.“
Þriðja atriðið sem aðkoma nýrra
eigenda breyti, að sögn Eriks, er svo
umhverfið sjálft. Með því að slíta
strenginn milli Símans og Mílu
skapist andrúmsloft fyrir eðlilega
samkeppni á íslenskum fjarskipta-
markaði.
„Míla stendur öllum opin eftir
þessa breytingu. Ég hef starfað
lengi í f jarskiptum á Íslandi og
þekki Mílu vel en ég sé strax hvern-
ig andrúmsloftið hefur breyst. Ég
finn það nú þegar í öllum sam-
skiptum við okkar viðskiptavini,“
segir Erik.
Hann segist bæði spenntur og
stoltur yfir því að vera falið að
leiða Mílu á þessum spennandi
tímum. „Þótt ég sé sannarlega
íslenskur ríkisborgari þá fæddist
ég ekki á Íslandi. Það er mér því
ótrúlega mikils virði að vera treyst
fyrir þessu starfi og þessum verk-
efnum því þau munu bæta lífskjör í
landinu, ég er sannfærður um það,“
segir Erik að lokum. n
Öflug fjarskipti
spila sífellt
stærri rullu í
samfélaginu.
Snertifletirnir ná
meðal annars til
þjónustunnar
sem landsmenn
reiða sig á um
allt land, að mati
forstjóra Mílu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
FRÉTTABLAÐIÐ MARKAÐURINN 112. FEBRÚAR 2023
FIMMTUDAGUR